158. löggjafarþing — 37. fundur,  23. nóv. 2026.

ársreikningar.

77. mál
[15:06]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég skil vel að hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir komi hingað upp og vilji hafa gullhúðun og vilji að ríkið hafi meiri ítök frekar en minni. Hv. þingmaður er vinstri maður. Þetta er trú vinstri manna, að ríkið viti betur en þegnarnir og ríkið eigi að hafa meiri völd en minni í samfélagi okkar. Ég skil það, það er hennar trú og það er hugmyndafræði hv. þingmanns. En hafi landsmenn einhvern tímann verið í vafa um það að Viðreisn væri orðin dótturfélag hjá Samfylkingunni þá held ég að ræða hv. þingmanns og þingflokksformanns Viðreisnar, Pawels Bartoszeks, hafi tekið af allan vafa um það að Viðreisn er bara orðin útibú frá Samfylkingunni. Frelsið, einstaklingsframtakið, minna ríki, minni ríkisafskipti (Forseti hringir.) eru orð sem eru löngu horfin úr stefnuskrá Viðreisnar.