orð þingmanns í störfum þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar að taka undir það sem hv. þm. Sigmar Guðmundsson sagði hér: Þessi fundarstjórn snýst ekki um þennan samning sem slíkan. Hún snýst um að hérna skuli koma upp varaformaður Sjálfstæðisflokksins og dylgja um fólk úti í bæ, bara almenna borgara. Það er dylgjað um þeirra persónulegu málefni í ræðu hér á hinu háa Alþingi sem setti bara töluvert niður við þetta. Það er það sem er málið. Ræðið þetta mál eins og þið viljið en látið persónur, bara venjulega borgara þessa lands — hlífið þeim við því að láta dylgja um þá í ræðustól Alþingis. Það er ekki í lagi. Þið getið tekið þessa umræðu við ráðherra. Þið getið ýtt á eftir svörum. Þið getið gert þetta allt saman. Þið getið ekki leyft ykkur að dylgja með þessum hætti um fólk sem býr úti í bæ.
(Forseti (ÞSv): Forseti vill minna þingmenn á að ávarpa ávallt forseta.)