01.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í B-deild Alþingistíðinda. (1101)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Bjarni Jónsson:
Eg hefi hér fáeinar breytingartillögur, sein eg vil minnast á nokkrum orðum. Það er þá fyrst við 16. gr., 200 kr. fyrra árið til Eyólfs Bjarnasonar tamningamanns. — Maður þessi hefir verið mesti tamningamaður og reiðmaður, og verið mjög þarfur í þeirri ment. Þessar 200 kr. eiga því að vera veittar í nokkurs konar viðurkenningarskyni fyrir það þarfa starf hans. Þá er farið fram á að veittar séu 300 kr. fyrra árið til Sturlaugs Tómassonar í Akureyjum, sem viðurkenning fyrir að hafa átt og komið upp fjölda barna. Maður þessi hefir verið mesti dugnaðar- og atorkumaður og átt 22 börn, sem hann öllum hefir komið upp án nokkurs styrks. Nú er hann gamall maður, svo að elli er farin að sækja hann heim, og það sem verra er, hann er orðinn blindur og getur því ekki lengur unnið sér inn.
Þá kem eg að breyt.till. mínum við 15. gr. Það er segin saga, að eg get aldrei skilist við hana. Hefi eg nú lokið máli mínu um það kjördæmið, sem mig hefir kosið, en hverf þá að því kjördæminu, sem eg hefi kosið. En það eru listir og vísindi. Mér fellur illa margt það sem sagt hefir verið hér á þinginu viðvíkjandi styrk til listamanna og vísinda. Það er engu líkara en verið væri að ræða um stórfé til hengibrúa eða annara stórfyrirtækja, en það er þó að eins 16 þús., sem ætlast er til að verði veittar úr landssjóði í þessu skyni. Það er þó ekki nein stóreflisfúlga og það í landi þar sem engir eru ríkir og allir fátækir, svo að listamenn hafa ekki þaðan neins styrks von, og hér eru heldur engir sjóðir, sem eru orðnir svo stórir að nokkru nemi, nema þá helzt Bræðrasjóðurinn og er þó ekki mikill. Þess vegna ættu menn ekki að telja eftir eða skera sér við nögl þær lítilfjörlegu fjárupphæðir, sem veittar verða í þessu skyni. Eg hefi nokkrar breyt.till., sem ekki hækka gjöld landssjóðs að neinum mun, en eru hinsvegar svo gagnlegar, að eg býst við, að þeim verði ekki synjað samþykkis háttv. deildar. Eg skal þá fyrst minnast á dr. Helga Pétursson. Hann hefir beðið mig að fá því til leiðar komið hjá hinni hv. deild, að af þeim 3000 kr., sem hann fær yfir fjárhagstímabilið, verði meiri hlutinn minst ? greiddur fyrra árið. Það ár verður haldinn alþjóða-jarðfræðingafundur í Stokkhólmi og er það ætlun hans að sækja þann fund. Það er alkunnugt, að maður þessi er mesti vísinda- og fræðimaður og að því er hans fræðigrein snertir í miklu áliti meðal sérfræðinga erlendis. Það eru því líkur til að hann, með því að fara á þennan fræðimanna fund, muni geta sér góðan orðstír, áunnið sjálfum sér frægð og ættjörð sinni sóma og er þá ekki fé þessu illa varið. Þetta ætti annars að vera deildinni meinfangalítið að leyfa, því að hér er hreint ekki að tala um aukin fjárútlát, heldur að eins að flytja til 500 kr. frá seinna árinu yfir á hið fyrra. — Þá hefi eg lagt til að Engilbert Gíslasyni yrði veittar 500 kr. á ári í tvö ár til að nema leiktjaldagerð erlendis. Eg hefi ekki þorað að fara fram á meira en 500 kr. vegna þess sparnaðaranda, sem ríkir hér í deildinni við allar fjárveitingar til lista og vísinda. Eg vona, að allir eða flestir kannist við, að það sé ekki eingöngu skemtilegt heldur líka mentandi mjög að fara í leikhús og njóta þeirra listfengu áhrifa, sem góð leiklist hefir að bjóða. En til þess þarf allur leikhúsútbúnaður að vera í góðu lagi, en hjá okkur er mjög ábótavant í þeim efnum. Úr þessu mundi talsvert bætast, ef vér ættum hér einn góðan mann, sem kynni til leiktjaldagerðar. Eg vona, að menn — og það ekki hvað sízt þeir háttv. þingdm. viðurkenni, að þess sé full þörf, að meðal heillar þjóðar sé að minsta kosti einn maður, sem fáist við þá ment. Forn-Grikkir, einkum Aþenumenn, sú þjóð sem hefir náð einna mestum listaþroska, voru örari á fé til leiklistarinnar. Fátækum mönnum var veitt fé úr fjárhirzlu ríkisins til að geta farið í leikhús. Okkur hefir verið líkt við Forn-Grikki, en það er nú raunar forfeðrum vorum, en ekki okkur sjálfum, Íslendingum þessa tíma, sem reynum að svelta hvern mann, sem vill framleiða eitthvað listfengt, gott og fagurt, er ekki heyrir til smjöri, kjöti eða annari matarframleiðslu í landinu. Það er eins og menn haldi, að maðurinn lifi til að borða, — svo ruglaðir eru menn orðnir í hugsunum sínum — þar sem það rétta er að maðurinn lifir ekki til að jeta heldur jetur til að lifa, — til að lifa til að njóta þess fagra og góða, sem lífið hefir að bjóða. Eg vil enn fremur geta þess, að sá maður, sem hér er um að ræða er ungur og efnilegur, stiltur vel og trúandi til að fara vel með það fé, sem honum kann að verða í té látið. Þá hefi eg mælt með styrkveitingu til Ólafs Þorsteinssonar 500 kr. í tvö ár til að ljúka við verkfræðisnám í Kaupmannahöfn. Eg þekki pilt þennan vel, hefi kent honum gegn um skólann og veit að hann er duglegur námsmaður. Það er gott verk, ef landssjóður vildi hjálpa þessum manni áfram.
Svo hefi eg nokkrar tillögur með öðrum. Af þeim vil eg sérstaklega geta þeirrar um styrk til Jóns Ísleifssonar til þess að kynna sér notkun vatnsafls; forseti hefir reyndar skorið niður allar till., er feldar voru við 2. umr., enda þótt þær séu bornar fram í breyttri mynd og því í rauninni nýjar till. Eg verð að játa, að mér finst sá úrskurður ekki á rökum bygður, en það þýðir eigi að deila við dómarann, en hvernig sem á það er litið, lá ekki þessi breyt.till. mín undir úrskurð forseta, af því að hún er svo breytt frá því sem var við 2. umr. Þá fór eg fram á námsstyrk, nú fer eg fram á fjárveitingu til að fjárþegi kynni sér meðferð einhvers hins þýðingarmesta náttúruafls vorra tíma og sem sérstaklega skiftir Ísland miklu, og vona eg að allir sjái að það er alt annað. Svo er enn till. mín um styrk til Stúdentafélagsins í Reykjavík til alþýðufræðslu 500 kr. hvort árið. Það veitti auðvitað ekki af miklu stærri upphæð, en eg þori ekki að fara fram á meira. Eg skal geta þess, að eg hefi með höndum skýrslu yfir fyrirlestra þá, sem íélagið hefir látið halda, og skal eg því skýra lítið eitt nánar frá því. Í Reykjavík hefi eg haldið 5 fyrirlestra um endurreisnartímabilið (Renaissancen), 3 í Hafnarfirði um sama efni og 1 um Jón Arason, 2 á Seltjarnarnesi um Jón Arason. Jónas Guðlaugsson 3 um íslenzkar bókmentir. Einar Hjörleifsson hefir haldið 2 fyrirlestra í Hafnarfirði, 1 í Borgarnesi, 2 upp á Hvítárvöllum og 2 á Akranesi. Sigurður Sigurðsson 3 fyrirlestra austur við Þjórsárbrú og Magnús Einarsson dýralæknir 3 við Þjórsárbrú, á Stokkseyri og Eyrarbakka. Þetta er samkvæmt síðustu fjárveitingu, sem bundin var því skilyrði, að fyrirlestrar yrðu mest haldnir utan Reykjavíkur. Eg vona, að fjárveiting þessi nái ljúft fram að ganga, því að annars vegar er hún lítil, en gerir aftur á móti mikið gagn, hins vegar oft svo örðugt að fá menn til að halda fyrirlestra, einkum utan Reykjavíkur, að félaginu er það alls ekki fært styrklaust.
Þá er síðast till. mín um 1400 kr. á ári til Einars Jónssonar. Eg hafði áður við 2. umr. farið fram á l500kr. en það var felt með eins atkvæðismun, nú bjóst eg við að eg með því að lækka till. um 100 kr. mundi fá því eina atkv. velt yfir, en svo kemur úrskurður forseta og treystist eg þá ekki til að halda henni fram. En það er till. fjárlaganefndarinnar, að honum séu veittar 1200 kr. á ári og skal eg þá leyfa mér að mæla með þeirri tillögu. Eg hugsa að mönnum sé kunnur þessi maður frá Galtafelli og eins líka hitt, hve mikla fátækt hann einatt á við að stríða. Hann hefir lagt út á listarinnar — oft þyrnum stráðu — braut og það þekkja fáir, hve erfið slík leið hlýtur að verða fátækum Íslendingi. Honum hefir þó tekist að vekja eftirtekt á sér erlendis, sinni list og ættjörðu og með því verið landi sínu til sóma. En hann hefir ekki náð almennri hylli erlendis fyrir það, hve sjálfstæður, hversu íslenzkur hann hefir verið. Hann hefir fylgt sinni eigin listlöngun, fetað sínar eigin brautir, en enginn apaköttur verið, ekki reynt að »jurare in verba magistri«, og það finst mér að minsta kosti að vér Íslendingar eigum helzt að styrkja þá menn sem eru frumlegir og þjóðlegir og túlka og skýra vorar hugmyndir á alheimsmáli listarinnar. Nú er þess líka sérstaklega að gæta, að Íslendingum er mikill vandi á við þennan mann, því að hann hefir boðist til að gefa landinu þá höfðinglegustu gjöf, öll hans listaverk, og það er ekki rétt að hann hafi gert að skilyrði, að byggja skuli yfir þau hús. Það er að eins tekið fram, að þau skuli varðveitt á góðum stað, og skal eg með leyfi forseta lesa kafla úr bréfi til bróður hans, þessu til sönnunar. Menn munu ef til vill svara, að ekki sé svo mikið varið í þessa gjöf, þar sem fáir eða engir vilji kaupa; það er auðvitað létt verk að leggjast á það lagið, en hver veit, hve langt er þess að bíða, að Íslendingur þessi verði viðurkendur meðal listamanna heimsins, en þá væri of seint að bregða við, þá gæti tækifærið verið farið fram hjá. Annars er það braut margra nýtra manna, ekki sízt listamanna, að þeir eru ekki viðurkendir fyr en um of seinan, oft og tíðum ekki fyr en þeir eru dauðir.
Eg gat þess áðan, að Danir og útlendingar ættu verra með að skilja Einar Jónsson fyrir það, hve íslenzkur hann væri, en því betur ættum vér að geta skilið hann og ættum líka að vilja skilja hann. Oss ætti að skiljast, hve vel hann hefir grætt sín listaverk upp úr þeim jarðvegi, sem hann er fæddur i. Í þessari höfðingsgjöf Einars er fólgið alt það bezta, sem hann á til, allar hans eigur, en það er líka meira: framtíð Einars veltur á því, hvernig vér tökum þessari gjöf hans. Ef vér ekki viljum taka við henni, munu margir útífrá kunna að segja: »Nærri má geta, hve mikils virði þessi listaverk Einars eru, þar sem hans eigin landar ekki vilja þiggja þau að gjöf«. Það er auðséð hvað af slíku mundi leiða fyrir Einar. Hann á á hættu sína framtíð, já, alt sitt líf. Það væri því mjög ísjárvert, ef þingið nú ætlaði að sparka við þessum manni, sem að öllum líkindum á eftir — þegar tímar líða — að vekja athygli á sér og sinni þjóð út um heiminn. Menn munu ef til vill segja, að ekki sé svo mikið varið í listaverk, landið þurfi annars meira með, en þessum sömu mönnum kemur þó saman um, að útlendingar fái sem mest kynni af landi voru, að athygli þeirra á því sé vakin og þetta miðar þó óneitanlega að því marki. Það er sannarlega ekki lítið varið í fyrir þjóð vora, að hún eigi menn, sem lof og orðstír fer af út um heiminn. Þeir kasta líka frægðarljóma á þjóðina sjálfa. Slíkt verður ekki metið til fjár. Eg hefði gaman af að spyrja, hvað Danir t. d. vildu gjalda í peningum fyrir Thorvaldsensnafnið. — Mér þætti réttast að þingið tæki mann þennan á föst laun, það væri satt að segja ekki ofmikið. Menn munu ef til vill segja að slíks séu engin dæmi með öðrum þjóðum. En það er ekki rétt. Eg skal nefna sem dæmi Englendinginn Watson, og Fritz Thaulov hafði árslaun hjá frönskum auðmanni. Ef það ráð væri tekið, þá myndi Einar fyrst geta notið sín til fulls, þá þyrfti hann ekki að lifa með ótta fyrir morgundeginum, heldur gæti eingöngu helgað sig og líf sitt list sinni og þá geta menn búist við góðum árangri. Reyndar veit eg vel, að sorgin getur verið mikil listhvöt, en gleðin er það engu síður; það er gleðin og traustið, sem heldur listamanninum til að móta þær fegurstu og hugðnæmustu myndir. En hvað sem því líður þá vona eg að hin háttv. deild samþ. þessar 1200 kr. með glöðu geði. Skal eg svo ekki fjölyrða meir um þetta, en það vildi eg segja að verra verk fær alþingi Íslendinga ekki unnið en ef það neitar að taka á móti gjöf Einars. Heldur þá að veita honum ekkert fé en taka við gjöf hans.