19.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í B-deild Alþingistíðinda. (1005)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Framsögumaður (Björn Jónsson):
Þetta sem háttv. þm. Vestm. (J. M.) var að tala um, þóknun til geðveikralæknisins fyrir kenslu á læknaskólanum, þá er fjárlaganefndin því meðmælt, að það verði veitt. Öðru máli er að gegna með ritfé bæjarfógeta í Reykjavík, að eg tel það ekki svo mikinn sparnað, að eg telji það ekki á sama standa, þótt sú tillaga fjárlaganefndarinnar verði feld. Þó minnir mig, að þessar 1400 kr. hafi að eins verið veittar í fjárlögum, og þess vegna vafamál, hvort lagaheimild er fyrir að veita embætti með þeim hlunninda-auka.
Það er kunnugt, að embætti þetta er mjög tekjuhátt og mundi vera mjög lífvænlegt, þó að honum væri slept.