158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.

286. mál
[18:47]
Horfa

Anna María Jónsdóttir (Sf):

Frú forseti. Það er mjög í anda ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að lögð sé fram aðgerðaáætlun til að sporna við fátækt barna á Íslandi. Hæstv. mennta- og barnamálaráðherra Inga Sæland mælir nú fyrir fyrstu aðgerðaáætlun og jafnframt stefnu gegn fátækt barna sem á að ná til ársins 2031. Áætlunin byggist á skýrslu sem unnin var af sérfræðingum við Háskóla Íslands um umfang fátæktar barna á Íslandi.

Þrátt fyrir að fátækt hafi dregist saman á undanförnum árum er enn töluverður fjöldi barna sem býr við fátækt og takmarkandi skilyrði og öryggisleysi sem þeim aðstæðum fylgir. Þar kemur fram að samsetning hóps barna sem búa við fátækt á Íslandi hefur tekið miklum breytingum síðustu ár og fátækt er mun algengari í hópum barna af erlendum uppruna en barna með íslenskan bakgrunn. Þá kemur fram að staða einstæðra foreldra sé áfram sérlega viðkvæm.

Í skýrslunni kemur fram að um 12–13% barna búi undir lágtekjumörkum, eða eitt af hverjum átta börnum. Það kemur líka fram að niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sýni skýr tengsl á milli fjárhagsstöðu heimila og fjölmargra þátta sem varða daglegt líf og velferð barna. Í slíkum aðstæðum skipta opinberar stuðningsaðgerðir gríðarlega miklu máli. Þá kemur fram að samfélagslegur kostnaður vegna fátæktar sé umtalsverður og í tilfellum barna eru líkur á því að hann geti orðið langvinnur. Efnahagsleg staða í æsku getur tengst fjárhagslegri stöðu síðar á lífsleiðinni. Útrýming barnafátæktar myndi ekki einungis bæta afkomu barna og draga úr fátækt þeirra á fullorðinsárum heldur einnig vera verulegur efnahagslegur ábati fyrir samfélagið af því að fátækt fylgir auðvitað mikill kostnaður og heilsufarslegar afleiðingar eins og komið hefur fram. Þá er ekki tekið tillit til annars víðtæks og mikilvægs ávinnings sem tengist heilsu, líðan, menntun og félagslegri þátttöku barna á bernskuárunum sjálfum.

Innan Evrópusambandsins hafa málefni barna sem búa við fátækt fengið aukna athygli þannig að þetta er ekki bara bundið við Ísland. Evrópusambandið samþykkti árið 2021 svonefnt, með leyfi forseta, „European child guarantee“ sem gæti útlagst sem evrópska barnaábyrgðin, sem lýtur að því að tryggja börnum í viðkvæmri stöðu aðgang að grunn- og lykilþjónustu eins og leikskólamenntun, heilbrigðisþjónustu, næringu og húsnæði. Evrópusambandið hefur svo fylgt þessum áherslum eftir í nýrri stefnumótun þar sem gengið er enn lengra, m.a. með því að leggja áherslu á að tryggja fjölskyldum atvinnuöryggi og aðgengi að barnaumönnun.

Aðgerðaáætlunin sem hér um ræðir er gríðarlega mikilvægt mannúðar- og mannvirðingarmál með þá framtíðarsýn og meginmarkmið að Ísland verði samfélag þar sem aðstöðumunur barna hindri þau ekki til félagslegrar þátttöku, þau fái tækifæri til að þroskast og dafna og dregið verði úr þeim hindrunum sem efnahagslegur og félagslegur ójöfnuður getur haft í för með sér. Það er því mikið heillaskref að til standi að fara í aðgerðir til að sporna við fátækt barna. Þessi fyrsta aðgerðaáætlun er mikilvægt og gott skref í þá átt.

Eins og komið hefur fram er áætlunin aðgreind í fjórar meginstoðir sem ná vel utan um þá þætti sem lúta að því að draga úr fátækt barna og ríma vel við sambærilegar áætlanir annarra landa. Fyrsta stoðin felur í sér opinberan fjárhagslegan stuðning sem mikið hefur verið ræddur hér í pontu í kvöld og beinist m.a. að því að ungmenni fái stuðning til náms- og atvinnuþátttöku með það að markmiði að jafna tækifæri þeirra til framhaldsnáms og bæta þannig forsendur þeirra til tekjuöryggis til framtíðar. Næsta stoð lýtur að því að jafna tækifæri barna til þátttöku í því sem lýtur að skólastarfi og skipulögðu frístundastarfi með því að draga úr fjárhagslegum og félagslegum hindrunum sem standa í vegi fyrir þátttöku barna í því starfi. Þá á að leggja áherslu á að þjónusta við tekjulágar barnafjölskyldur verði efld og tryggt verði að hún nái sérstaklega til þeirra barna sem eru í mestri hættu á að búa við fátækt með því að tryggja að barnafjölskyldur í framfærsluvanda hafi greiðan aðgang að upplýsingum og ráðgjöf um réttindi og úrræði sem þeim standa til boða en þessi þáttur er líka gríðarlega mikilvægur.

Að lokum, frú forseti, verður lögð áhersla á að skapa skýr sameiginleg viðmið um fátækt barna sem verður stuðst við til að mæla árangur aðgerða. Á grundvelli þeirra verður aðgerðaáætlun gegn fátækt barna endurskoðuð reglulega. — Ég hef lokið máli mínu.