158. löggjafarþing — 37. fundur,  23. nóv. 2026.

hagræðing í ríkisrekstri og stjórn efnahagsmála.

[13:31]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Fyrir kosningar lofaði hæstv. forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir að negla niður vextina. Hún sagði Samfylkinguna hafa plan, taka til í ríkisrekstrinum og lækka kostnað heimila og fyrirtækja án þess þó að hækka skatta á almenning. Samfylkingin fékk umboð frá þjóðinni á grundvelli þessa. Nú tæpum tveimur árum síðar eru stýrivextir 8% og verðbólga 5,9%. Tæpu prósentustigi meiri er verðbólgan en þegar hæstv. forsætisráðherra settist í ráðherrastól. Störfum á almennum vinnumarkaði hefur fækkað og atvinnuleysi er á uppleið. Ríkisstjórn hæstv. forsætisráðherra Kristrúnar Frostadóttur lét hjá líða í tvö ár að grípa til aðgerða í ríkisrekstrinum. Í stað þess að leggjast á árar með Seðlabankanum með aðhaldi í ríkisrekstri tók þessi ríkisstjórn ákvarðanir um aukin útgjöld en sagðist samt vera með plan. Á meðan tóku heimilin út aukinn kostnað, aukinn sársauka, í formi meiri verðbólgu og hærri vaxta en ella.

Seint og um síðir lofaði ríkisstjórnin svo afgangi af ríkisrekstrinum með sínu framlagi til baráttunnar en ekki fyrr en Seðlabankanum hafði þegar tekist að kæla hagkerfið. Ríkisstjórnin hefur því skilað auðu til þessa, svo mikið er víst, skilað auðu í tæp tvö ár og nú á að standa við hallaleysi fjárlaga með frekari niðurskurði í ríkisrekstrinum. Ég spyr: Hvers vegna var ekki ráðist í þá hagræðingu strax? Hvers vegna var beðið með það í tvö ár? Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Hvernig á fólkið í landinu að trúa því að ríkisstjórnin hafi stjórn á efnahagsmálunum þegar staðan er enn verri en þegar ríkisstjórnin tók við?