158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.

286. mál
[19:08]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég veit ekki alveg hvort hv. þingmaður heyrði það sem ég var að segja áðan, að ástæða þess að það er ekkert að gerast núna, það er status quo með barnabótakerfið, er sú að það er að fara í endurskoðun og endurröðun. Það verður endurraðað innan kerfisins og síðan mun verða bætt í það næstu árin þannig að þetta er bara tímabil og á meðan verið er að skoða þetta ofan í grunninn er eðlilega ekki neitt að gerast á meðan og það er bara þetta ár. Svo kemur ný útgáfa af þessu þannig að ég verð að biðja hv. þingmann um að gefa ríkisstjórninni og hæstv. mennta- og barnamálaráðherra aðeins tækifæri til að koma með næstu skref í þessari þróun. Svona lagað gerist ekki á einni nóttu og við lögðum sérstaklega áherslu á það í hópnum að vinna með sérfræðingum. Við erum ekki sérfræðingar í öllu. Þó að við sem vorum þarna höfum lagt saman okkar fagþekkingu þá leituðum við mikils samráðs og vorum stöðugt í sambandi við sérfræðinga á sviðunum sem við þurftum eftir atvikum.

Mig langaði nú reyndar í seinna andsvari aðeins að koma inn á svona sjóði vegna þess að mér fannst gaman að heyra að hv. þingmaður nefndi þarna ákveðinn sjóð sem sýnir hvað svona sjóðir geta gert mikið. Við fundum út úr því í samráðinu að það er til sjóður sem heitir Hrói höttur. Ég veit ekki hvort þingmaðurinn þekkir þann sjóð en þessi sjóður og þeir sem standa á bak við hann hafa gert ótrúlega hluti og hjálpað til með þessi aukagjöld barna þegar foreldrar hafa ekki ráð á að kaupa búninga og annað. En síðan komumst við að því þegar við töluðum við þá sem búa við fátækt að þeir hafa aldrei heyrt af þessum sjóði. Þetta er ein stoðin og aðgerðapakkinn í okkar áætlun, þ.e. að við þurfum að efla upplýsingaflæði til fólks. Hluti af því sem við vorum að hugsa var að það yrði til einhvers konar málsvari, einhver aðili sem væri með þetta allt saman í sínu fangi sem viðkomandi fjölskyldur gætu leitað til. Ég vildi nú bara nota tækifærið og upplýsa um þetta svona í lokaandsvari.