17.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (101)
4. mál, landsreikningurinn 1906-1907
Eiríkur Briem:
Það er alveg rétt, sem háttv. 1. kgk. þm. tók fram, að það hefir ekki verið venja að vísa þessu máli til fjárlaganefndarinnar, en úr því að fjáraukalögunum fyrir 1906 —07 — og því var eg á móti — var vísað þangað, þá er það ekki nema sjálfu sér samkvæmt, að þetta mál sé látið fara þangað líka.