158. löggjafarþing — 37. fundur,  23. nóv. 2026.

stefna í vernd og nýtingu þjóðlenda.

[14:05]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég vil bara ítreka að mér finnst þetta mjög áhugaverð og mikilvæg umræða. Ég held að það sé alveg rétt að það er ekki spurning að það er svigrúm til þess að eiga frekara samtal um þetta þvert á stjórnarflokka. Forsætisráðuneytið hefur síðustu ár stigið varlega til jarðar þegar kemur að nýtingu þessara auðlinda, ég held að það megi alveg segja það, og verið virkilega vandað til verka. En það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir hér að við lifum í breyttu landslagi. Það eru aðrir aðilar sem eru núna komnir inn á markaðinn og þetta hljómar kannski aðeins öðruvísi en á sínum tíma þegar fyrst og fremst var verið að eiga við ríkisfyrirtæki. Mér finnst því bara full ástæða til þess að við förum í frekari vinnu þessu tengda. Eins og ég segi hefur þetta verið vel gert en það eru kannski að opnast aðeins fleiri verkefni þannig að ég fagna þessari umræðu.

Varðandi jarðakaupin þá veit ég ekki betur en að hæstv. atvinnuvegaráðherra sé með frumvarp um landnýtingu í vinnslu hjá sér og það er fullur stuðningur við það. Ég held reyndar að ýmislegt sem þar er rætt sé nú frekar þverpólitískt og eigi stuðning víða í þessum sal. Vonandi kemur það því bara fram sem fyrst en ég get ekki lofað neinni tímasetningu.