ársreikningar.
Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Enn og aftur, að íþyngja fyrirtækjum, þar erum við bara ósammála. Við erum að einfalda fyrir fyrirtækin og aftur, við erum með fleiri fyrirtæki sem geta nýtt sér þennan hnapp. Við erum innan þessara marka og aftur: Hvað er gullhúðun? Þurfum við skilgreiningu á því hvað gullhúðun er? Viljum við fara alltaf í hæsta samnefnarann eða viljum við fara í lægsta samnefnarann? Hv. þingmaður nefnir lönd í Evrópu. Við erum vissulega að horfa á, eins og ég nefndi áðan, Danmörku og Noreg. Það er það sem við erum að horfa til með einföldun regluverks, við erum að létta kröfum af fjöldamörgum fyrirtækjum. Þetta er alls ekki íþyngjandi. Þetta er einföldun þannig að það er alveg skýrt í mínum huga.