höfundalög.
Virðulegi forseti. Ég kem hér í örstutta ræðu og þakka hv. framsögumanni nefndarálitsins í þetta sinn, Guðmundi Ara Sigurjónssyni. Við erum hér sjö nefndarmenn í allsherjar- og menntamálanefnd sem lögðum nafn okkar við álitið og styðjum efni þess. Það sendir skýr skilaboð um að núverandi refsirammi endurspeglar ekki alvarleika þeirra brota sem um ræðir og umfang tjónsins sem er gríðarlegt. Nægir í því sambandi að vísa til þeirrar ræðu sem var flutt hér rétt í þessu, sérstaklega varðandi tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. Þetta er hið besta mál og opnar líka á leiðir til að ná utan um þessa starfsemi með frekari rannsóknarúrræðum lögreglu sem fylgir þá þyngri refsiramma. Að sama skapi fyrnast brotin síðar en áður var. Allt er það til hagsbóta fyrir rétthafana sjálfa en að sama skapi auðvitað líka alla þá sem njóta ávinnings af lögmætri miðlun þess efnis sem hér um ræðir. Þá er ég að tala um bara íþróttasamböndin, íþróttafélögin, ég er að tala um hinar skapandi greinar o.s.frv. Ég styð þetta mál og hlakka til að greiða því atkvæði mitt.