158. löggjafarþing — 37. fundur,  23. nóv. 2026.

ársreikningar.

77. mál
[15:05]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Við ræðum fundarstjórn forseta og hvernig við getum liðkað til fyrir því að þingstörf geti gengið nokkuð liðlega fyrir sig. Nú sit ég í tveimur nefndum, þ.e. annars vegar umhverfis- og samgöngunefnd og hins vegar í velferðarnefnd og þar hefur okkur í minni hlutanum og meiri hlutanum tekist ágætlega að vinna saman og þar hafa verið teknar breytingar til umræðu og endurskoðunar milli 2. og 3. umræðu. Þannig að ég mælist til þess, frú forseti, að forseti hlutist til um það að nefndarformenn sýni liðlegheit og vinni þetta með minni hlutanum og að minni hlutinn og meiri hluti vinni nú saman til að liðka fyrir þingstörfum. Það er vel hægt. Það höfum við sýnt í umhverfis- og samgöngunefnd undir forystu hv. þm. Maríu Rutar Kristinsdóttur og sömuleiðis undir stjórn Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur í velferðarnefnd.