ársreikningar.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Bergþór Ólason stal af mér glæpnum og benti á mikilvægan punkt í þessu sem ég tel ekki eftir mér að ítreka hér, sérstaklega í ljósi ummæla forseta hér undir þessum lið, um að málið færi aftur til nefndar milli 2. og 3. umræðu. Mér fannst forseti gefa einhvern ádrátt um að þar væri hægt kannski að taka inn þessar breytingartillögur sem hér hafa verið felldar. En eins og hv. þm. Bergþór Ólason benti á þá er það nefnilega ekki hægt. Þær breytingartillögur sem hafa verið felldar við 2. umræðu verða ekki bornar upp aftur. Þetta er kannski mikilvægt fyrir menn að hafa í huga. Ég tek undir brýningu þingmannsins um að menn hugi að einhverju verulega breyttu orðalagi vegna þess að mér sýnist við þessa atkvæðagreiðslu að hér hafi verið skautað léttilega yfir einhver atriði og jafnvel atriði sem blasir við að þurfi að endurskoða og breyta m.a. ákvæði um afturvirkni þessara laga.