158. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2026.

ársreikningar.

77. mál
[20:20]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Virðulegur forseti. Þessi umræða kristallar kannski hvernig þetta er hérna hjá okkur á þinginu og af hverju þessi málstofa er mikilvæg fyrir þingmenn og þá sem heima sitja til að reyna að átta sig á málunum. Ég ætla að gera tilraun til að benda á að það sem hér hefur verið sagt er ekki rétt, þ.e. að þetta snúist bara um einföldun. Það er ekki rétt. En ræða hv. þm. Jens Garðars Helgasonar hér áðan var með eindæmum góð og get ég tekið undir allt sem þar kom fram. Ég mun því kannski á ákveðinn hátt hnykkja á flestu því sama en þó kannski tengja það aðeins öðruvísi við raunveruleikann í leiðinni.

Frú forseti. Það er sagt að þetta frumvarp eigi að gera tvennt, annars vegar að innleiða EES-reglu sem við erum skuldbundin til að innleiða og hins vegar að einfalda líf fyrirtækja. En þegar maður les frumvarpið kemur í ljós að lítið fer fyrir einföldun. Frumvarpið gerir eiginlega hið gagnstæða. Já, hið gagnstæða. Ríkisstjórnin hefur sagst vilja vinda ofan af gullhúðun. Við heyrðum nú hér rétt áðan í ræðustól að það er misjafnt hvað er talið gullhúðun. Þau vilja ekki gullhúða en þau eru alveg til í að svigrúm sé ekki nýtt þannig að kvaðirnar verði meira íþyngjandi fyrir íslensk fyrirtæki. Það var sorglegt að heyra en það kemur kannski fátt á óvart frá Viðreisn í þessum málum því að þetta frumvarp kemur einmitt frá ráðherra Viðreisnar. Ríkisstjórnin hefur sagst vilja vinda ofan af séríslenskum kröfum sem ganga lengra en EES-reglurnar. Og í þessu frumvarpi er bætt við þessari svokölluðu gullhúðun og eldri gullhúðun er látin standa.

Það er nefnilega alltaf sama sagan. Eitt er sagt en annað gert. Það er teiknuð upp sú mynd að ríkisstjórnin sé að einfalda en hún virðist ekki hafa þor til þess. Hún virðist alltaf finna ástæðu til að ekkert gangi upp nema gullhúða það. Í raun og veru er ég að reyna að benda á það að þegar svigrúm gefst til að létta á fyrirtækjunum þá eru þau strax orðin svo hrædd við að gagnsæi sé ekki nógu mikið, að eftirlit sé ekki nógu mikið og þá er einhverju öðru bætt við í staðinn. Þetta er ekki það að vilja raunverulega létta á fyrirtækjum landsins.

Fyrst ætla ég að fara aðeins yfir minnstu fyrirtækin, örfélögin. Þau mega skila einföldu yfirliti með svokölluðum hnappi í stað fulls ársreiknings. Hnappurinn hefur reyndar verið til í ákveðinn tíma, það virtist gæta einhvers misskilnings um að það væri nýtt hjá þessari ríkisstjórn. En samkvæmt EES-reglunum má örfélag hafa allt að tíu starfsmenn en hér á landi mega aðeins vera þrír starfsmenn. Fyrirtæki með fjóra eða fimm starfsmenn býr því t.d. við meiri kröfur en sambærileg fyrirtæki í Danmörku, Noregi eða Finnlandi, ólíkt því sem var haldið fram hér rétt áðan, að við værum ekki að nýta svigrúmið af því að við værum að bera okkur saman við hin Norðurlöndin. Nei, við erum ekki einu sinni að því, af því að íslensk fyrirtæki standa vel. Og til hvers? Af hverju erum við að gera íslenskum fyrirtækjum þetta og af hverju er það gert í frumvarpi sem þau halda fram að sé til þess að einfalda?

Svo eru það veltu- og eignamörkin hjá örfélögunum. Þau eru ekki heldur nýtt til fulls. Og svo er auðvitað bætt í. Samkvæmt frumvarpinu má örfélag ekki nota hnappinn ef það á eignir yfir 200 milljónir. Iðnaðarmaður, eða lítil verslun, sem á t.d. húsnæðið sem hann starfar í, lager og tæki, getur auðveldlega farið yfir þau mörk. Þá missir hann einföldu skilin og þarf að gera fullan ársreikning með tilheyrandi kostnaði. Reksturinn hefur ekkert breyst, ekki neitt. Hann á bara húsnæðið sitt. Það er eini munurinn. En auðvitað vill þessi ríkisstjórn ekki verðlauna fólk fyrir ráðdeild. Nei, það á að gera lífið flóknara ef ekki er hægt að skattleggja viðkomandi meira en gert er.

Þá er það endurskoðunin. Samkvæmt frumvarpinu verður félag sem á eignir yfir 1,5 milljarða endurskoðunarskylt, sama hver veltan er og sama hversu margir vinna þar. Tökum sem dæmi félag sem á eitt atvinnuhúsnæði og leigir það út. Það er skuldlaust og enginn vinnur hjá þessu félagi. Það þarf samt, samkvæmt þessum nýju reglum, að kaupa fulla endurskoðun á hverju einasta ári. Fyrir hvern er það gert? Það eru engir lánardrottnar sem þurfa á henni að halda og eignir segja kannski minnst um áhættuna. Ef miða á við eitthvað væri nær að miða við skuldir. En ég held að það hljóti allir að sjá hversu galið það er að þetta fyrirtæki þurfi fulla endurskoðun. Ég hélt það reyndar líka þegar vinnan hófst en meiri hlutinn í nefndinni áttaði sig ekki á því. Af hverju erum við að setja þessar kröfur á svona félag? En hvað gerði nefndin? Meiri hluti nefndarinnar bað vissulega ráðuneytið um mat á því hve mörg félög þetta snerti. Það var nú reyndar öll nefndin sem bað um þetta. Það mat kom aldrei. Nei, ráðuneytið, eftir sinni hentisemi, fór ekki í að útvega þetta mat, sagðist bara ekki ná að afla þessara gagna. Samt er verið að leggja þetta mál fram núna í annað skipti og það er ekkert mat á þessum áhrifum.

Frú forseti. Þetta eru náttúrlega ekki boðleg vinnubrögð. Við erum að sjá þetta aftur og aftur í hverju málinu á fætur öðru. Það er ekkert verið að meta hvaða áhrif frumvörp hafa, hvaða hliðaráhrif þau hafa, hvaða áhrif þau hafa á fyrirtæki landsins, almenning. Það á samt bara að lögfesta þetta óháð því að lykilupplýsingar vanti. Ofan á þetta á að miða við arð, vexti og söluhagnað þegar velta lýsir ekki starfsemi félags. Eignarhaldsfélag sem selur einu sinni hlut í fyrirtæki getur þá orðið endurskoðunarskylt út af þeirri einu sölu. Þetta, frú forseti, er öll einföldunin sem þessi meiri hluti boðar, einföldun sem er í raun og veru hin mestu öfugmæli.

Svo er það annað og það er hvenær endurskoðunarskyldan byrjar. Félag sem fer yfir mörkin tvö ár í röð verður endurskoðunarskylt og samkvæmt frumvarpinu strax seinna árið. En oft kemur ekki í ljós fyrr en ársreikningurinn er gerður að félagið fór yfir mörkin og þá er árið augljóslega búið. Það þyrfti að kjósa endurskoðanda eftir á fyrir ár sem er liðið og endurskoðandinn hefði ekki getað fylgst með árunum. Þetta gengur ekki. Skyldan á að byrja árið á eftir. Ég þekki það nú ágætlega sjálf að reka lítið fyrirtæki og í litlum félögum gerir sami aðilinn yfirleitt ársreikninginn og skattframtalið og það er unnið samhliða. Í dag hafa félög mánuð til að skila ársreikningi eftir aðalfund. Nú á að stytta það í viku. Takk fyrir þá einföldun. Var einföldunin bara fyrir Skattinn og ráðuneytið? Túlkar meiri hlutinn einföldun þannig, það að einfalda regluverk, að þá sé einföldunin bara fyrir stjórnsýsluna og hið opinbera? Ég er farin að óttast að það sé skilgreining meiri hlutans á einföldun regluverks. Einhverjum finnst þetta kannski ekki mikið og það skipti ekki öllu máli þó að þessi skil séu stytt úr mánuði í viku. En fyrir lítið fyrirtæki og bókara eða endurskoðanda þess þá munar heilmiklu um það og eins og kom fram í umsögnum þá gekk það hreinlega ekki upp á síðasta ári miðað við fresti sem voru þá og það þurfti að framlengja og breyta.

Svo er annað sem gengur ekki upp, gengur bara ekki upp tæknilega. Meiri hlutinn er samt ekki til í að skoða það að breyta því. Félög mega t.d. halda aðalfund til 31. ágúst en samkvæmt frumvarpinu á ársreikningurinn að vera kominn inn sama dag. Hvernig á þetta að ganga upp, frú forseti? Þrátt fyrir vitneskju meiri hlutans um þetta í umsögnum þá skipti það engu máli. Ráðuneytið vildi ekki breyta neinu. Á hvaða stað erum við komin, frú forseti, þegar ráðuneytið er farið að stýra meiri hluta nefndarmanna? Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál. Ég vil beina því til forseta, óháð þessu máli, að árétta að þetta sé ekki boðlegt. Þingið hefur aðhald með framkvæmdarvaldinu, ekki öfugt. Þetta dæmi hefur augljóslega ekki verið hugsað til enda.

Svo eru það einingar tengdar almannahagsmunum sem þurfa að uppfylla strangari kröfur en önnur félög. Hér á landi falla mun fleiri félög undir þá skilgreiningu en annars staðar í Evrópu. Takk fyrir þá einföldun eða hitt þó heldur. Þessa séríslensku reglu ætti að fella brott að mínu mati og ef það væri einhver alvara á bak við einföldun regluverks þá myndi það strax vera sparnaður, til að mynda þyrftu færri að eyða tíma sínum í að skrifa umsagnir til að benda okkur á þetta og við þyrftum ekki að vera að þrasa um þetta hér í þingsal. Og fyrst allir segjast vera sammála um að hætta þessari gullhúðun, af hverju er það þá ekki gert? Við hvað er fólk hrætt? Já, þetta var smá útúrdúr, en það væri bara svo gott, frú forseti, ef ríkisstjórnin myndi gera það sem hún segist vilja gera. Þá gætum við mögulega náð miklu betri árangri. Mér er það ofarlega í huga núna í þessari umræðu að meiri hlutanum varð tíðrætt um það í gær, eða kannski aðallega hv. þingmönnum og hæstv. ráðherrum Viðreisnar, að það þyrfti að hafa bein í nefinu til að vera í meiri hluta. Þetta bein sem þeir þurfa að hafa í nefinu, er það til þess eins að gullhúða og reyna að halda því fram að þeir séu ekki að því? Þetta er einhver furða.

En svo er það hitt. Hver á að vinna alla þessa auknu vinnu endurskoðenda? Þessi gullhúðun okkar skapar meiri vinnu fyrir endurskoðendur. Þrátt fyrir að meirihlutaþingmenn komi hér upp og segi að þetta fækki, þá liggur fyrir að þetta verður meiri vinna og það verða fleiri fyrirtæki endurskoðunarskyld. Á Íslandi starfa rúmlega 170 löggiltir endurskoðendur á endurskoðunarstofum og að meðaltali bætast við um tíu á ári. Nærri helmingur löggiltra endurskoðenda á vinnualdri er kominn um fimmtugt og aðeins 60 eru undir fertugu. Þrjár stærstu stofurnar eru með um 70% endurskoðenda. Lítil fyrirtæki, sérstaklega úti á landi — já, það minnir okkur á að ríkisstjórninni virðist náttúrulega heilt yfir ekki vera mjög vel við landsbyggðina í flestum frumvörpum sem hún leggur hér fram. En lítil fyrirtæki, sérstaklega úti á landi, eiga nú þegar erfitt með að fá þessa þjónustu. En ef endurskoðunarskyldum félögum fjölgar eins og verður gert með þessu frumvarpi verður biðin lengri og verðið hærra og það eru þau sem búa úti á landi, fyrirtækin sem starfa úti á landi, sem finna auðvitað mest fyrir því.

Að lokum, frú forseti. Frumvarpið á að gilda um reikningsárið 2026 sem er nánast liðið. Í greinargerðinni segir að ákvæðin séu ívilnandi. Fyrirtæki gætu þurft að uppfylla nýjar kröfur fyrir rekstrarár sem þau eru búin að starfa eftir samkvæmt gömlu reglunum. Þess vegna leggjum við í minni hlutanum til að lögin komi ekki til framkvæmda fyrr en 2027. Við værum reyndar mjög til í að skipta þessu upp, ef meiri hlutinn er til í það, þannig að ívilnandi ákvæði taki gildi strax af því að það er allt í lagi að þau taki gildi strax, en nýjar kröfur á fyrirtæki ekki fyrr en 2027. Það sem ekki gengur er að leggja nýjar kröfur á fyrirtæki afturvirkt.

Frú forseti. Eins og heyrist hér þá er ansi margt í þessu frumvarpi sem gerir það að verkum að það er ekki tilbúið til að vera tekið út úr nefnd. Engu að síður reif meiri hlutinn það út úr nefnd gegn vilja minni hlutans og ég vona að þeir sem fylgjast hér með átti sig á af hverju. Það er líka bara plagsiður að nota innleiðingarmál sem tækifæri til að bæta við nýjum kröfum á íslensk fyrirtæki. Ríkisstjórnin segist vilja einfalda regluverk. Hér hefur hún tækifæri til að sýna það í verki. Hún virðist ekki ætla að nýta það en við ætlum að gefa þingheimi tækifæri til að standa við stóru orðin og vera raunverulega tilbúin að einfalda regluverk því í nefndaráliti minni hlutans eru kynntar breytingartillögur sem eru atvinnulífinu raunverulega til hagsbóta.