158. löggjafarþing — 37. fundur,  23. nóv. 2026.

ársreikningar.

77. mál
[15:03]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég er komin hérna upp í seinna skiptið af því að ég er að velta því fyrir mér hvort hv. þm. Pawel Bartoszek sé eitthvað að misskilja og þar með auðvitað að villa fyrir í umræðunni þegar hann gaf í skyn að við værum eitthvað að kvarta yfir tilskipun. Allar okkar breytingartillögur snúa að því að það er annaðhvort verið að gullhúða eða það er ekki verið að nýta svigrúm. Allar tillögurnar snúa að því. Þannig að ég vildi leiðrétta þetta, frú forseti.