stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína yfirferð á málinu. Mér fannst, rétt eins og hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni, áhugavert að heyra það sem hæstv. ráðherra sagði um barnabætur og hvernig þær dreifast og ég skil það sem svo að það verði þá einhvers konar innlegg í þessa vinnu að greina það eða þetta var svona hugleiðing frá ráðherranum. En það er dálítið fróðlegt og væri kannski gaman að heyra ráðherrann aðeins botna það betur hvernig stendur á því og hvernig væri þá hægt að breyta kerfinu þannig að fólk með þessar háu tekjur sé ekki að fá jafn mikið úr kerfunum. Þetta er eitthvað sem við þurfum kannski að fara að velta svolítið fyrir okkur í þessum opinberu kerfum. Það virðist vera þannig að fólk, jafnvel með háar tekjur og háar eignir, fái greiðslur.
Ég var persónulega dálítið hugsi, þó að það mál hafi komið upp áður en ég fór á þing, þegar skólamáltíðir voru gefnar t.d. frjálsar og ókeypis í raun og veru. Það væri hægt að greina það mál með svipuðum hætti. Það yrðu þá líka ókeypis skólamáltíðir fyrir ríkustu heimili landsins. Af því að jólabónusinn kom aðeins til tals og við höfum verið að skoða það mál hérna í þinginu og í velferðarnefnd þá langar mig að upplýsa hæstv. ráðherra um að það er akkúrat þannig að árið 2025, nú eru komin ný minnisblöð frá nefndinni um þetta sem var óskað eftir hjá nefndinni, þá voru 1.507 aðilar með hreina eignastöðu á bilinu 100–200 millj. kr. sem fengu jólabónusinn í fyrra. Og þegar farið er í hópinn 200–400 millj. kr. eru það 105 aðilar og 400–1200 millj. kr. í hreina eign, átta aðilar. Auðvitað má segja sem svo að þetta séu ekki stóru peningarnir. En akkúrat af því að hæstv. ráðherra byrjaði með þennan þráð, sem ég held að við gætum náð svolítið saman um í þinginu: Er eðlilegt að fólk með háar eignir og háar tekjur sé að þiggja greiðslur sem við viljum auðvitað gjarnan að komi til þeirra sem mest þurfa á að halda? Þá væri fróðlegt að heyra aðeins frá ráðherra hvað þetta varðar.