stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu hér í þessu máli og einnig nota tækifærið til að þakka hv. þm. Kolbrúnu Baldursdóttur, formanni velferðarnefndar, fyrir alla sína vinnu sem ég veit að hefur verið mikil og óeigingjörn og mikilvæg því að það skiptir máli að gera þetta vel. Það er nefnilega auðvitað sár á íslensku samfélagi að hér séu börn sem búa við fátækt. Blessunarlega eru þau hlutfallslega færri hér á landi en í mörgum ríkjum í kringum okkur og er það vel. En við sem samfélag getum gert betur. Ég hafði orð á því í orðaskiptum mínum við hæstv. ráðherra að mér þótti fyrri hluti ræðu hennar vera frábær og þar deilum við hug, eins og hún hefur stundum komist að orði, reyndar í sambandi við aðra þingmenn en sjálfan mig. Við deilum hug hvað varðar til að mynda menntakerfið og áhrif þess á málefni eins og þetta hér. Menntakerfið er auðvitað mikilvægasta jöfnunartækið sem við sem samfélag eða hið opinbera höfum, að búa þannig um hnútana að öll börn fái notið hæfileika sinna, hafi jöfn tækifæri til að standa sig og mennta sig. Þar stöndum við okkur því miður ekki nægilega vel og við þurfum að horfast í augu við það. Mér finnst hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hafa tekið mörg jákvæð skref hvað það varðar í sinni stjórnartíð, auðvitað eru önnur kannski ekki jafn góð og svo eigum við eftir að sjá árangurinn af aðgerðunum en vonandi verður hann góður og mikill.
Ég hafði líka orð á því að við þyrftum að búa þannig um hnútana að öll börn geti notið tómstundastarfs, íþróttastarfs, tónlistarnáms o.s.frv. Ég nefndi það líka og ég hef reynslu af því að það eru frjáls félagasamtök og íþróttafélögin sjálf sem er mjög umhugað um þetta, að öll börn geti tekið þátt í þeim íþróttum sem hugur þeirra stendur til og það er gert með því að halda æfingagjöldum í lágmarki. Sveitarfélögin koma þar að máli með frístundastyrkjum en svo hefur mér alltaf þótt vænt um að sjá hvernig samfélagið sjálft tekur utan um þetta, stígur upp, eins og menn segja stundum í íþróttum, og mér finnst t.d. mjög fallegur þessi minningarsjóður Ölla sem ég nefndi í andsvörum sem miðar einmitt að þessu, að styðja börn til íþróttastarfs.
Það er samt því miður ekki hægt annað en að nefna verri hluta ræðu hæstv. mennta- og barnamálaráðherra. Stundum finnst mér málatilbúnaðurinn hér hjá ríkisstjórninni, og þá sérstaklega kannski ráðherrum og þingmönnum Flokks fólksins — sá að þeir stilla okkur þingmönnum upp í tvo hópa, góða fólkið og vonda fólkið. Ég sem hér stend hef fengið yfir mig alls konar skammir og get auðvitað staðið undir þeim en mér finnst þetta vera einfeldningsleg nálgun. Við erum sammála um markmiðin en okkur getur greint á um leiðirnar. Svo getum við líka deilt um árangurinn af starfi stjórnvalda. Þar kemur einmitt kannski þessi gagnrýni. Mér finnst vera holur hljómur í því að hossa sér með fagurgala, t.d. varðandi fjárhagslegan stuðning við barnafjölskyldur eins og er gert í þessari aðgerðaáætlun. Þá er ég að tala um þessa aðgerð sem er sögð í samræmi við áherslur fjármálaáætlunar fyrir árin 2027–2031 um að þróun barnabóta verði sett í fastari skorður þannig að fjárhæðir þeirra haldi verðgildi sínu. Staðreyndin er sú að barnabætur hafa ekki hækkað um eina krónu í tíð þessarar ríkisstjórnar. Ég er ekki að tala um að þær hafi staðið í stað, haldið verðgildi sínu, þær hafa ekki hækkað um eina einustu krónu. Mér reiknast til að raunlækkun yfir þennan tíma sé 9 eða 10%. Það eru efndirnar, það eru áherslurnar. Hæstv. forsætisráðherra sagði oft þegar hún var í mínu hlutverki í stjórnarandstöðu og vitnaði í orð Joes Bidens, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem sagði: Ekki segja mér áherslur þínar, sýndu mér fjárlögin þín, þá get ég sagt þér fyrir hvað þú stendur. Þessi ríkisstjórn stendur fyrir raunlækkun barnabóta. Mér finnst það mjög merkilegt, ég hef verið mjög hugsi yfir því í lengri tíma hverjar áherslur þessarar ríkisstjórnar eru vegna þess að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur skilið eftir unga fólkið, ungu fjölskyldurnar, ungu foreldrana. Þetta er fólkið sem er að glíma við hátt vaxtastig. Þetta er fólkið sem er að vinna mikið og borga háar álögur. Þetta er fólkið sem fær lægri barnabætur. Hæstv. ráðherra fór mikinn um það í tekjutengingarræðu sem ég skildi ekki öðruvísi en að það væri einkennilegt að öryrkjar yrðu fyrir tekjutengingum en að það væru of litlar tekjutengingar gagnvart foreldrum og fjölskyldum. Áherslan hefur verið, ég ætla að leyfa mér að segja það, í það minnsta hjá Flokki fólksins, auðvitað á sinn kjósendahóp en það gleymist og ég hef miklar áhyggjur af barnafjölskyldunum, venjulegu vinnandi fólki sem er að reyna að lifa daginn sinn.
Ræðutími minn er mjög stuttur en ég þarf kannski að grípa niður í nokkur atriði hvað varðar efni þingsályktunartillögunnar. Það er mjög áhugavert að bera hana saman við drögin sem voru upphaflega kynnt. Þar hefur ýmislegt breyst. Það stóð í drögunum að kostnaðarmat aðgerða stæði yfir og því yrði lokið áður en stefnan og aðgerðirnar yrðu lagðar fyrir Alþingi. Það stóð í drögunum sem fóru í samráðsgáttina en í tillögunni er aðeins ein tala, alls 719 millj. kr., ekki sundurliðuð á aðgerðir og er auðvitað ófullnægjandi fyrir alla umræðu á þinginu. Talandi um fátækt barna, ég framkvæmdi orðaleit í fjárlagafrumvarpinu og fjármálaáætluninni og þar kemur orðasambandið fátækt barna hvergi fyrir.
En það sem ég vil kannski nefna, sem er tæknilegs eðlis en engu að síður mjög mikilvægt, er þessi aðgerð er varðar opinbera skilgreiningu á fátækt barna. Þarna þurfum við að vanda okkur mikið. Við gerum okkur grein fyrir því að það er hægt að skilgreina fátækt barna með mjög mismunandi hætti. 12. aðgerðin er um að mótuð verði opinber skilgreining á fátækt barna og það verður mennta- og barnamálaráðuneytið sem ber þá ábyrgð að móta slíka skilgreiningu án aðkomu þingsins. Þarna held ég aftur að það væri réttara að þingið hefði meira um málin að segja en er svona oft raunin hjá þessari verkstjórn, vegna þess að svona atriði, skilgreining á fátækt, er mikilvægt atriði sem kemur oft til tals og menn hefur greint á, ekki bara stjórnmálamenn heldur fræðimenn, hagfræðinga og aðra, um hvernig fátækt er skilgreind.
Ég held að tíma mínum sé lokið, ég fékk hér nokkrar aukasekúndur en ég hef lokið máli mínu, herra forseti.