19.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í B-deild Alþingistíðinda. (1032)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Jón Ólafsson:

Það er að eins örfátt, sem eg vil minnast á viðvíkjandi þessari gr. (13.) fjárl.

Háttv. fjárlaganefnd leggur til að fella liðinn A 3. fjárveitingu til póstvagnferða, og draga hann undir næsta lið á undan. Eg vil vekja athygli á því, að ekki er gert ráð fyrir, að liðurinn hækki að sama skapi; það hefði átt að vera, líkt og A. 1. b. er lagt til að verði hækkað vegna þess að laun póstafgreiðslumanna hækka.

Háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.), minnist á, að komið hefði til tals að fella E 6, fjárveitingu til vitanna við Hafnarfjörð. Þetta er að vísu ekki stór fjárveiting, en full ástæða er þó til að fella hana. Þegar þessi fjárveiting var veitt fyrst, er þess að gæta, að Hafnarfjörður var ekki orðinn kaupstaður. Allir kaupstaðirnir kosta sína innsiglingarvita, en ef landssjóður er látinn kosta þessa vita við Hafnarfjörð, verður sú afleiðingin, að allir kaupstaðirnir, Reykjavík, Ísafjörður, Akureyri og Seyðisfjörður, koma með sína vita á landsjóð. Mér heyrðist hinn háttv. þm. nefna Arnarnesvitann, en sá viti er ekki innsiglingarviti; hann er fyrir allt Djúpið. Þessu vildi eg vekja athygli á, og er það mér ærin ástæða til að greiða atkv. móti þessari fjárveitingu.

Eg skal ekki skipta mér af deilunni milli háttv. þm. G.-K. (B. Kr.) og þm. Rangv. (E. P., E. J.). En eg get ekki varizt að geta þess, að mér þótti broslegt að heyra samanburð hans á Rangá og Selalæk. Eg hefi 5 sinnum farið yfir þann læk sitt hvert sumarið og aldrei fundið merki þess, að hann væri nokkur torfæra. Vitaskuld er það, að það er engin sú smáspræna til á þessu landi, sem getur ekki bólgnað upp að vetrarlagi. Sami háttv. þm. vildi eins og slá plástri á sár Rangæinga með svifferjum. Eg vil ekki ætla, að þetta hafi verið yfirborðsástæða. En ef nefndin hefði lagt til að veita fé til svifferju, þá hefði eg ætlað, að hugur fylgdi máli. Annars er víst allt tal um þessa brú út í bláinn og kemur ekki að neinu gagni, ef svo er, að skipun hafi komið frá þeim, sem lögum ræður og lofum, um að fella fjárveitingu til brúarinnar.

Eg er samþykkur háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) um það, að till. um að tillög héraðanna til símanna falli niður, hefði átt að koma við 3. umr., því að þá hefði háttv. fjárlaganefnd getað haft til áætlun um alla síma landsins. Eg er samþykkur því, að þessa reglu um símana hefði aldrei átt upp að taka. Að minni hyggju hefði verið miklu heppilegra að taka lán í eitt skipti fyrir öll til allra síma landsins, svo að lánið hefði verið til langs tíma, afborgast á 40—50 árum Þá mundi kostnaðurinn hafa dreifst og niðjar vorir tekið þátt í honum, enda munu þeir hafa símanna mest not.

Eg mundi telja heppilegt, að fjárlaganefndin kæmi með símalög fyrir 3. umr., því ætti nú að fella þessa till. um héraðatillögin. En þótt létt væri af héruðunum símatillögum, væri þó ekki rétt að borga þeim héruðum aftur, sem eitthvað hafa borgað af tillaginu. Það er sanngjarnt, að þau fái það ekki aftur vegna þess hagræðis að hafa fengið símann fyr. Vitanlega féllu niður greiðslur þeirra í framtíðinni.