orð þingmanns í störfum þingsins.
Frú forseti. Ég heyri að sumir þingmenn Sjálfstæðisflokksins verja þessi tilteknu ummæli varaformanns flokksins. Það finnst mér miður að heyra. Höfum það alveg á hreinu að það er fullkomlega eðlilegt að ræða þetta tiltekna mál. Það er eðlilegasti hlutur í heimi. Það er eðlilegasti hlutur í heimi að spyrja ráðherra út í þetta í fyrirspurnatíma. Það er hins vegar ekki eðlilegt að leggja þannig út frá málinu að úr verði harkalegar dylgjur gagnvart einstaklingi sem getur ekki varið sig hér í þessum ræðustól. Það er það sem við erum að gagnrýna, ekki það að verið sé að spyrja spurninga, ekki það að menn gagnrýni það hér hvernig ráðherra svari eða annað, heldur það hvernig er verið að dylgja um þá sem fjarstaddir eru og geta ekki varið sig hér í þessum ræðustól. Ég skora á Sjálfstæðisflokkinn að gera greinarmun á þessu tvennu: að fagna því að það sé verið að tala um málið efnislega en leyfa sér jafnframt að gagnrýna það þegar menn fara fram úr sér í dylgjum um fjarstatt fólk. Við eigum ekki að tala svona hér úr ræðustól Alþingis.