19.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (1033)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Eggert Pálsson:

Samþingismaður minn hefir að vísu svarað þeim athugasemdum, sem síðast komu fram móti brúargerðinni á Rangá. En eg vil að eins bæta því við, að háttv. 1. þm. G.-K. (R. Kr.) hlýtur að hafa talað af ókunnugleik miklum, þar sem hann vildi leggja að líku Ytri-Rangá og 3 aðrar ár, er hann taldi upp: Selalæk, — sem reyndar heitir Varmadalslækur, þar sem alfaravegurinn liggur yfir hann, og bendir það eitt með öðru á ókunnugleik hins háttv þm.— Eystri-Rangá og Þverá.

En hér getur að réttu lagi enginn samjöfnuður átt sér stað. Varmadalslækur og Eystri-Rangá eru smávötn í samanburði við Ytri-Rangá. Þau vatnsföll eru sjaldnast til nokkurs verulegs eða stórkostlegs tálma fyrir vagnflutningum. Vatnsmegnið er þar miklu minna og botninn góður, að minsta kosti ógrýttur.

Um Þverá er það að segja, að naumast mun tiltök að brúa hana, að minnsta kosti ekki sem Þverá, og mikið þyrfti að gera, ef ætti að brúa alt í einu lagi: Þverá, Affallið og Markarfljót.

Þá mintist hv. 1. þm. G.-K. (R. Kr.) á svifferju, er nota mætti á Rangá í stað brúar.

Eg verð nú að játa, að eg er ekki verkfróður maður og get því ekki um það dæmt, hvort tiltök væri að gera þetta eða ekki, en hitt veit eg, að áin er grunn við land beggja megin, og þyrfti þá að gera brúarstúfa eða stöpla langt út á ána beggja megin til að geta komið svifferju við, og þá myndi verða minst eftir af ánni sjálfri, er því væri lokið, og væri þá jafngott að gera brúna að öllu leyti, úr því að svo langt væri komið og svo miklu til kostað.

Hinn háttv. þm. hafði það eftir póstinum, að Rangá væri lítill farartálmi. En veit hann þá ekki, að pósturinn — einmitt þessi heimildarmaður þm. — hefir aldrei á æfi sinni komist með póstvagn yfir ána, heldur orðið að fá sér hesta frá Ægissíðu til Odda, til að koma póstflutninginum áfram, þegar hann hefir flutt hann á vagni austur.

Þessi aths. um það, hversu lítill farartálmi Ytri-Rangá sé, er þm. þykist hafa frá póstinum, hefði óneitanlega litið öðruvísi út, ef hún hefði komið frá manni, sem þráfaldlega hefir átt í stríði við þessa erfiðleika. En það er ómögulegt að nokkur sá maður, sem til þekkir, geti látið sér slíkt um munn fara, að Ytri-Rangá sé enginn farartálmi. Það hlýtur sérhverjum, sem er nægilega kunnugur að finnast það óforsvaranlegt, að leggja hesta í þetta, þótt svo verði að vera á meðan engin er brúin.

Það væri tilfinnanlegt, ef menn sakir brúarskortsins þyrftu að fara að leggja niður aftur vagnflutningana, sem eru þó alment taldir í framfaraáttina, og neyðast svo til að flytja allan farangur á klökkum, eins og áður fyr. Með því að líka þegar um þungar byrðar er að ræða, þá má það heita ógerningur, t. d. kvartél rjómabúanna, sem menn verða að hafa með vissri stærð vegna smérsölunnar til Englands. Smérið er 100 ? í hverju kvartéli, og með trénu verður það um 120 ? — Auk þess er kvartélið bunguvaxið og fer því mjög illa á hesti, hvílir mest á einum bletti á síðu hestsins, enda voru og eru hestarnir oft drepmeiddir eftir.

Að áin sé ekki lausríðandi mönnum farartálmi, það má að vísu til sanns vegar færa á sumrin, nema ef um viðvaninga er að ræða. Þó hefir það komið fyrir, að hún hefir reynst það. Merkur vísindamaður norskur, er ferðaðist austur í Rangárvallasýslu einmitt í því skyni að skoða hina merku sögustaði þar, varð að bíða fyrir utan Rangá á meðan sonur hans fór austur, af því að hann treysti sér ekki til að ríða ána.

Í annan stað er áin oft ill yfirferðar á vetrardag og þann dóm kvað Myklestad gamli upp, er rétt að segja hafði mist hest sinn í hana, að það væri einhver sú versta á, sem hann hefði fyrir hitt. Ána leggur sem sé ekki, en skarir verða stórar og menn neyðast til að hrinda hestunum ofan fyrir skarirnar og er vatnið þá alloft í taglmark, þegar ofan í kemur.

Ef menn eru þessu vanir — eins og Rangæingar — þá láta þeir sér það ekki fyrir brjósti brenna, heldur fara sinna ferða fyrir því. En hitt þykist eg viss um, að sumum þeim þingm., er um þetta hafa talað, mest og gert lítið úr Ytri-Rangá sem torfæru yrði skotaskuld úr því að komast yfir.

Það er því blátt áfram út í loftið talað og ekki svaravert margt af því sem hér hefir verið sagt mót þessari brúargerð. Háttv. 2. þingm. S.-Múl. (J. Ó.) gat þess, að alt hjal 1. þingm. G.-K. um dragferju á Ytri-Rangá og öðrum ám í Rangárvallasýslu mundi eiga að vera nokkurskonar plástur, er hann vildi leggja á sárin og er sú tilgáta alls ekki ósennileg. En slíkur plástur kemur að minni hyggju að litlu haldi. Og víst er um það, að hann græðir ekki, þar sem vitanlegt er, að hér er að eins að ræða um ráðagerðir tómar, er aldrei verða að framkvæmd.

Það verður ekki úr skafið, að ef brúarmál þetta verður nú drepið, þá er rofið það fyrirheit, sem fyrir löngu hefði átt að vera búið að efna, og væri líka búið að efna, ef undirbúningur hefði verið nægur.

Menn hafa nú viðurkent frá báðum hliðum, að undirbúningurinn sé fenginn góður og nægur, og ef brúin verður nú samt sem áður ekki lögð, þrátt fyrir þennan góða undirbúning og hiklausar tillögur verkfræðingsins, þá er ómögulegt að skoða það og verður aldrei skoðað öðruvísi en refsing á Rangæinga fyrir þeirra pólitisku afstöðu.