ársreikningar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir brýninguna. En ég myndi telja það til bóta, ef minni hlutinn vill koma hér með einhverjar breytingar og einhverjar ábendingar, þá er mjög gagnlegt að koma með það fram á nefndarfundum í stað þess að þær komi fram í skjóli nætur. Ég held að það hefði verið áhugavert að fara yfir þessar breytingar í nefndinni. Við fórum yfir nefndarálit meiri hluta þar sem er tekið á öllum þessum málum sem var hér farið yfir og gerð grein fyrir afstöðu meiri hlutans. En þetta kemur svo sem ekkert við fundarstjórn forseta, sem er bara afbragð. En ég vildi bara koma þessum sjónarmiðum á framfæri þar sem hv. þingmaður tók þetta upp hér.
(Forseti (ÞSv): Forseti þakkar allt sem greiðir fyrir þingstörfum og sagt er hér í pontu. [Hlátur í þingsal.] )