20.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í B-deild Alþingistíðinda. (1052)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Bjarni Jónsson:

Það skal vera fjarri mér að ámæla stjórninni, þótt hún veiti ríflegan skerf til samgöngumála. En hitt dylst mér ekki, að alt of lítið er lagt til kenslumála, vísinda og lista, því það er nærri helmingi minni upphæð. Það er undarleg stefna í svo fámennu landi eins og þetta land er, hversu lítið er lagt til vísinda og lista, og get eg þá ekki stilt mig um að nefna um leið, að listir eru ekki nefndar á nafn í fjárlagafrumv. stjórnarinnar, og ekki veittur einn eyrir til þeirra. Þetta þykir mér undarlegt, því það ætti öllum að vera ljóst, að þær þurfa því fremur styrks, sem færra er fólk í landinu. Hitt er og víst, að hér er að morgna í þessum skilningi, hér er fyrsta dagsbrúnin, og við eigum nú nokkra unga, efnilega listamenn. En þeir eiga erfitt uppdráttar. Því undarlegra er það, að stjórnin skuli ekki hafa nefnt svo sem einn af þeim mörgu listamönnum, sem þó allir þurfa styrks við. Eg ætla nú ekki að tala meira um þetta, hversu lítið er veitt til þessara hluta. Hitt er verra, hversu óviturlega þessu litla er varið, þar sem mestur hlutinn fer til þess að launa embættismönnum. Veldur þessu fyrirkomulag það, sem nú er í stjórn þessa lands. Það er þá fyrst að alt of stór fúlga fer til þess að stjórna svo fámennu landi, t. d. fer allmikil upphæð til klerka, sem er engin þörf á, því þau gjöld eiga ekki að hvíla á landssjóði, heldur á þeim, sem vilja nota prestana. Sama má segja um sýslumenn, að þeir eru of margir.

Af þessum annmörkum, sem eg nú hefi bent á, er það erfitt að komast að réttri niðurstöðu, og verður meira og minna kák það sem gert er, af því svo illa er í garðinn búið, að það þarf ekki eitt heldur mörg þing til að koma því í lag.

Þá ætla eg að víkja í fáum orðum að breytingartill. þeim, er eg hefi komið með við frv. stjórnarinnar, og er þá fyrst 14. gr. a. b. 2., sem eg hefi lagt til að falli burtu, því eg tel það óþarfa fjárveiting og því fé betur varið til annars. Aftur á móti er hér tillaga um að styrkur til nokkurra brauða í fyrverandi Hólastifti falli burtu, þá till. tek eg aftur.

Þá er viðvíkjandi skólunum, sem eg þarf að athuga dálítið. Mér féll vel það, sem háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) sagði, að það væri ilt fyrirkomulag á skólum vorum yfirleitt. Því þarf að kippa í lag og endurskoða alt þeim viðvíkjandi, en það er ekki gert með því að styrkja þá skóla, sem eiga að deyja. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) kvaðst eigi skilja í því, að þeir menn væri andvígir kvennaskólanum, sem vildi láta konur fá fult jafnrétti. Hér um er það að segja, að konur eiga að njóta jafns réttar sem karlar við alla skóla, og eiga auðvitað að njóta styrks jafnt sem karlar. Kvennaskólum þarf að breyta og ekki að kenna þar annað en það, sem konur einar þurfa að læra. En á meðan þetta fyrirkomulag er, skal eg ekki mæla með styrk til þeirra. Sprettur það ekki af illvilja eða óþokka til kvenna, heldur af því að það verður til að halda áfram illu fyrirkomulagi.

Þá er Flensborgarskólinn. Um hann er það að segja, að eg sé ekki ástæðu til að styrkja 2 gagnfræðaskóla hvorn við hliðina á öðrum (ekki nema kl.-tíma ferð milli skólanna). Þá vil eg nefna Hvítárbakkaskólann sem eg ekki vil styrkja, því eg álít það sé út í loftið gert að styrkja svona lagaða skóla rétt undir handarjaðrinum á helztu skólum landsins. Auk þess bætist það við um þennan skóla, að ettir skýrslum hans að dæma, þá eru kennarakraftar, bækur og kenslu-áhöld þannig lagað, að landið ætti ekki að styrkja þá stofnun.

Þá hefi eg hér 1 eða 2 breyt.till. við hinn almenna mentaskóla, og vil eg drepa á þær nokkrum orðum. Það hefði ekki verið til neins, þótt eg hefði komið með till. um að breyta nafninu á skólanum, býst ekki við að það sé nægilegt þó eg vilji það, enda þótt nafn þetta sé til skapraunar hverjum manni, er þar hefir verið. En það er till. mín, að í staðinn fyrir 1100 kr. til dyravarðar og 200 kr. til umsjónar með áhöldum skólans, komi: til dyravarðar og annarar umsjónar 1000 kr., við það sparast 300 kr. án þess að gera nokkrum mein. En svo hefi eg lagt það til, að því sem sparaðist við þetta, yrði bætt við fastan aukakennara skólans. Undarlegt að kalla hann fastan aukakennara, en gera hann eigi að embættismanni, sem hefur þó sömu skyldum að gegna, sem hinir föstu kennarar, og að láta hann vinna fyrir 1600 kr., þegar alt er orðið dýrara en áður var, þegar embætti þetta var stofnað, og það er augljóst, að enginn sem hefir nokkrar þarfir getur lifað af því, Það lítur helzt út fyrir, að stjórn og þing vilji láta þreyta kennarana meðan þeir eru ungir og hafa einhverjar hugsjónir, en hækka svo laun þeirra, er þeir eldast og verða ónýtir og þreyttir. Eg hefi nú samt sem áður ekki lagt til að hækka laun aukakennara nema upp í 1800 kr. svo að á þessum lið sparast þá 100 kr.

Þá hefi eg lagt til að B. VIII, b. 4. falli burt, það getur ekki annað orðið en kák, þótt piltar gangi á námsskeið, sem mætti eins vel kalla skeiðnám, því að þeir mundu helzt læra það að skeiða um göturnar hér, og þá held eg að engum ætti að vera samvizkuspursmál að leggja þann styrk niður, því hann getur orðið til ills, og að minsta kosti tefur hann menn frá öðrum nauðsynlegum verkum. Svo hefi eg lagt til, að unglingaskóla á Húsavík, er hefir verið haldinn þar í nokkra vetur, verði veittar 700 kr. Skólastjórinn er Benedikt Bjarnarson, ungur maður og gáfaður, fullur áhuga og listavin mikill, enda mjög hagur á íslenzkt mál. Veit eg það, að honum er trúandi til að gera þeim ungu mönnum, er hann hefir undir hendi, hið mesta gagn. Sannanir hefi eg ekki aðrar en þessar, sem eg nú hefi sagt, en get þó til frekari áréttingar vísað til skólabræðra hans, ef menn ekki trúa því sem eg segi, en vona þó að menn búist ekki við, að eg sé að lofa menn út í loftið. Þá var ekki meira um 14. gr. og kem eg þá að þeirri 15. og ætla eg einnig þar að gera nokkrar almennar aths.

Það er ilt til þess að vita, hversu undanfarin þing hafa sparað fjárveitingu til einstakra manna til þess að fullkomna sig eða nema listir. Vona eg að þetta þing geri það ekki. Vil eg biðja menn að athuga það vel, að í hvert sinn, sem neitað er um beiðni þeirra, sem lagt hafa stund á listir eða vísindi, eða ætla sér að gera það, þá getur það verið að menn með atkv. sínu drepi vísinn til margra ágætismanna, og á því geta þeir ekki borið ábyrgðina. Því að þótt ekki hepnaðist nema einn af tíu, þá borgaði hann styrkinn, sem þeir allir hafa fengið. En slíkum vanhöldum þarf ekki að gera ráð fyrir. Segjum að helmingurinn lánist og þá er það stórgróði fyrir landið. Það er því meiri ástæða fyrir alþingi að veita fé til þessa, þar sem ekki er til einn einasti sjóður í landinu, sem menn geta hlaupið til. Carlsbergsjóðurinn í Danmörku hefir styrkt fleiri Íslendinga en landið sjálft, og þótt slíkt sé gott fyrir þá menn, sem hafa notið þess, þá er það skapraun og smán fyrir okkar þjóð. Að eg ekki minnist á þá skömm, sem það er, að nafnið bitlingur hefir festst við þessar fjárbænir. Það er á engan hátt bitlingur. Það nafn á ekki við um þá, sem vísindi stunda eða skáldskap, því fé er vel varið sem til þess fer. Fyrsta till. mín er sú, að laun fyrsta aðstoðarmanns við landsbókasafnið verði 2500 kr. í stað 1500 kr. Sé laun hans nú borin saman við laun aðalbókavarðar, sem eru 3000 kr., þá er það engan veginn of hátt, þótt aðalaðstoðarbókavörður fái 2500 kr., því vitanlegt er það að vinnan lendir meira á aðstoðarbókaverði. Sá maður, sem nú gegnir því starfi er dugnaðarmaður, og hefi eg ekki á móti því að honum sé veitt launaviðbótin persónulega. Aftur á móti legg eg til, að styrkur hans til sagnagerða og sagnarannsókna falli niður, því það fer ekki saman að setja laun hans sem bókavarðar svo lágt, en skuldbinda hann svo til þess að vinna að verki, sem er því óviðkomandi. Auk þess er ekki sérstök ástæða til þess að veita honum styrk til sagnaritunar, en sjálfsagt að borga honum það verk, sem hann vinnur vel.

Svo hefi eg lagt til um 13. lið, fjárveitinguna til Þorsteins Erlingssonar, að í stað 800 kr. komi 1500. Vitna eg til hv. þgm. Vestm. (J. M.) að miklu er réttara að veita 1500 kr. heldur en 800 kr. sultarstyrk, sem hvorki er unt að lifa né deyja fyrir sómasamlega. Með þeim styrk getur hann langt frá notið sín, því til að lifa þarf hann að auki að vinna sér inn að minsta kosti 1000 kr. við tímakenslu, sem er eins og annað andans starf mjög illa borgað, ver en líkamleg vinna, jafnvel ver en salernahreinsun. Öðru máli er að gegna, ef styrkveitingin er 1500 kr., þá getur hann nokkurn veginn marið fram lífið. Flestir embættismenn munu mér sammála um, að 2000 kr. séu engin höfðingjalaun. Biskupum og dómurum þætti það eigi. Þeir hafa fylgst að gegnum skóla og aðrar mentastofnanir, vanir þar hinu sama lífi, en nú skilur embættið á milli. Þessir menn, landsins mestu höfðingjar, fórnfæra sjálfum sér hugsjónum sínum, breyta göfuglegast, en lifa við sult og seyru. Þetta ætti að leggjast niður, að vandaminstu verkin væru bezt borguð. Annað var það í ræðu hv. þgm. Vestm. (J. M.) viðvíkjandi Þorsteini Erlingssyni, er mér líkaði stórilla. Það var það að hann áleit Þorstein Erlingsson kominn á grafarbakkan og taldi þetta skáldalaun, en eigi styrk. Þetta er algerlega rangt. Mín till. byggist á því, að þetta sé styrkveiting til þess hann geti starfað, en ekki heiðurslaun fyrir aflokið starf. Eg hverf að því að sanna það að hv. þgm. Vestm. (J. M.) fari með rangt mál, og að þetta séu ekki eftirlaun. Eg veit hann hefir verk með höndum, sem hann vinnur kappsamlega að. — Hann hefir í smíðum sögukvæði mikið um Fjalla Eyvind. Það er miklu erfiðara verk, að rita jafnmargar arkir í bundnu en óbundnu máli og þar að auki er maðurinn afarvandvirkur. Einn þriðji hluti þessa mikla verks er búinn og eru fjórar arkir þegar búnar til prentunar. En þótt hann hafi unnið að þessu síðustu árin, er eins og áður er sagt, mikið ógert, og sést hér hve lamandi það er að styrkurinn er að eins 800 kr. er hann neyðist til að eyða miklu af tíma sínum til tímakenslu. Getur farið svo, að þessum 800 kr. sé kastað í sjóinn, en að 1500 kr. bæru mikinn ávöxt. Vottur vandvirkni hans er það, að hann lagði svo mikið að sér við rannsókn skjala um Fjalla Eyvind, að hann lagðist veikur. Það er auðvelt að segja, að þessi maður sé hættur að yrkja, þar eð ekkert hefir sézt eftir hann á prenti nýlega. En auk þess fyrnefnda hefir hann annað í smíðum, »Ragnheiði« eða »Eiðinn«, sem fullur helmingur er eftir af, búnar hér um bil 5 arkir. Það get eg fullvissað menn um, að er þessi tvö verk eru búin, munu þau meira en borga þennan styrk, þau munu tvöfalda hann eða margfalda; svo dýr munu þau vera í íslenzkum bókmentum. Þetta segi eg án allrar hlutdrægni. Veit að vísu, að varasamt getur verið að hæla óútkomnum bókum, en eg ætla að eiga það á hættu að þessu sinni. Enn fremur starfar hann að sögukvæði um Jón Arason, sem er langt komið. Er það í þrem köflum. Enn fremur 4 arkir í óprentuðum smærri kvæðum. Enn vill hann ef honum endist aldur til, kveða nokkuð langt heimsádeilukvæði í líkingu við Don Juan, en hann er ekki byrjaður á því enn; hefir þó þegar samið þráðinn í huga sér, og mun því eigi langt að bíða að kvæði þetta birtist, ekki sízt, ef hann þarf eigi að dauðþreyta sig á að troða málfræðisklausum í einhverja og einhverja fyrir 70 aura til 1 kr. um klukkutímann. Þetta, sem eg hefi verið að sýna fram á, ætti að vera mönnum fullvel ljóst; annaðhvort ber að veita styrkinn samkvæmt till. þgm. Vestm. (J. M.), svo gagn sé að, eða þá als ekki.

Eg hefi lagt til, að styrkur til síra V. Briem, að upphæð 800 kr. falli niður. Ástæðan er sú, að eg álít að ekki neitt af verkum þessa manns sé svo gott, að hann eigi það skilið, og þó er mér ljúfara að reisa og styðja en fella. Þetta virðist eiga að vera heiðurslaun fyrir hve góður rímari hann er, en það eru fleiri góðir rímarar til hér á landi, er aldrei hafa fengið neitt. Veit eg ekki til að hann hafi leyst það verk af hendi, að hann eigi þetta skilið, þrátt fyrir gullkornin, eins og t. d.. »Það var hann Esaú Ísaksson. Hann allur var svo loðinn. En Jakob eins og var til von, hann var sem aðrir snoðinn«. Það skaðar ekki, að sá er áður var loðinn, verði nú snoðinn um lófana.

Eg hef enn lagt til að styrkur B. Melsteds falli niður. Eg vil ekki vera myrkur í máli. Eg álít að verkið sé ekki svo gott að beri að styrkja það. Sagnaritun er vandaverk og ef verk hans væri vel af hendi leyst væri sjálfsagt að styrkja hann. Meðan hann hafði ekki gefið neitt út, hélt eg eins og margir aðrir, að verkið væri gott og vildi láta styrkja hann. En hann gaf að eins út útdrátt þess, sem aðrir hafa ritað áður, en illa framsett. Er nefndin leggur til að hann fái styrk fyrra árið, virðist nokkurskonar sáttagjöf.

Enn er einn liður, er eg álít að eigi að falla burtu, það er styrkurinn til Jóns Ólafssonar, til að semja íslenzka orðabók, 60 kr. fyrir hverja prentaða örk, alt að 1500 kr. Það er ekki eins manns verk að semja svona orðabók, og allir sjá, að ætti maðurinn að rubba upp 25 örkum á ári, hlyti að vera kastað til þess höndunum. Ef semja á þessa bók, þarf að minsta kosti tvo menn með 4000 kr., og hefi eg fyrir mitt leyti ekkert á móti því, að annar þeirra væri Jón Ólafsson. Það er ekki af hefndarhug, að eg álít að Jón Ólafsson, þó hann duglegur sé, gæti ekki samið þessa orðabók með 1500 kr. styrk á ári.

Um styrkveitinguna til Jóns Jónssonar hef eg áður talað, og vil eg láta hana falla niður. Hann hefir nóg að gera við safnið, og á að geta lifað af því, og þá ritað, ef hann finnur köllun hjá sér til þess. Sem fulltrúi þjóðarinnar vil eg ekki veita honum styrk til þess að skrifa á móti sjálfum sér á 5 ára fresti.

Þá kemur mál, sem mér er skylt; það er styrkveitingin til Helga grasafræðings Jónssonar, bróður míns, til jurtafræðisrannsókna, að upphæð 1200 kr., sem breyt.till. hefir komið fram um að hækka upp í 1500 kr. Það eitt vil eg segja um þennan mann, að hann hefir ekki lifað fyrir annað en grasafræði Íslands, síðan hann var í skóla og hefir viljað vinna ættjörð sinni gagn. Meira mun eg ekki um hann segja, en drengskap minn get eg lagt við, að hér er rétt frá manni sagt.

Þá kemur eitt skáldið enn þá Einar Hjörleifsson. Nefndin hefir lagt til að honum verði veittar 1200 kr. á ári. Þessi styrkur er einungis til að narra manninn, og legg eg það til að hann sé færður upp í 1500 kr., enda er ómögulegt, að véfenga þær ástæður, er færðar hafa verið, og get eg í þessu máli einnig vitnað til þm. Vestm. (J. M.), að ríflegan styrk beri að veita, ef hann er veittur á annað borð. Að öðrum kosti yrði hann einnig að taka sér annan starfa á hendur t. d. ritstjórn, en þá yrði skáldsagnalystin að lúta í lægra haldinu og mundi mörgum landsmönnum þykja ilt að svo væri. Vil eg því fyrir mitt leyti styðja 1500 kr. styrkinn.

Eg legg til, að nýr liður komi inn, 600 kr. til Guðm. skálds Guðmundssonar hvort árið. Hann er ljóðskáld ágætt, tilfinningamaður, fátækur og heilsulítill. Það er ekki til mikils mælst. 600 kr. hvort árið er í sjálfu sér engin geypi upphæð, en hún getur komið honum að notum, því þótt ljóðsmiðar sé hollar og góðar verður hann að hafa þær í hjáverkum.

Þá kemur námstyrkur til Jóns Ísleifssonar, er var feldur fyrir mér um daginn, er eg bar það mál upp. Var það undarlegt mjög, er þingið vill styðja menn til raffræðisnáms. Það er kunnugt að þetta er ágætur maður, sem bráðum er fullnuma, og því styrkverðari en byrjendur. Hann hefir stundað nám í Noregi hér um bil 2 ár, hefir tekið ágætt próf og fengið ágæt meðmæli hjá öllum kennurum sínum, nema einum, sem var fjarverandi, kennaranum í vélfræði, en prófskírteini hans sýna, að í þeirri grein hlaut hann ágætiseinkunn. Kaus hann að nema fræði þessa í Noregi, þar sem staðhættir eru líkir því sem er hér á landi. Sem mörgum er kunnugt, er ný atvinnugrein uppfundin, að vinna áburðarefni úr loftinu; ætti grein þessi fullvel að geta þrifist hér heima.

Á ferð minni um Noreg sá eg Rjúkanfossiun, sem hefir 140000 hestöfl, og er þó langtum minni en Gullfoss, og er hann fer að vinna verður Rangárbrúin eigi lengi á leiðinni. Fyrir þennan styrk sinn ætlar Jón Ísleifsson auk þess að ferðast um Noreg til þess að kynnast umbúnaði á vatnsiðnaði.

Enn á eg till. um að veita Jóhannesi Sveinssyni 600 kr. til þess að afla sér undirstöðuþekkingar í málaralist. Hann er ungur maður og áhugasamur. Vert væri að uppörfa hann svo að hann fengi þjónað löngun sinni. Maðurinn er bláfátækur; fór úr foreldrahúsum 15 ára gamall; hefir stundað sjómennsku og hverja aðra vinnu, en ekki getað sint löngun sinni nema í hjáverkum.

Loks á eg till. um að Jóni Ófeigssyni séu veittar 1000 kr. á ári til að gera þýzk-íslenzka orðabók. Eg hefi nú kent þýzku í 14 ár og hefir enginn fundið betur en eg, hversu vant er orðið orðabókar í þessari tungu. Þessi þörf stafar at því, að þekking manna á þessari tungu hefir vaxið, en það stafar aftur af því að viðskiptin vaxa. Eg hefi orðið oftsinnis að skrifa verzlunarbréf fyrir kaupmenn, vegna þess að þá vantar hjálpargögn. Á þessari orðabók er miklu meiri þörf en orðabók Sigfúsar Blöndals, þótt eg beri ekki á móti því, að hennar kunni að vera nokkur nauðsyn. Auk þess er það sneypulegt fyrir þjóð, sem vill vera menntaþjóð, að hafa allar hjálparbækur á dönsku. Þessi aðferð drepur niður vort dýra mál. Í skólunum læra menn að tala og rita bjagað, sletta útlendum orðum, svo að hjal þeirra verður eins og berjaskyr.

Þessi maður, Jón Ófeigsson, er ungur kandídat og hefir mjög góða einkunn frá háskólanum. Raunar legg eg ekki mikla áherzlu á einkunnir; hitt er meira um vert, að eg veit það, að maðurinn er iðjumaður, gáfaður, glöggur og nákvæmur. Eg hefi þekkt hann frá því að hann var í 1. bekk og kendi honum alla hans skólatíð; var hann þá jafnan fremstur í sínum bekk. Síðan hann kom frá háskólanum er mér og kunnugt um, að allir hans góðu hæfileikar hafa haldist og þróast við aldurinn. Það er því óhætt að trúa því, að hann fari vel með þetta fé. Kunnátta hans í þessari tungu er og mjög góð, þótt digurbarkalega kunni að þykja talað af afsettum aukakennara, en þekkingu manna í þýzku ætla eg mig kunna að meta.

Nánari útskýringar mun eg láta bíða þess, að borið verði á móti því, sem eg hefi sagt. Eg skal taka það fram til þess að ekki verði talin mótsögn í því sem eg sagði um fjárveiting til íslenzkrar orðabókar og þessarar orðabókar, að hér er aðeins að ræða um hagkvæmt hjálpargagn og miklu minni kröfur gerðar til slíkrar orðabókar en orðabókar í móðurmálinu.