20.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í B-deild Alþingistíðinda. (1048)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Jón Magnússon:
Eg ætla að minnast á 2 breyt.till., sem eg hefi komið með. Það er breyt.till. um styrkveitinguna til Þórðar læknis Sveinssonar, sem eg veit, að ekki muni mæta neinni verulegri mótspyrnu í nefndinni, með því að háttv. fjárlaganefnd er þessari breyt.till. meðmælt. Eg þarf ekki annað, en láta þess getið, að Þórður læknir Sveinsson hefir um undanfarna vetur haft kenslu nokkra við læknaskólann, borgunarlaust, en án nokkurar skuldbindingar; nú virðist það ekki sanngjarnt, að heimta af honum starf fyrir enga borgun. Sú þóknun, er farið er fram á, er sómasamleg, og ekkert meira. Vona eg því, að breyt.till. verði samþykt.
Hin till. er um styrk til að halda áfram útgáfu alþýðu-lagasafnsins, og hefir það dregist alt of lengi, að framhaldið eftir 1900 kæmi út. Styrk þann, 800 kr., er um er beðið, þarf einungis fyrra árið. Háttv. fjárlaganefnd hefir einnig tekið vel í þessa breyt.till., og skal eg því láta mér nægja, að skírskota til álits hennar.
Svo vildi eg leyfa mér, að minnast lítið eitt á önnur atriði.
Um fræðslumálastjórann vil eg viðurkenna það, að sýslunarheiti hans »umsjónarmaður fræðslumálanna« sé ekki sem liðlegast heiti, en hinu verð eg að mótmæla, að hann eigi að heita eða vera að eins ráðunautur stjórnarinnar um fræðslumál, eða nokkurs konar aðstoðarmaður, eða embættismaður í stjórnarráðinu. Verksvið hans er að vísu enn eigi ákveðið, en að minni skoðun, þá ætti þessi maður að verða sem sjálfstæðastur embættismaður landsins, auðvitað undir yfirumsjón stjórnarráðsins; það mundi heppilegast fyrir störf þau, er honum eru falin, og þá mundu þau einmitt verða greiðlegar af hendi leyst, en ef hvert erindi fræðslumálum viðvíkjandi þyrfti að koma til stjórnarráðsins. Eins og nú er, hefir fræðslumálastjórinn afarmikil bréfaskifti, og miklar skriftir, auk þess sem nauðsynlegt er, að hann vinni úr miklum hagfræðislegum skýrslum, er safnað hefir verið og safna verður um fræðslumál landsins. Hann er manna færastur til að vinna úr þessum skýrslum, svo að gagni komi, og þó aðrir gerðu það, mundi það kosta eitthvað. Eg verð að telja það illa ráðið, ef styrkurinn væri feldur burtu. Það er öll ástæða til að hlynna að eftirliti með skólum hér á landi. Þjóðverjar hafa það orðtak: án eftirlits, enginn skóli. En slíkt náið eftirlit getur stjórnarráðið ekki haft, það verður að hafa embættismaður eða embættismenn, sem hafa þetta að aðal-starfi.
Þá vildi eg minnast nokkrum orðum á Flensborgarskólann. Það er mikill vandi, að vita, hvað gera skuli, þegar um þann skóla er að ræða. — Hann er ekki landskóli, en lifir þó ekki af neinu öðru en landssjóðsfé. Eg segi engu öðru, af því að eins og háttv. 1. þm. G.-K (B. Kr.) gat um, þá er eign skólans — eða ávöxtur af henni — einar 200 kr. og hús skólans lítilfjörlegt og þar að auki að miklu í skuld. Það hefir verið sagt, að skólanum yrði ekki haldið áfram með þeim styrk, er stjórnarfrumv. ætlar honum, það sé ómögulegt. Það er nú reyndar erfitt að vita hið rétta í þessu efni. Það ætti beint að taka frá rótum, skipun og allan hag Flensborgarskólans, athuga, hvort hann eigi að vera reglulegur gagnfræðaskóli, sem hann er í rauninni alt af að sperrast við að vera, en þá væri hann 3. gagnfræðaskóli landsins; það gæti komið til tals, að gera skólann að lýðháskóla, en ekki get eg verið samdóma hv. þm. G.-K. (B. Kr.) um, að gera eigi skólann að eins að unglingaskóla. En eitt virðist mér auðsætt, að ekki sé forsvaranlegt, að halda sífelt áfram að veita meira og meira fé til þessa skóla, nema skólinn komist þá undir yfirstjórn landsstjórnarinnar. Því er það skoðun mín, að áður en veittar séu 7000 kr. til skólans, verður hann að vera undir umsjón og eftirliti landsstjórnarinnar og búið er að ákveða til fullnustu hlutverk hans. Nú er skólinn fyrir utan fræðslu áætlun þá, sem vér annars byggjum á. Það er satt, að skólinn var stofnaður í fyrstu af gerðarlegum og góðum hug, en eftir þeim miklu kröfum, sem nú eru gerðar af skólans hálfu, þá nær gjöfin skamt. Skólinn hefir gert gagn; það er satt, — en nú er svo komið, að kröfur hans til landssjóðs eru þannig, að verði þeim sint, þá hlýtur skólinn, að verða landsskóli.
Háttv. framsm. (Sk. Th.) gat þess, að til skams tíma hefði enginn styrkur verið veittur af landssjóði til barnaskóla í kaupstöðum, og að háttv. fjárlaganefnd því hafi þótt vel mega færa niður styrkinn frá því er í stjórnarfrumv. stendur; það er rétt, það er nýr siður að veita barnaskólum í kaupstöðum styrk. En af hverju gerði þingið þetta? Af því, að þingið sjálft hafði lagt skólaskyldu á kaupstaðina, og af því leiddi, að þinginu varð skylt, að leggja nokkuð af mörkum til barnaskóla í kaupstöðum.
Það var víst árið 1907 eða öllu heldur 1908, að skólaskyldan komst á, og styrkurinn því nýr, en minni má hann ekki vera.
Svo vil eg stuttlega minnast á br.till. háttv. þgm. Dal. (B. J.). Hann vill færa til styrk Jóns sagnfræðings þannig, að honum sé bætt við laun hans. En þetta tel eg mjög óhyggilegt, með því að eg lít svo á, að laun 1. aðstoðarbókavarðar séu eftir atvikum sómasamleg og ekki sé ástæða til að hækka þau. Vinnutími hans er ekki ýkjalangur, en efni vor ekki svo, að vér höfum ráð á að launa nema sómasamlega.
En hitt er rétt að Jón sagnfræðingur fái persónulegan styrk til að halda áfram sögurannsóknum sínum, söguritun, sem þjóðinni er kær. En hækkun á launum aðstoðarmannsins yrði til þess, að launahækkunin fylgdi að sjálfsögðu starfanum jafnan framvegis.
Nú er einmitt ástæða til að fara varlega, þegar verið er að ræða um að hækka eða bæta við laun, nema um hinar sanngjörnustu kröfur sé að tala. Auðvitað verður að gera úrlausn, þar sem ekki verður hjá því komist, en alt í hófi.
Hins vegar get eg ómögulega séð, að nein sanngirni eða neitt vit sé í því, að taka nú styrkinn af Boga Melsted, þar sem hann er nú byrjaður að rita og gefa út, svo að almenningi megi að gagni koma, það sem hann hefir verið að safna til í mörg ár.
Háttv. framsm. (Sk. Th.) sagði eitthvað í þá átt, að styrkurinn til þessa manns hefði verið veittur á fjárlögunum til þess að styrkja samflokksmann þeirra, er ráðið höfðu áður lögum og lofum á þinginu. Eg man nú ekki glögt, hvenær heimastjórnarflokkurinn hófst, hygg að það hafi verið 1901, en það var rétt um 1890, að farið var að veita cand. mag. Boga Th. Melsted styrk á fjárlögunum til að rita Íslandssögu. Því getur ástæðan til fjárveitingar þessarar áður fyrri heldur ekki hafa verið sú, sem háttv. framsm. (Sk. Th.) gaf í skyn. Styrkurinn hefir ekki verið veittur þessum heiðursmanni vegna flokksfylgis, en sannleikurinn er sá, að nú á að svifta hann styrknum, af því að hann er í pólitík mótstöðumaður þess flokks, er nú ræður í þinginu, og þyrnir í augum flokksins.
En þegar til þess kemur að athuga, hvort Bogi Th. Melsted eigi skilinn styrk af landssjóði, þótt það atriði hafi auðvitað enga þýðing, eins og nú á stendur, — þá verð eg að segja, að eg veit fáa, sem fremur eigi styrk skilið til starfa sinna. Þessi maður er vakinn og sofinn í því að starfa að því, sem hann álítur að alþjóð megi að sem mestu gagni verða, hann er ósérhlífinn og ósérplæginn, og hefir sýnt þetta á margan hátt. Og verk það er maðurinn er að vinna, aðal-lífsstarf þessa manns, er eftir dómi manna, er vit hafa á, mjög mikils virði. Það er því óskynsamlegt að reyna nú, með því að kippa styrknum burtu, að eyðileggja verk þetta, sem þegar er byrjað, miklu hefir verið til kostað, og annars mætti að miklu gagni koma.
Ekki finst mér það heldur rétt hjá háttv. fjárlaganefnd að færa niður styrkinn til Sigfúsar Blöndals; eg hefi séð verk hans, það er þegar unnið og er það mikið. Við bókasafnið hefir hann ekki svo mikil laun, að hann geti unnið að orðabókinni án styrks — og 600 kr. á ári eru í rauninni það minsta, sem hægt er að bjóða fyrir slíkt starf. Og styrk annarsstaðar ættum vér ekki að biðja eða þurfa að treysta á.
Þegar þessi styrkur er borinn saman við þann styrk, er Jóni ófeigssyni er ætlaður, þá eru 600 kr. sannarlega ekki of mikið. Ekki svo að skilja, að eg vilji mæla á móti 1000 kr. styrkveitingunni til Jóns Ófeigssonar; þvert á móti álít eg að það fé eigi að veita. Það er full þörf á því að fá þýzk-íslenzka orðabók, og eg veit það, að Jóni Ófeigssyni er vel treystandi til að leysa starfið vel af hendi.
Ef það er rétt hjá háttv. framsm. (Sk. Th.) að á sama stæði, hvort Jón Ólafsson fengi 1500 kr. eða 720 kr., þá er líka óþarft að vera að færa styrkinn niður, það hefði þá mátt standa við það, sem stjórnarfrumv. ákvað.
Ef menn í annan stað vilja veita Einari Jónssyni 1500 kr. á ári — fyrir gott boð — finst mér það vera alveg sama og að setja hann á landssjóðslaun. Eg felli mig ekki við það; mætti líka veita honum öðruvísi viðurkenningu fyrir sitt góða boð — sem eg annars skil ekki, að geti orðið þegið.
Það má vel vera að E. J. sé hæfileikamaður, en að fara að gera hann að embættismanni landsins fyrir það, það finst mér ekki rétt. Hitt væri réttara, að gefa honum kost á að búa eitthvað til fyrir Ísland, er hann auðvitað fengi endurgoldið, en ekki veita honum föst laun.
Mér sýnist annars, að þingið sé nokkuð örlátt við skáldin, þau eru nú mörg á fjárlögunum. Eg skal þó ekki frekara fara út í það, en vil að eins geta þess, að réttara fyndist mér, að veita Einari Hjörleifssyni heldur 1500 kr., en 1200 kr. 1200 kr. styrkur er annaðhvort of hár eða of lágur. Af 1500 kr. gæti hann lifað, en hinu naumast. Fyrir ritstjórn Skírnis mun hann hafa 600 kr. á ári; en gæti hann fengið svo mikla viðbót við önnur ritstörf sín nú gæti hann af því lifað.
Aftur get eg eigi séð neina ástæðu til að færa styrkinn til Þorsteins Erlingssonar úr 800 kr. upp í 1200 kr., Þegar verið er að bera saman þá Einar Hjörleifsson og Guðmund Magnússon annarsvegar og Þorstein Erlingsson hinsvegar, þá er hér ólíku saman að jafna; eg tala hér ekki um hæfileika. Tveir hinir fyrnefndu eru sífelt að starfa að bókmentum, eru að rita, og frá þeim eru alt af að koma ný skáldrit, en eg hefi satt að segja ekki orðið þess var, að Þorsteinn Erlingsson hafi á síðari árum auðgað bókmentir vorar að mun með nýjum skáldverkum. Þegar á að fara að hækka styrk hans, þá er í rauninni verið að hækka eftirlaun hans, því að það verður ekki betur séð, en að hann hafi að mestu hætt starfi sínu — sem skáld.