158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.

286. mál
[18:44]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir hans seinna andsvar. Varðandi fjármögnunina þá er búið að ræða nokkuð um barnabótakerfið og það mun bæði vera unnið að endurröðun innan kerfisins og síðan mun koma þarna inn fjármagn næstu árin sem ekki er hægt að segja nákvæmlega hvernig raðast niður á hvert ár. En á næsta ári verður farið í að grandskoða þetta kerfi og við erum með mjög gott fólk í því, sérfræðinga á því sviði. Varðandi þessar 814 milljónir munu þær skiptast þannig að það verður skapaður þessi hvata- og nýsköpunarsjóður og verður boðið upp á tækifæri til að sækja í þann sjóð og þar erum við að hugsa á tímabilinu 320 milljónir í það. Síðan eru það innritunargjöldin í framhaldsskóla vegna þess í gegnum samráðið kom í ljós hversu ótrúlega erfitt margar fjölskyldur hafa það og börn þeirra þegar farið er frá grunnskólanum í framhaldsskólann, þetta er náttúrlega bara gjörbreyting. Þarna er málið að fella niður innritunargjöldin í framhaldsskóla fyrir tekjulágar fjölskyldur og í þetta munu fara á tímabilinu 315 milljónir. Þetta er eitthvað sem við getum byrjað á strax. Og það sem við viljum líka gera strax og kostar kannski ekki neitt sérstakt fjármagn er að hefja samtal um þennan sáttmála. Ég verð að segja að íþróttageirinn, tónlistargeirinn og skólarnir sýndu þessu svo mikinn áhuga og þau voru svo jákvæð og það voru allir svo tilbúnir til að vinna að svona sáttmála með okkur að það var alveg gjörsamlega frábært. Þetta er hægt að hefja strax og ég bind miklar vonir við að þetta skili einhverju, þetta samtal. Við erum ekki að tala um eitthvert einstakt félag heldur alveg upp í toppana og niður úr. Þannig að það eru þessar aðgerðir sem við erum að horfa í núna og síðan að halda áfram með stóru málin þegar fram líða stundir.

Varðandi skilgreininguna (Forseti hringir.) — ég verð aðeins að fá að fara fram yfir — þá er það ótrúlega mikilvægt. Þegar við byrjuðum þessa vinnu þá vorum við komin með tíu mögulegar skilgreiningar (Forseti hringir.) en við notum þessa skilgreiningu sem er í greinargerðinni þar til það verður síðan búin til ein opinber skilgreining. (Forseti hringir.) Við verðum einhvern veginn að lenda málinu að lokum með einhverja eina skilgreiningu. Öðruvísi er ekki hægt að vinna þetta vel.

(Forseti (EÁs): Forseti vill ítreka það og biðja hv. þingmenn að virða ræðutíma.)