netöryggisvottun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti með breytingum á frumvarpi til laga um netöryggisvottun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.
Nefndin leggur til eina breytingu á frumvarpinu. Eins og fjallað er um í nefndaráliti meiri hlutans við 2. umræðu málsins var lagt til í minnisblaði innviðaráðuneytisins, dagsettu 16. október 2026, að gerð yrði breyting á reglugerðarákvæði frumvarpsins í 14. gr. Sú breytingartillaga var gerð í þeim tilgangi að setja inn fullnægjandi heimild í frumvarpið til að innleiða bæði framkvæmdarreglugerðir og breytingarreglugerðir er varða reglugerð (ESB) 2019/881. Í því skyni var lagt til að sérstakt innleiðingarákvæði yrði fest í lög varðandi framkvæmdarreglugerðir og breytingarreglugerðir. Eftir nánari umfjöllun nefndarinnar og að viðhöfðu samráði við ráðuneytið er lagt til að orðalag ákvæðisins takmarkist við að ráðherra verði heimilt með reglugerð að innleiða einvörðungu reglugerð (ESB) 2025/37 um stýrða öryggisþjónustu sem breytir efni reglugerðar (ESB) 2019/881, og framkvæmdarreglugerðir.
Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn María Rut Kristinsdóttir, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Ingibjörg Davíðsdóttir, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Ólafur Adolfsson, Sigurður Helgi Pálmason og Þórarinn Ingi Pétursson.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka nefndarfólki fyrir gott og farsælt samstarf við vinnuna í þessu máli sem er netöryggisvottun, mál nr. 98. Það er mikilvægt að við getum unnið saman þvert á flokka og átt málefnalegar umræður og lagt okkur fram um að ná góðri niðurstöðu. Ég vil sérstaklega þakka fyrir vönduð vinnubrögð, góðar umræður og þann vilja sem hefur verið í nefndinni til vinnu í málinu, því til heilla. Netöryggi verður sífellt mikilvægara í nútímasamfélagi sem og stafræn þjónusta. Fyrirtæki, stofnanir og almenningur þurfa að geta treyst því að kerfi og upplýsingar séu vel varin. Með skýrum reglum og traustri netöryggisvottun er hægt að auka öryggi, byggja upp traust og styrkja viðnámsþrótt samfélagsins gegn netógnum. Þetta mál sýnir mikilvægi þess að Alþingi sinni þessum málaflokki af ábyrgð og framsýni.
Að lokum vil ég enn og aftur þakka nefndarfólki fyrir samstarfið, starfsfólki nefndarinnar fyrir góða vinnu og öllum þeim sem að málinu komu. — Takk fyrir.