01.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í B-deild Alþingistíðinda. (1114)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Jón Jónssou (1. þm. N.-Múl.):
Eg ætla lítillega að drepa á Eiðaskólann, og verð eg að geta þess að eg er sömu skoðunar og áður, að þetta sé afarmikið nauðsynjamál, ekki að eins fyrir Austfirði, heldur og landið alt.
Háttv. þm. Sfjk. (B. Þ.) sagði það sama við mig og samþingismann minn (Jóh. J.) Verð eg því að líta svo á, að stefnubreyting hans í Eiðaskólamálinu eigi að vera okkur til hegningar og viðvörunar, mér og samþingismanni mínum.