158. löggjafarþing — 41. fundur,  25. nóv. 2026.

Störf þingsins.

[13:37]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég vil gera hér að umtalsefni náttúru- og innviðagjaldið, sem núna er í vinnslu í atvinnuveganefnd, og langaði aðeins að hnykkja á ákveðnum atriðum sem mér finnst skipta mjög miklu máli. Þegar við erum að tala um þetta gjald þá erum við að tala um auðlindagjald. Þegar við erum að tala um auðlindagjald þá erum við að tala um að það sé greitt fyrir nýtingu á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar að mínum dómi. Þá þarf að vera alltaf skýrt, þegar við erum að innheimta auðlindagjöld, að gjaldtakan sé skýr og merkt sem auðlindagjald, þ.e. það er ekki hægt að fela þetta gjald inn í almennu tali um skattspor greina, hvort sem við erum að tala um sjávarútveg, ferðaþjónustu eða annað í þeim dúr. Þetta þarf með öðrum orðum að vera þannig, til að almenningur sjái að það sé verið að greiða fyrir nýtingu auðlindar, að gjaldtakan sé tiltölulega skýr að þessu leyti. Síðan getum við endalaust tekist á um það hversu hátt gjaldið eigi að vera eða hvert fyrirkomulagið eigi að vera að öllu leyti. En mér finnst þetta vera grundvallaratriði og að því leytinu til erum við svolítið í sömu umræðu hér með náttúru- og innviðagjaldið og við vorum í þegar við ræddum um veiðigjöldin hér á sínum tíma. Mér finnst líka skipta máli að svona gjaldtaka sé með þeim hætti að þjóðin sjái hana og að hún sé sátt við hana. Við erum að sjá það í nýrri könnun sem hefur verið gerð að 72% þjóðarinnar styðja þessa tilteknu gjaldtöku með þeim hætti sem hún er skipulögð. En auðvitað er það síðan okkar í atvinnuveganefnd að taka utan um þá gagnrýni sem á gjaldtökuna kemur og reyna að samræma vel þessi sjónarmið um almenna gjaldtöku fyrir nýtingu á auðlind við þau sjónarmið sem fyrirtæki á svæðinu eru að benda á í nefndarvinnunni.

Ég vil líka nefna það hér að þingflokkur Viðreisnar fundaði með Samtökum ferðaþjónustunnar í gær. Það var gríðarlega gagnlegur og góður fundur. Svona samráð og samtal um svona þingmál þarf ekki bara að eiga sér stað inni á þinginu heldur getur það verið á víðari grunni og það er gott veganesti inn í vinnuna fram undan.