20.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í B-deild Alþingistíðinda. (1053)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Pétur Jónsson:

Eg stend upp að eins til þess að gera grein fyrir afstöðu minni til eins eða tveggja liða í þessum gr. fjárlaganna.

Eg er þeim megin í fjárlaganefndinni, að lækkaður verði styrkurinn til kvennaskólans í Reykjavík frá því, sem farið hefir verið fram á í frumv. stjórnarinnar. Eg býst nú við, að kynlegt þyki, að eg skuli fylgja þessu, þar sem eg á síðasta þingi flutti frv. um stofnun húsmæðraskóla og hélt fram jafnréttiskröfum kvenna til móts við karla um öll kenslumál. Það sem varð því máli til tafar, var sú skoðun þingsins, að varhugavert væri vegna fjárhagsins að leggja út í að stofna svo dýra skóla. En enginn bar á móti þörfinni. Þetta mál er því geymt en ekki gleymt og mundi hafa verið flutt hér, ef nokkur líkindi hefðu þótt til þess, að þingið nú tæki betur í það en þingið 1907. Þeir skólar áttu að vera sniðnir eftir brýnustu þörfum kvenþjóðarinnar. Þeir voru miðaðir við þá kennslu eina, sem hver einasta húsmóðir á landinu, sem á heimili forstöðu að veita, að minsta kosti utan kaupstaða, er full þörf á, næst góðri barnafræðslu, og þeir voru ennfremur sniðnir svo, að kostnaðurinn við að ganga á þá gæti enga stúlku fælt, sem á annað borð gæti eða hefði nokkur ráð á, að kosta sig á skóla utan sinnar sveitar. Nú er húsmæðrastéttin fjölmennasta stétt hér á landi og þeir skólar, sem henni eru ætlaðir til sérmentunar ættu fyrst og fremst að vera landsskólar að sínu leyti eins og bændaskólarnir eru það.

Eg veit því alls eigi, að þörf sé fjár til kvennaskólans í Rvk., einkum ef honum verður breytt eins og ráðgert er. En úr því þingið veigraði sér við að stofna þá skóla handa konum, sem enn meiri þörf var á og meir voru sniðnir eftir kringumstæðum almennings, þá sýnist mér enn meiri ástæða til þess að hika við að gera þennan skóla að landskóla, en það er hann gerður með því fjárframlagi, sem stjórnin ætlar honum, því það er miðað við allan hans kostnað, nema það sem tekjurnar af sjóði hans — ca 800 kr. á ári — ná. Við það að skóli þessi er í kaupstað, og er 4 ára skóli verður hann dýrari, og útilokar fjölda af fátækum stúlkum af þeim orsökum, sem gætu vel sótt slíkan húsmæðraskóla og ráðgerður var á síðasta þingi. Þær eru færri stúlkurnar, sem geta kostað sig hér á kvennaskóla í Rvk. 1—2 vetur hvað þá 4. Það er ekki meðfæri margra af oss bændum, að kosta því til dætra okkar, það hef eg reynslu fyrir.

Nú hefi eg rakið ástæðurnar fyrir því, að eg get ekki verið samþykkur fjárveitingu til þessa skóla, svo hárri sem stjórnin fer fram á. Annað mál er það, að þegar húsmæðraskólar eru komnir á, þá tengi skólinn í Rvk. nýtt hlutverk; hann yrði þá nokkurs konar yfirskóli og fullnumar þaðan yrðu þá ef til vill kenslukonur við hina óæðri skóla. En það kemur ekki til mála að mynda slíkan yfirskóla undir eins, og á undan hinum skólunum.

Þótt eg mætti vera þakklátur háttv. þm. Dal. (B. J.) fyrir till. hans um að veita 700 kr. styrk til unglingaskólans í Húsavík, þá mun eg þó greiða atkv. móti því, því að annars gengi eg á grið við fjárlaganefndina. Nefndin hefir sem sé í rauninni tekið þessa fjárveitingu til greina með því að hækka styrk til unglingaskóla um 1500 kr. á ári og hækkar lágmark hvers styrks í 750 kr., enda er það í samræmi við stefnu mína að taka ekki neinn sérstakan af þessum skólum út úr, heldur fylgja föstu plani um þá alla.