158. löggjafarþing — 37. fundur,  23. nóv. 2026.

leiðir til lækkunar verðbólgu og ofkæling í hagkerfinu.

[13:45]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég verð að segja enn og aftur að ég gef lítið fyrir þessa hagspeki. Eðli málsins samkvæmt er það þannig að við erum með sveigjanlegan vinnumarkað, við erum innan EES. Það þýðir að hingað kemur fólk þegar það er mikill hagvöxtur og sveigjanleikinn felur það í sér að þessi mikla fólksfjölgun — að þegar kerfið kólnar þá fer það úr landi. Það er það sem sveigjanlegur vinnumarkaður býður upp á. Það er ekki óeðlilegt. Það var keyrt hér á fólksfjölgun fyrst og fremst í vinnuaflsfrekum greinum í einhvern tíma. Það skapaði hagvöxt en það reyndi líka mikið á kerfið. Nú hefur hægt á þessari fólksfjölgun. Það sést m.a. í tölum varðandi fasteignamarkaðinn og það gerir það að verkum að dýnamíkin er þægilegri í kerfinu. Þetta er bara einföld hagfræði.

Varðandi það hvort við ætlum að koma með lausn í staðinn fyrir að eyða tímanum hér í bókun. Lausnin er komin, hún er afgreidd, hún fer fyrir ríkisstjórn á morgun. Hún kemur inn í fjárlaganefnd í kjölfarið og felur í sér hallalaus fjárlög. Við erum búin að vera að eyða tímanum baksviðs með meiri hluta fjárlaganefndar og með öðrum aðilum, m.a. í að tryggja að við afgreiðum hallalaus fjárlög. (Forseti hringir.) Við þurfum ekki að eyða meiri tíma í það, ríkisstjórnin, en núna tekur þingið við og tekur vonandi vel við enda hlýtur þetta að vera markmið formanns Miðflokksins líka.