nýting á fæðingarorlofi feðra.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni Samfylkingarinnar og hæstv. félagsmálaráðherra fyrir að hefja þessa umræðu hér í dag sem er sannarlega þörf. Réttur foreldra er mjög skertur í núverandi fyrirkomulagi þar sem fæðingarorlofið sem á að vera tólf mánuðir að nafninu til er í raun og veru ekki tólf mánuðir þar sem fæstir geta fullnýtt fæðingarorlofið. Það eru ýmsar ástæður fyrir því. En þarna er ætlun stjórnvalda að þessu sé skipt einhvern veginn eins og þetta séu þá sjö og hálfur mánuður fyrir móðurina og fjórir og hálfur mánuður fyrir föðurinn. Þetta reikningsdæmi og þessi skipting sem stjórnvöld hafa ákveðið fyrir foreldra gengur illa upp fyrir mjög marga foreldra og þess vegna er raunin sú í núverandi ástandi, vegna þess að stjórnvöld ákveða að hátta þessu svona sem við gætum breytt með einu pennastriki, að réttur fólks til fæðingarorlofs er verulega skertur á Íslandi. Að mínu mati er þetta afturhvarf. Þetta er afturhvarf frá því að við njótum réttar til tólf mánaða fæðingarorlofs en ekki eitthvert óljóst afturhvarf sem hv. þingmaður Samfylkingarinnar (Forseti hringir.) talar um að felist í ósk foreldra um að fá fullt fæðingarorlof. Það er afturhvarfið að mati hv. þingmanns Samfylkingarinnar, (Forseti hringir.) að foreldrar óski sér að fá fullt fæðingarorlof eins og þeir kjósa. Það er kostulegt, virðulegur forseti.