158. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2026.

stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.

286. mál
[19:11]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka enn og aftur hv. þingmanni fyrir sína fyrirspurn. Hv. þingmaður segir að það sé ekkert að gerast, þetta sé bara tímabil, þetta kerfi sæti endurskoðun. Ég veit ekki hvenær, það hefur alla vega ekki komið fram svo ég viti til. Hv. þingmaður segir: Það er ekkert að gerast. Staðreyndin er auðvitað sú að það er fólk í samfélaginu sem treystir á þessar barnabætur og þær eru að lækka. Það er það sem er að gerast á næsta ári, að bæturnar verða lægri á næsta ári en þær voru á þessu ári og enn lægri heldur en þær voru árið þar á undan og hafa bara ekki hækkað um eina krónu í tíð þessarar ríkisstjórnar. Það sem meira er, í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem nær til áranna 2027–2031 segir að útgjaldarammi málefnasviðsins lækki um 241 millj. kr. á tímabili áætlunarinnar. Það er nú bara reyndin í þessari fjármálaáætlun. Ég vil kannski ljúka þessum orðaskiptum frekar á jákvæðari nótum en það er mikilvægt að halda þessu til haga.

Ég þekki þetta ágætlega úr mínu starfi fyrir barna- og unglingaþætti íþróttahreyfingarinnar og í mínu hverfisfélagi sem er KR. Ég þekki líka að það er erfitt að miðla þessum upplýsingum til barnanna eða foreldranna. Það er líka erfitt að þú segir þetta ekki endilega að fyrra bragði en þú vilt kynna þennan möguleika. Þetta er áskorun og íþróttafélögin geta og eru að gera mjög margt. Ég sagði þetta með æfingagjöldin og svo eru bara svona lítil atriði eins og að hafa skemmtanirnar ódýrar en líka að vera ekki að skipta um búninga á hverju ári, að koma þeim skilaboðum út í samfélagið. Það er bara ekkert mál þó að barnið þitt sé í lánsbúningi. Í mínu félagi, KR-körfunni, er hætt að setja nöfn á búningana, það er bara nr. 9, þannig að þeir geta gengið á milli barna og núna í haust vorum við meira að segja með svona skiptimarkað þar sem, eins og á mínu heimili, safnast upp körfuboltaskór í tugatali og maður getur komið þessu til næsta manns.