01.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í B-deild Alþingistíðinda. (1099)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Jón Sigurðsson:

Eg hefi leyft mér hér, að koma fram með breyt.till. við 18. lið 15. gr. fjárlaganna, um styrkhækkun til Guðm. skálds Magnússonar. Eg get ekki hugsað mér annað, en að deildin taki vel þessari till. Hygg þennan mann eiga það fyllilega skilið: það var sagt hér í deildinni nýlega að styrkur slíkur sem þessi til rithöfunda mætti kallast eftirlaun, en um þennan styrk verður þó ekki sagt að þetta séu eftirlaun; eg trúi því fastlega, að þessi maður eigi mikið og margt óunnið í gróðrarstöð íslenzkra bókmenta. Hann hefir þegar leyst af hendi slík verk, sem Leysingu og Heiðarbýlið, sem hafa þegar unnið sér lýðhylli og fyrir þær bækur meðal annars er ekki hægt að neita því að honum ber að skipa á hinn æðra bekk í bókmentaskóla þjóðarinnar.

Þá hefi eg leyft mér að fara þess á leit, að af gufu- og mótorbátastyrknum megi verja 1000 kr. til bátaferða eftir Hvítá. Félag sem fjallar um þetta, hefir nú keypt sér bát, og er líklegt að sá bátur komi að miklu haldi og að menn muni víðar nota slík samgöngufæri. Eg vil að hluthafar megi skilja, að þeir eigi styrks von, ef þeir geta sannað og sýnt, að hér opnist ný braut í samgöngumálum hér á landi, og það sem eg vildi taka fram og leggja áherzlu á er þetta, að hér er ekki farið fram á nein hættuleg útgjöld fyrir landssjóð, að eins það að báturinn eigi von á eða réttara sagt hafi vissa von að fá styrk ef hann getur komist það áleiðis sem breyt.till. tiltekur, svo að sýnt verði að þingið vilji styrkja þær nýjungar, sem vænlegar eru til frekari framfara í þessari grein vöruflutninga landsins, en er um leið engu vogað fyrir landssjóð eða lagt á hættu, þar sem styrkur þessi veitist einungis með skilyrðum þeim, er eg áður hefi tekið fram. Eg efast ekki um að margar ár hér verði skipgengar, er fram líða stundir, og vaxandi þekking ryður sér til rúms í þessari grein. Þá er loks 3. og síðasta breyt.till. sem fer fram á það, að hr. Einari P. Jónssyni verði veitur 1000 kr. styrkur fyrra árið til sönglistarnáms erlendis. Mér er maðurinn lítið persónulega kunnur, en hann er talinn efnilegur og áhugasamur og finst mér því að þennan litla styrk ætti hann að fá. Reyndar er þessi till. ein af þeim svo nefndu afturgöngum hér í deildinni, þar sem hún hefir legið fyrir áður, og því vafasamt, hvort hún fær að komast að og verð eg því að leggja það á vald hinnar háttv. deildar, hvað hún vill gera í þessu efni.