orð þingmanns í störfum þingsins.
Virðulegur forseti. Ég kem hingað upp til að ræða sama málefni og fer fram á það við forseta að hún ræði við þingflokksformenn hvernig við tölum um fólk sem er ekki hér í þingsal til að verja sig. Ég viðurkenni að þegar hv. þm. Jens Garðar Helgason hóf sína ræðu, var farinn að lýsa því sem var rætt um fyrir kosningar sem svokallað ehf.-gat og var farinn að tala einhvern veginn gegn því, þá fannst mér það áhugavert, flokkurinn sem talaði og skrifaði jafnvel grein um að stækka svokallað ehf.-gat. En svo tók ræðan því miður leiðinlega beygju þegar farið var að dylgja um skattskuldir og jafnvel skattundanskot einstaklinga sem eru ekki hér í sal til að verja sig.
Þá verð ég að spyrja, hæstv. forseti: Á hvaða vegferð er Sjálfstæðisflokkurinn? Á hvaða vegferð er Sjálfstæðisflokkurinn sem á að standa vörð um frelsi einstaklinga þegar hann kemur hingað upp í ræðustól og er að dylgja um þegna þessa lands úti í bæ sem geta ekki varið sig? Og á hvaða vegferð er Sjálfstæðisflokkurinn sem reynir að gera það tortryggilegt að fólk stofni fyrirtæki, taki áhættu, hugsanlega tapi á sínum rekstri, endi í skattskuld og það sé einhvern veginn gert annaðhvort glæpsamlegt eða haft að háði og spotti? (Forseti hringir.) Þetta er ekki Sjálfstæðisflokkurinn sem ég ólst upp við.