01.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í B-deild Alþingistíðinda. (1115)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Hannes Hafstein:
Þó að lán væri tekið til símalagninga, eins ogh. frsm. taldi gott, þá yrði samt að taka fjárveitingar til símanna upp í fjárlögin gjaldameginn og lánið kæmi þá á fjárlögin tekjumeginn, eða í öllu falli tekjumeginn í landsreiknmgnum. Þetta tal um lántöku — sem auðvitað ekkert verður úr — er því undir engum kringumstæðum nein ástæða til þess fella burt at fjárlögum eða fjáraukalögum heimild til að leggja Vestmanneyjasímann eða aðrar nauðsynlegar símalagningar.
Það er algerlega rangt hjá háttv. frsm. (Sk. Th.) að lánið, sem tekið var á yfirstandandi fjárhagstímabili hafi að eins verið tekið til þess að jafna tekjuhalla. Þetta er þvert ofan í sannleikann. Það var, eins og öllum þingmönnum er kunnugt, tekið til þess að standast kostnaðinn við ýmsar símalagningar og ný fyrirtæki, sem ekki þótti rétt að leggja að öllu leyti á gjaldendur fjárhagstímabilsins, og af lánsupphæðinni er, eins og eg hefi áður sýnt, hér um bil helmingurinn óeyddur — umfram tekju- og gjaldajöfnuð — við lok síðasta árs. Svo fjarri fer því, að það hafi gengið upp í árlegan tekjuhalla, og ekki til símafyrirtækja, og er ilt að heyra mann, sem á að hafa framsögu fjárlaganna fara með önnur eins ranghermi, að eins til þess að sverta í svipinn fráfarandi stjórn og fyrri meiri hluta.
Ekki fremur en þessi nýja lántökuviðbára getur það verið Vestmanneyjasímanum til foráttu, að æskilegt sé að koma upp þráðlausum stöðvum einhversstaðar á landinu, til þess að geta haft samband við skip á sjó og við Skaftafellssýslur. Því að undir öllum kringumstæðum er ástæðulaust að blanda Vestmanneyjum inn í þá tilraun. Sjálf stofnun þráðlauss sambands við Vestmanneyjar er dýrari en síminn, sem í boði er, með því fyrirkomulagi, sem stungið er upp á; reksturskostnaðurinn er mörgum sinnum dýrari, líklega 8—10 sinnum hærri á ári en með talsímasambandi. Þar má miða við þær einu þráðlausu stöðvar, sem Norðmenn hafa, loftskeytasambandið milli Lofoten og eyjarinnar Röst. Þar er árskostnaðurinn 5000 kr. öðrumegin, en 3000 kr. hinumegin, og sleppur þar svo ódýrt að eins af því, að þar er ritsímastöð með launuðum mönnum hvort sem er. Notagildið er ómögulegt að bera saman, svo mjög tekur talsímasamband við alt landið fram þráðlausu ritskeytasambandi við eina einustu stöð. Það er hugarburður einn hjá háttv. þm. A.-Sk. (Þ. J.) að það sé nokkuð ódýrara vegna væntanlegs loftskeytasambands milli Suðurlandsins hér og Austur-Skaftatellssýslu, að setja líka loftskeytastöð í Vestmanneyjum. Það er augljóst, að Skaftafellssýslu nægir ein stöð hér, t. d. við Eyrarbakka, sem hvort sem er þyrfti að koma, þótt loftskeytastöð væri í Vestmanneyjum, án símalagningar þangað. Eg tek það enn fram, að það er síður en svo, að eg vilji kasta neinni rýrð á þráðlausa telegrafinn, þar sem ekki verður öðru við komið, en þar sem hægt er að hafa málþráðinn, er hann betri, hentugri og ódýrari, og að því er sérstaklega snertir Vestmanneyjar, þá er þörfin á sambandi við þær svo mikil, vegna siglinga og fiskiveiða, að þær þola alls ekki að bíða eftir því, að lofskeytatilraunir verði byrjaðar hér einhverntíma og einhverntíma. Við þurfum að fá þráðinn þangað strax, helzt þegar í sumar.
Ummæli framsögumanns um Eyjafjarðarbrautina sýna það, að frá hans sjónarmíði er að eins um flokksvaldsbeiting að ræða, er fjárveitingin til hennar fær ekki að standa í friði. Það er ekki unt að að skilja dylgjur hans á annan veg en sem viðurkenning fyrir því, að tilgangurinn sé að bægja þeim kjördæmum frá því að verða aðnjótandi verklegra framkvæmda, er verið hafa svo óheppin, að kjósa fulltrúa úr flokki fyrverandi meiri hluta við síðustu kosningar. Ásakanir hans til fyrri stjórnar, sem eiga að rökstyðja þessa pólitík af hálfu meiri hlutans nú, eru allar helber ósannindi, og er ekki flugufótur af sannleik í því, að verkfræðingum landsins hafi verið uppálagt, að taka tillit til neins annars en þarfar landsins í tillögum sínum um vegagerðir, brýr, símalagningar og aðrar framkvæmdir. Það er merkilegt, að þessi háttvirti þingmaður skuli láta sér sæma að bera slíkt á borð.
Háttv. umboðsmaður ráðh. (KI. J.) hefir svarað ummælum hans, og skal eg ekki endurtaka það. Það er hér sem áður oft. háttv. framsm. (Sk.Th.) hefir þá hernaðaraðferð, að kenna mótstöðumönnum um öll sín eigin brek. Nú, er fara á að innleiða það hér sem meirihluta prógram, að haga hinum verklegu framkvæmdum eftir flokksfylgi kjördæmanna, þá er honum um að gera að kenna öðrum um það sama. Honum finst nauðsynlegt að »fóðra« þannig það framferði, sem ekki er unt að leyna; andstæðinga-kjördæmi þeirra eru sett hjá, en af meiri hlutans eigin kjördæmum að eins þau, sem talin eru dauð-viss, hvernig sem með þau er farið, eins og t. d. Norður-Ísafjarðarsýsla og Gullbringu- og Kjósarsýsla. Þeim þykir ekki þurfa að stinga neinu að, þau muni fylgja samt blint, eins og hingað til.
Að því er snertir hinar framkomnu breyt.till. fjárlaganefndar um, að færa skáldastyrkinn til Guðmundar Friðjónssonar niður í 300 kr., þá tryggir hún að vísu, að hann verði ekki alveg hjá settur, en furðulegt hlutfall þykir mér það, ef G. Friðjónsson á að fá 300 kr. en Guðmundur Guðmundsson á Ísafirði tvöfalda upphæð, 600 kr., og veit eg ekki við hvað þá er miðað. Eg veit það, að sumir þeir, sem stutt hafa þessa till., gera það í góðri meining, til þess að tryggja hið minna, en ekki af því að þeir meti skáldskapargáfu hans þeim mun lægra, sem styrkurinn er settur lægri. Eg heyri suma segja, að Guðm. Friðjónsson hafi ekki óskað eftir hærri styrk, en sem nægði til þess að halda vetrarmann, og þess vegna vilji þeir ekki fara hærra.
En í fyrsta lagi efast eg nú um, að þar sé um annað en lítillæti að ræða og hógværð, og í öðru lagi álít eg engan vafa á því, að það borgi sig fullkomlega fyrir íslenzkar bókmentir að stuðla að því, að Guðm. Friðjónsson geti haft vinnumanninn einnig yfir sumartímann, en meira getur eigi talist farið fram á í minni till. um 600 kr. Eg vona að ekki stafi nein hætta af sparsemdartilraunum heiðraðar efri deildar, þótt sú upphæðin væri samþ. Hún getur hvort sem er ekki felt alla skáldastyrkina burtu, og mun þá hugsa um samræmi og rétt hlutföll í því, sem veitt er.
Eg ætla ekki að blanda mér inn í umr. um Eiðaskólann, en ætla að eins að biðja háttv. þm. Sfjk. (B. Þ.) að gera svo vel og gefa okkur hinum, sem greiða eigum atkvæði um það mál, upplýsingar um það hvernig það má vera, að skólanum sé eins hentugt að fá að eins litlar vaxtafúlgur um tveggja ára tíma, eins og að fá höfuðstólsupphæðina alla nú þegar. Eg heyrði að hann var að bjóða háttv. 2. þm. N.-Múl. (Jóh. J.) upp á að segja honum þennan leyndardóm! Mættum við ekki heyra það líka? eða býr hér eitthvað undir, sem almenningur má ekki vita um. Ætlar þm. að tryggja sýslunni fúlguna framvegis með vissum skilmálum, gegn einhverjum loforðum, sem við hinir megum ekki vita um? Eg vona því, að hann verði við þessari sanngjörnu ósk minni og gefi öllum kost á að heyra það, er hann hefir að segja till. sinni til stuðnings.
Eg vil taka í sama streng og þm. Vestm. (J. M.), hvað séra Runólf Runólfsson snertir. Eg veit ekki betur en að hann sé heiðursmaður í alla staði, og eigi gott eitt skilið. Hann þjónaði um eitt skeið prestsskap við Holdsveikrasjúkrahúsið og óskuðu sjúklingar einhuga að hann yrði prestur sinn áfram, en því var synjað og öðrum veitt sýslanin og er það það eina dæmi þess á seinni árum, sem eg veit að prestsemhætti hefir verið veitt þvert á móti vilja safnaðarins. Hann hefir áður gegnt prestsverkum í Ameríku, og tekið þar lúterskt guðfræðispróf eða prestspróf með góðum vitnisburði. Eg sé því ekkert sérlegt á móti því, að hann sé settur á borð með vorum prestum og fái styrk þann, sem hér er um að ræða, meðan hann fær ekki prestsstöðu.