158. löggjafarþing — 31. fundur,  16. nóv. 2026.

endurskoðun stjórnar efnahagsmála.

[13:45]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég held að það viti það flestir sem hafa fylgst með fréttum að stór hluti verðbólgu í dag kemur til vegna ytri áhrifa. Þetta eru bara mælingar sem segja það. Um þriðjungur verðbólgunnar í dag kemur til vegna olíuverðshækkana út af ytri áhrifum sem við höfum enga stjórn á. Ég bind auðvitað vonir við að við munum sjá til lands hvað það varðar núna á komandi vikum og að það hjálpi okkur aðeins hvað þetta varðar. Við erum með ríkisstjórn sem er núna í fyrsta skiptið í að verða áratug að fara að klára hallalaus fjárlög sem er besta einstaka leiðin sem við höfum til að ríkið geri sitt og hætti að kynda undir verðbólgu.

Hér er mikið talað um útgjöld og tekjur þegar staðreynd málsins er sú að útgjöld samkvæmt þessu fjárlagafrumvarpi eru í kringum 30% af landsframleiðslu og hafa ekki verið lægri, þetta er með því minnsta sem við höfum séð í á áratug. Þetta eru bara tölurnar sem eru á blaðinu. Tölurnar sem ég heyri hins vegar ekki talað hér um er kostnaðurinn sem fylgir því að halda þessum hallarekstri, til að mynda fyrrum ríkisstjórnaraðila í þessum sal, Sjálfstæðisflokknum, sem gerði það að verkum að í dag erum við að greiða um hálfan milljarð á dag í vexti. Við erum að greiða 168 milljarða kr. á hverju einasta ári út af hallarekstri. Af hverju? Jú, vegna þess að hér sat meiri hluti í langan tíma sem treysti sér ekki til að taka eina erfiða ákvörðun. Hér kemur fólk upp og gerir ekki annað en að reyna að auka útgjöld, falla frá tekjum, auka hallareksturinn, auka vaxtakostnaðinn, auka vaxtagjöldin og gera það að verkum að við lendum í sama spíral og við vorum í í mörg, mörg ár.

Þessi ríkisstjórn veit alveg að það þarf stundum að taka erfiðar ákvarðanir. Við treystum okkur til þess. Við stöndum með því sem við segjum. Við erum að gera það sem við sögðumst ætla að gera, sem er mögulega það sem er að taka fólk aðeins úr jafnvægi í þessum sal. Við munum klára hallalaus fjárlög. Það er forsenda þess að við munum sjá þennan vaxtakostnað falla. Já, því fylgja erfiðar ákvarðanir en ég hef ekki heyrt eina tillögu hér inni sem felur það í sér (Forseti hringir.) a.m.k. að við séum ekki að sjá hríðlækkandi afkomu hérna á næstu árum eins og er sífellt að koma fram.