Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í umfjöllun RÚV og Vísis sem birtist 20. nóvember síðastliðinn kemur fram að Þráinn Jónsson, framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur, hafi gagnrýnt eftirlit Samgöngustofu með smíði og ástandi plastbáta harðlega. Það er mikið áhyggjuefni ef þetta eftirlit er ekki nægilegt. Íslenskir sjómenn eiga að geta treyst því að bátarnir sem þeir fara á sjó með séu öruggir. Nýleg umræða um smíði og eftirlit með plastbátum hefur vakið upp mikilvægar spurningar um burðarþol og þykkt plastskrokka, styrkleika stýribúnaðar og hvort nægilega sé fylgst með breytingum og viðgerðum á bátum. Þessum spurningum þarf að svara; líf og öryggi sjófarenda er í húfi. Við þurfum að fá svör við því hvort Samgöngustofa sé með nægilegt aðhald í þessum efnum og hafi til þess nauðsynleg úrræði. Eru skoðanir nógu ítarlegar og óháðar? Hvernig er tryggt að bátar sem uppfylla ekki öryggiskröfur séu ekki settir á sjó? Ég tel mikilvægt að ráðherra láti fara fram óháða úttekt á plastbátum í íslenska flotanum, sérstaklega á þeim bátum þar sem grunur leikur á að gallar séu í smíði og að það sé ekki nægjanlegt burðarþol. Einnig þurfum við að tryggja að skoðanir séu framkvæmdar af hæfum og óháðum aðilum og að niðurstöður þeirra séu aðgengilegar.
Virðulegi forseti. Við megum aldrei bíða eftir alvarlegu sjóslysi áður en brugðist er við ábendingum. Öryggi sjómanna verður að vera í fyrsta sæti. Það er á ábyrgð stjórnvalda að tryggja að eftirlitið sé raunverulegt, virkt og nægjanlegt. Þetta snýst fyrst og fremst um mannslíf. (Forseti hringir.) Umhverfis- og samgöngunefnd stofnaði frumkvæði um þessa eftirlitsþætti í gær sem vonandi leiðir til þess (Forseti hringir.) að fast verði tekið á þessum málum.