stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans ræðu. Þarna fer maður með mikla reynslu og þekkir börn og fjölskyldur til margra ára innan skólakerfisins. Mig langaði bara til að nefna að samkvæmt niðurstöðum okkar, skoðun og greiningu á rannsóknum og samræðum við fólk og háskólasamfélagið er stærsti hlutinn af þeim hópi sem fellur þarna undir börn einstæðra foreldra, börn einstæðra foreldra sem eru öryrkjar og síðan innflytjendur. Þetta voru stærstu hóparnir en það góða er, og nýjustu rannsóknir sýna það, að því lengur sem innflytjendur búa á landinu, því betur gengur þeim, eðlilega, þeir kynnast samfélaginu betur, komast inn í málið og annað slíkt þannig að það fer batnandi hjá þeim hópi.
En líka vegna þessa og varðandi menntunina er brottfallið þarna á milli, frá grunnskóla yfir í framhaldsskóla, hjá þessum börnum mjög mikið og þess vegna finnst okkur svo mikilvægt að grípa þennan hóp þar og reyna að hjálpa til, t.d. með innritunargjaldinu í framhaldsskóla og mögulega einhverju fleira, og til að reyna að ná þeim hópi sem ella myndi mögulega hætta námi þarna þá þarf að styðja þau og fjölskylduna alla til þess að hvetja barnið áfram inn í framhaldsskóla. Þetta var svona það sem okkur þótti mjög stór punktur og mig langar kannski að heyra viðbrögð þingmannsins við þessu.