Ráðning verktaka til pólitískrar ráðgjafar.
Virðulegur forseti. Ég velti líka fyrir mér öllum þessum dylgjum og aðdróttunum. Hér sagði hv. þingmaður áðan: „ráðin án nokkurrar starfslýsingar“. Það var ekki þannig. (Gripið fram í.) Af hverju kemur hv. þingmaður hingað upp og segir að svo sé þegar verkefnin voru mjög skilgreind í samningnum? (Gripið fram í.) Að hverju er verið að ýja hér? Ég vil líka draga fram, af því að mér finnst það skipta máli, að það var ekki ráðinn aðstoðarmaður á meðan. Mér finnst það skipta máli af því að þá þurftum við ekki að greiða m.a. hin hefðbundnu biðlaun, fyrir utan að hann er hlutfallslega í rauninni kostnaðarmeiri fyrir ríkissjóð. Mér finnst það skipta máli í heildarmyndinni að útgjöld ríkissjóðs séu ekki að aukast í þessu en hv. þingmaður telur það greinilega aukaatriði. Það finnst mér vera mjög mikilvægt. Það var farið í að undirstrika, það var farið eftir öllum reglum hvað þetta varðar og alveg skýrt við hvað var miðað. Mér finnst miður að það sé verið að vega að manneskju með hálfkveðnum vísum, með dylgjum. Mér finnst bara enginn sómi að því en í rauninni kemur mér ekkert lengur á óvart sem kemur úr ranni Sjálfstæðisflokksins þessa dagana.