stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og ég ætla nú að byrja á jólabónusnum. Það er greinilegt að þar var hv. þingmanni heldur betur fótaskortur á tungunni eða að hann bara veit ekki alveg hvernig hlutirnir eru, því þar er algerlega miðað við x krónur. Það er enginn sem er kominn yfir meðaltekjur sem fær jólabónus. (Gripið fram í.) Þetta var áður, fyrir tveimur árum síðan, í tíð síðustu ríkisstjórnar. Nú er þetta gjörsamlega tekjutengt og endar með því að það eru eiginlega — ég bið bara hv. þingmann vinsamlegast að kynna sér málið betur. (Gripið fram í.) Ég bið þig að gera það. (Gripið fram í.)
Við höfum verið að boða hækkaðar barnabætur eftir þessa kjarasamninga og tekjumörkin falla vel að markmiðum stefnu um að styrkja þær og styrkja fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar. Þegar hv. þingmaðurinn segir að ég sé mjög mikið að tala um barnabætur þá tekur hann algerlega úr samhengi það sem ég sagði áðan þegar ég var að segja að það er ekki ráðist á neinn þjóðfélagshóp eins og öryrkja þegar kemur að tekjutengingu og það er staðreynd. Ég var bara að tala um staðreyndir málsins. Öryrkjar mega búa við það að vera skertir í rauninni sinni framfærslu hvenær sem er ef þeir einhvers staðar sýna einhverjar krónur umfram það sem skýrt er kveðið á um í lögum, eðlilega, en þess vegna verð ég að segja: Er þá eðlilegt að þeir sem eru komnir með tugi milljóna í tekjur á ári skuli ekki a.m.k. losna undan því að þiggja barnabætur? Það var nú eiginlega það sem ég var að segja. Ég var ekki að tala um tekjutengingar að öðru leyti en því að vekja athygli á því hvaða þjóðfélagshópur það er sem er langtekjutengdastur af öllum þjóðfélagshópum, hópurinn sem er langfátækasta fólkið í landinu.