01.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 362 í B-deild Alþingistíðinda. (1102)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Framsögumaður (Skúli Thoroddsen); Eg skal víkja fám orðum að stöku atriðum í ræðum sumra hv. þingdm. Þm. Vestm. (J. M.) ber fram breyt.till. um síma til Vestmanneyja, er eg furða mig mjög á að hann skuli bera fram eftir þeim undirtektum, sem það mál hefir þegar fengið hér í deildinni. — Meiri hluti fjárlaganefndarinnar leit svo á, sem athuga bæri, hvort ekki mundi heppilegra og ódýrara, að hafa loftskeytasamband en síma, og upplýsingar um þetta mun hin nýja stjórn væntanlega gera sér far um að afla sér svo fijótt sem því verður viðkomið, þar sem núverandi ráðherra var loftskeytasambandi mjög fylgjandi í fjárlaganefndinni; en þótt það dragist til næsta þings að hraðskeytasamband komist á, þá skiftir það eigi mjög miklu.

Í tilefni af ræðu umboðsmanns ráðh., viðvíkjandi heilsuhælinu, þá vil eg geta þess, að till. ber það með sér, að eigi er um lán úr landssjóði, heldur að eins um ábyrgð landssjóðs að ræða, og verða þá að líkindum eigi vandkvæði á að útvega það; en það sem fjárlaganefndin gerði í þessu máli, var í samræmi við till. landlæknis.

Eins og umboðsmaður ráðh. benti á, þá er hætt við að lítið verði um fé í landssjóði til lánveitinga, og þarf því að gæta varúðar, að því er til lánsheimilda kemur og láta það ganga fyrir, sem nauðsynlegast er.

Út af ummælum umboðsmanns ráðh. skal eg játa, að það væri heppilegt og mundi flýta fyrir og vera þinginu til leiðbeiningar, ef einstakir menn, og forstöðumenn alþjóðlegra stofnana, gerðu sér að reglu, að senda jafnan fjármálaumleitanir sínar fyrst til stjórnarráðsins, ef stjórnarráðið léti þinginu þá í té umsögn sína um þær; en eg vil láta þess getið, að þinginu hafa borist að þessu sinni ýmislegar fjárbænir einstakra manna o. fl. frá stjórnarráðinu án nokkurra skýringa eða umsagnar af þess hálfu.

Viðvíkjandi breyt.till. frá háttv. 1. þm. Rvík. (J. Þ.) um styrk til Guðmundar Hávarðarsonar ökumanns, sem uppbót fyrir flutning á símastaurum, þá tel eg rétt, að veita honum þessar 800 kr., sem breyt.till. ræðir um, af 2,500 kr., er hann fór fram á, og er það rétt hermt, að fjárlaganefndin taldi réttast, að háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) bæri mál þetta fram á þinginu, og átti eg tal við hann um það. — Umboðsmaður ráðherra kvað hann mjög hafa sótt eftir starfa þessum, og viljað fá laun sín, að nokkru leyti fyrir fram, og gefið að lokum fullnaðarkvittun fyrir fé því, er honum bar fyrir stauraflutninginn. — Þetta kann satt að vera; en Guðmundur mun vera maður fljótfær, og því má vænta þess, að fljótfærni, samfara þekkingarskorti hafi orðið honum að fótakefli í samningum hans við stjórnarráðið. Í skjali sínu til þingsins, þá tekur hann það fram, að staurarnir hafi átt að vera komnir upp í Borgarnes í janúar 1906, en í stað þess, þá hafi þeir ekki komið þangað fyr en í maímánuði, og urðu því eigi notaðir ísar eða fannir, og flutningurinn því margfalt erfiðari og kostnaðarsamari, en að vetrinum. Enn fremur tjáist hann hafa beðið tjón af því, að nokkuð af símastaurunum var látið á Kalastöðum, en ekki á Katanesi, eins og áður hafði verið gert ráð fyrir. Vér vitum og allir, að fáfróðir alþýðumenn láta oft leiðast út í, að skrifa undir hitt eða þetta, að lítt yfirveguðu máli, og sem þeir vita alls ekki hvað er, fyr en alt er um garð gengið; þá sjá þeir fávizku sína og athugaleysi, og hversu fögru orðin, sem þeir voru gintir með, reyndust þeim óholl. — Efnahagur hans er mjög þröngur, og er ekki ólíklegt, að þær kröggur hans stafi mestmegnis af því stórtjóni, er hann beið við þennan stauraflutning. Mæli eg því með því, að þingið veiti honum nefnda fjárupphæð, enda þótt hér sé að vísu að líkindum eigi um lagalega kröfu að ræða, heldur að eins um sanngirniskröfu.

Þá skal eg víkja fám orðum að breyt.till. frá háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) um styrk til Guðmundar Friðjónssonar skálds, 600 kr. árlegan styrk; en við hana leggur fjárlaganefndin til, að samþykt sé sú breyt.till., að styrkupphæðin sé að eins 300 kr. á ári. — Vil eg geta þess, fyrir hönd fjárlaganefndar, að hún vill ekki, að sá skilningur sé lagður í þessa breyt.till. hennar, að hún sé að fara í skálda-samjöfnuð, eða meti Guðmund Friðjónsson minna, en önnur skáld, þótt hún ætli honum minni styrk, en öðrum skáldum. — En nefndin lítur svo á, sem styrkur þessi, þótt lítill sé, geti þó orðið góður styrkur fyrir hann og nægt honum til þess, að taka sér fjármann yfir veturinn, eins og hann hefir látið í ljósi, að sér væri góð hjálp að, svo að hann gæti gefið sig meira að bóklegri iðju, er hann er mjög hneigður fyrir, og felst þá og í því viðurkenning fyrir skáldskap hans o. fl.

Viðvíkjandi Eyjafjarðarbrautinni, þá ætla eg að geta þess, að hún virðist ekki bráðnauðsynleg, og því réttara, að láta annað sitja í fyrirrúmi, að þessu sinni. En ekki er hægt að bera á móti því, að kjördæmi þau, er kusu fulltrúa sína úr flokki fráfarandi stjórnar, þau hefir fyrverandi ráðherra öðrum kjördæmum fremur haft í huga, er hann samdi fjárlagafrumv., bæði að því er kemur til fyrirhugaðra vegagerða, brúa o. fl., og má í því skyni benda á Eyjafjarðarsýslu, Rangárvallasýslu og Múlasýslurnar. — En réttasta reglan, er sérhver stjórn getur haft, og ætti að hafa, er sú, að hugsa að eins um það, hvar þörfin er mest, án alls tillits til pólitiskrar skoðunar meiri hlutans í hverju kjördæmi.

Þá kemur tillaga frá háttv. þm. Dal. (B. J.) þess efnis, að veita Eyjólfi Bjarnasyni, tamningamanni, 200 kr. styrk. Fjárlaganefndin getur eigi mælt með tillögu þessari, en lítur svo á, sem það standi nær sýslufélögum þeim, er notið hafa hæfileika manns þessa, að veita honum einhvern styrk í viðurkenningarskyni, þyki þeim ástæða til þess, enda yrði það landinu dýrt spaug, að fara að verðlauna alla hestamenn eða tamningamenn hér á landi.

Háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) og háttv. 2. þm. Rangv. (E. J.) mæltu báðir með styrk til Þorvalds Björnssonar, fyrverandi alþingismanns, og kváðu hann í alla staði styrksins mjög maklegan, þar sem hann hefði verið mjög gestrisinn og hjálpfús, þegar leitað var hans ásjár. — Þetta kann nú satt að vera; en svo er fyrir að þakka, að vér eigum marga góða rnenn í bændastéttinni, og væri farið að borga einum heiðurslaun, þá mundi koma fjöldi fjárbæna til þingsins. Virðist mér því réttast, að deildin sinni ekki fjárbeiðninni.

Að því er snertir hækkun á tillagi til kvennaskólans í Reykjavík, þá tek eg það fram, að fjárlaganefndin er enn sömu skoðunar, sem fyr, að hún vill láta efri deild íhuga málið, og komist hún að annari niðurstöðu, en neðri deild, munum vér ekki gera málið að kappsmáli.

Háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) andmælti tillögum fjárlaganefndarinnar, hvað Eiðaskólann snertir; en það er alls ekki rétt, að álíta, að landið sé að taka lán, þó að höfð sé sú tilhögun, að hjálpa skólanum að þessu sinni á þann hátt, að greiða fyrir hann vexti og afborgun af hálfum byggingarkostnaðinum, og sú fjárveiting miðuð við 28 ár. Næsta alþingi hefir alveg óbundnar hendur, getur, ef því sýnist, farið sömu leið, eða þá greitt einhverja talsverða upphæð upp í byggingarkostnaðinn, eða jafnvel gert Eiðaskólann að bændaskóla. — En það, sem fjárlaganefndin leggur til, það er landssjóði haganlegast, að þessu sinni, og hlutaðeigendum fullnægjandi.

Ummæli háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.), um styrkinn til síra Runólfs Runólfssonar, vona eg, að verði ekki til að fella hann. — Hann taldi fjárveitinguna óþarfa, og ekki viðeigandi, þareð hann væri nýkominn frá Ameríku, og gæti því talist, að nokkru leyti, útlendingur, og að líkindum ekki styrks þurfi. En til þessa er því að svara, að síra Runólfur er setstur hér að, og með því hann er atvinnulaus, þá er hann þess mjög þurfandi, að honum sé hjálpað á þennan hátt; en orsökin til þess, að hann kom frá Ameríku, var sú, að biskup kvað hafa gefið honum ádrátt um, að fá veitingu fyrir Gufudalsprestakalli. — En einhverra orsaka vegna fórst það fyrir. Hann hefir því orðið fyrir all-miklum vonbrigðum, og er það því sanngirniskrafa, að þingið bæti honum það á þennan hátt.