stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína fyrirspurn. Ég er að athuga hvort ég finni — hér er þetta. En mér fannst þetta býsna sérstakt og þetta kom mér á óvart, bæði uppleggið hjá hæstv. ráðherra — í staðinn fyrir þetta mál, sem er auðvitað í eðli sínu mjög gott og mér sýnist bara að mörgu leyti ágætt. Það eru auðvitað atriði sem þarf að rýna betur, eins og kannski skilgreiningin á fátækt og annað sem maður þarf bara að skoða vel. En þess í stað var svolítið keyrt í að koma þessu mikilvæga máli kannski frekar í ágreining, að hleypa því svolítið upp. En það er sem sagt þannig, og ráðherra lagði mikla áherslu á það, að það er þarna tekjuhátt fólk sem er að þiggja barnabætur í opinberum kerfum, sem henni þótti mjög miður, en tekjutengingar gagnvart öryrkjum, og þá væntanlega geri ég ráð fyrir eldri borgurum líka, séu hins vegar of íþyngjandi.
Ég set þetta í samhengi við þennan blessaða jólabónus og vek athygli hæstv. forseta á því að það eru 2.000 manns sem eiga eigið fé upp 100 millj. til 1.200 millj. kr. sem fengu þennan svokallaða jólabónus á síðasta ári. Og í þessu máli, ég segi það líka, þá skiptir líka máli varðandi barnabæturnar og allar greiðslur úr opinberum sjóðum að þær þurfa að vera markvissar og fara til þeirra hópa, þeirra einstaklinga sem þurfa hvað mest á því að halda. Við þurfum að forgangsraða fjármunum sem við erum að deila út í samfélagið og þar held ég að við ættum að geta verið sammála en því miður fer þetta oft í einhvern ágreining og þar er manni kannski gert það upp að vilja þessu fólki ekki hið besta.