19.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (1002)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Einar Jónsson:

Það gladdi mig mjög, er eg heyrði háttv. framsm. segja, að þessi viðaukatill. um styrk til hr. Brynjólfs Björnssonar tannlæknis, hefði komið til umtals í nefndinni, og að hann persónulega væri henni ekki mótfallinn.

Þótt ekki sé nema sjálfsagt, og eðlilegt að menn standi á móti auknum útgjöldum af fremsta megni, ef þau eru óþörf, finst mér að ekki sé vel hægt að mæla á móti þessari tillögu með sanngirni. Þessi maður stundar tannlækningar hér í bænum, og er sérlega mikið sóttur.

En þess ber vel að gæta, að í hóp þeirra manna, er til hans leita, eru margir bláfátækir, og hafa ekkert til að borga með; hann hjálpar þessvegna oft þeim er aldrei geta borgað, og eyðir að því leyti tíma og vinnu, sem hann vitanlega má ekki missa, án þess að hafa nokkuð fyrir.

Eg álít þetta fé — 1000 kr. hvort árið, gegn ókeypis læknishjálp, ekki mega minna vera.

Og loks finst mér eitt að athuga, sem sé það, að hér á í hlut maður, sem hefir aldrei áður beðið um landssjóðsstyrk, en hefir komist í gegn um langt og strangt nám, með mestu sæmd, — fátækur bóndason — tilhjálparlaust að öllu. Vona eg því að háttv. deild taki tillögu þessari vel.