19.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í B-deild Alþingistíðinda. (1007)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Ráðherrann (H. H.):

Skrifstofufé þetta sem hér er um að ræða, hefir aldrei verið veitt sem persónuleg launaviðbót. Það hefir verið gengið út frá því, sem vissu, að það fylgdi embættinu, og þess vegna hefir embættið verið veitt með þessu skrifstofufé, og ekki hægt að taka af því í tíð þessa bæjarfógeta, nema með hans samþykki.