ráðning verktaka til pólitískrar ráðgjafar.
Virðulegi forseti. Meint barátta ríkisstjórnarinnar gegn sérhagsmunum í þágu almannahagsmuna tekur á sig furðulegri myndir með hverjum deginum. Síðasta vor ákvað hæstv. utanríkisráðherra að ráða sér verktaka til að sinna pólitísku starfi fyrir hönd ráðherra á kostnað utanríkisráðuneytisins. Ráðinn var sum sé einstaklingur til að sinna pólitísku starfi fyrir utanríkisráðherra og formann Viðreisnar og greitt fyrir með opinberu fé. Einu tilvikin þar sem ráðherra er heimilt að greiða flokkssystkinum sínum úr opinberum sjóðum eru með ráðningu aðstoðarmanns ráðherra, líkt og segir í lögum um Stjórnarráð Íslands. Það var hins vegar ekki raunin þegar hæstv. utanríkisráðherra gerði samning um pólitíska ráðgjöf Heiðu Kristínar Helgadóttur vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst síðastliðinn. Þá var gerður verktakasamningur um 1.750.000 kr. á mánuði og var krafan um vinnuframlag einungis 25 klukkustundir á viku, sem ég verð að segja að er ansi góður díll fyrir 60% starf en hins vegar ekki alveg nógu góður að mati hæstv. utanríkisráðherra sem sá sig knúna til að hækka greiðslurnar til Heiðu um ríflega þriðjung. Ekki var haft fyrir því að gera þann samning skriflega heldur látið nægja að skuldbinda ríkissjóð munnlega án nokkurrar starfslýsingar til að greiða 3,5 millj. kr. úr ríkissjóði til flokkssystur sinnar.
Því vil ég í fyrsta lagi spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Á hvaða lagagrundvelli er ráðherra heimilt að ráða sér verktaka til að sinna pólitískum störfum?
Í öðru lagi vil ég spyrja hvernig laun Heiðu Kristínar voru ákvörðuð.
Í þriðja lagi vil ég spyrja: Á hvaða lagagrundvelli var ráðherra heimilt að hækka laun Heiðu Kristínar munnlega?
(Forseti (ÞSv): Forseti vill nefna við hv. þingmenn og hæstv. ráðherra að nefna fólk ávallt með fullu nafni.)