01.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 397 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Bjarni Jónsson:

Þótt eg eigi hér ýmsar till. um smáfjárveitingar, eru þær þó ekki framkomnar af því að eg telji landssjóð hvalskrokk, er hver maður geti gengið í og skorið bita af, svo sem einum þm. fórust orð. Eru það ill orð og ómakleg þegar um er að ræða upphæðir til þarfra fyrirtækja eða fjárveitingar til að sjá sóma landsins borgið. Það er svo langt frá sönnu og réttu að líkja slíkum beiðslum við bitaskurð af hvalskrokki, að þau orð er ekki að meta nema brigzlyrði ein. Það er sjálfsagt að spara fé landsins, en þá eiga menn fyrst að gera sér grein fyrir því, hvað sparnaður er. Er það sparnaður að spara nauðsynleg gjöld eða fjárveitingar til þarfra fyrirtækja ? Eg mun jafnan vera fylgjandi fjárveitingum til nauðsynlegra fyrirtækja, hvort sem er í búnaði, verklegum framkvæmdum, listum, bókmentum eða vísindum. Eg á engar till. um fjárveitingar til verklegra framkvæmda, ekki af því að eg vilji ekki styðja þær, heldur af því að þær eiga jafnan næga formælendur og öfluga; till. mínar hníga meira að fjárveitingum til lista og bókmenta, vegna þess að á því bryddir oft, að þetta kunna menn ekki að meta. Þetta er erfitt að meta til fjár og er þó miklu meira virði en hitt alt. Til þess svarar líka það, að upphæðirnar til lista og bókmenta eru miklu minni.

Virðul. þm. Vestm. (J. M.) talaði um símalagningar og bitlinga. Ekki eru þó þessir svokölluðu bitlingar í 15. gr. meiri að vöxtum en það, að vart mundi upphæð þeirra samtöld nægja til að leggja hinn ódýrasta síma, hvað þá meira. Þetta sem eg hefi nú sagt eru almennar athugasemdir; mun eg nú víkja að einstökum till.

Eg mótmæli þeirri till., sem einhver þm. hefir gert, um að eyðileggja styrkinn til að gera þýzk-íslenzka orðabók með því að greiða 40 kr. fyrir örkina. Slíkt er langt frá öllum sanni. Eg skal benda á það, að sá maður, sem hefir nóg að gera við tímakenslu og fær 1 kr. og 50 aura um klst., mun ekki sæta þeim kjörum að fá 2 kr. og 50 aura fyrir hverja blaðsiðu í orðabók. Því að hér er ekki um neinar sníkjur að ræða, heldur verk, erfitt verk, sem skylt er að launa sæmilega. Það er svo langt frá því, að eg hafi verið mótfallinn styrk til að gera íslenzka orðabók. Eg tók það fram á dögunum, að til þess verks hefði eg ekki talið eftir miklu hærri fjárveitingu. Það er svo hlægilega lítil upphæð að greiða 60 kr. fyrir örkina í íslenzkri orðabók, að slíkt er ekki bjóðandi nokkurum manni. Og þótt heilt æfiverk sé, svo sem látið er í veðri vaka um þá bók, þá er það gjöf frá höfundarins hendi að þiggja 60 kr. fyrir örkina í slíku riti. En þeir verða að sletta skyrinu, sem eiga. Ungir menn fátækir geta ekki gefið verk sin. Eg veit það, að þeir, sem vilja eignast þýzka orðabók á móðurmálinu, sem sómi landsins heimtar, munu ekki verða fylgjandi þessari till., því hún ónýtir fjárveitinguna. Till. er með öllu fráleit. Veit eg ekki, af hverjum rökum hún er runnin, og vil eg engar getsakir um það gera. En hún er og óþörf, því að maðurinn er svo trúverðugur maður, að óhætt er að trúa honum fyrir fjárveitingunni, og er það meiri trygging en að bjóða honum 40 kr. fyrir örkina, þar sem hann á völ á miklu betri vinnu.

Um till. til fjárveitinga handa Guðmundunum báðum, er það að segja, að eg er ekki svo ósamkvæmur sjálfum mér, að eg greiði ekki atkvæði með hærri upphæðunum til þeirra. Það var ekki af því, að eg teldi ekki þessi skáld góð og væri þeim þakklátur, að eg bar þá ekki fram til styrkar með þeim skáldum, er eg lagði til með við 2. umr., heldur af því að mér þóttu hin skáldin maklegri en þessi og taldi víst, að þeir, sem hefðu meiri mætur á þessum skáldum og teldi þá maklegri, mundu gera till. um þau, því að þeim var það skyldara. Sá galli, sem bæði eg og fleiri fundu að Guðmundi Magnússyni, bæði það að hann væri fjölorður, væri með óþarfar lýsingar og langlokur, og eins hitt að mál á ritum hans væri mjög meingað, er nú sama sem alveg horfið. Eg hefi lesið bæði Heiðarbýlið og 11 arkir af þeirri bók, sem nú er að koma út eftir hann, og kennir þar svo mikilla framfara og ótvíræðs þroska, að það er bæði skylt og rétt að styrkja manninn. Um hinn Guðmundinn, Friðjónsson, er eg samþ. 1. þm. Eyf. (H. H), að það er ótilhlýðilegt, að Guðmundur Guðmundsson fái 600 kr., en hinn að eins 300 kr., og mun eg samþykkjast hærri upphæðinni.

Við 2. umr. var eg mótfallinn fjárveitingunni til Flensborgarskólans af því mér þótti ekki hæfa að hafa tvo samskonar skóla hvorn við hliðina á öðrum. En nú er mér sagt, að þetta eigi ekki að vera realskóli, heldur unglingaskóli, verði þar og haldnir fyrir| lestrar og kenslan meir látin að því hníga að þroska anda nemendanna. Í trausti þess að þar á verði framkvæmd, mun eg greiða atkv. meðtill. um aukinn styrk til skólans.

Þá skal eg víkja að fjárveitingunni til Einars Jónssonar. Mér er sagt, að einn þm. (J. Ól.) hafi í gær, meðan eg var fjarstaddur haldið ræðu móti þeirri fjárveitingu og talið Einar engan listamann vera, og ekkert listaverk tjáðist hann hafa eftir hann séð. Hlutverk listamannsins er að sýna myndir af lífinu, vekja kendir, sorg og gleði, von og ótta. Þessar kendir eru mönnum oft beizkar í baráttu lífsins. En í myndunum, hvort sem er heldur í leik eða Ijóði eða leir, þar eru áhrif kendanna öðru vísi en í lífinu, því að þar er hver maður áhorfandi, en í lífinu hluttakandi; þar getur hver notið kendanna um leið og hann lærir að dæma lífið.

Schiller segir í bréfum sínum að listin sé munaður kraftanna, (Luxus der Kräfte), að leikur sé til þess að æfa þekkinguna, veita hvíld og gleði, þó svo að menn æfi starfskraftana til lífsins. Þetta er rétt og má sjá í hverjum smábæklingi um listir, en þeir eru margir; í sömu átt hníga byrjanir eða vísar listarinnar, t. d. vopnadans hjá villimönnum. Listin er ekki glingur, gyltir hnappar á fötum; hún er grasið úr lífinu, blóm lífsins, fegrun þess; hún kennir mönnum að neyta lífsins og njóta. Eg skal ráða mönnum til þess að lesa bréf Schillers, þeim er þau hafa ekki lesið; geta þeir svo borið það, sem þar er sagt, saman við Einar Jónsson og listaverk hans og dæmt um það, hvort hann er listamaður, og hvort hann hefir ekkert listaverk gert. Eg vil engum getum að því leiða, hvers vegna þessi þm., sem eg gat áðan, hefir ekki séð neitt listaverk eftir Einar Jónsson. Má vera, að hann hafi ekki vilja til að sjá þau eða ekki auga til þess; eitt listaverk hans hefir hann þó að minsta kosti séð. En nú get eg sýnt honum myndir af listaverkum Einars. Hér er mynd af Kristjáni konungi níunda. (Jón Ólafsson: Ekkert listaverk er það). Jú, listaverk er það, að svo miklu leyti sem hægt er að gera af listaverk. Þá er hér kona og barn. (Jón Ólafsson: Eg hefi séð þá mynd). Jæja, en þm. mundi vafalaust kalla það listaverk, ef það væri ekki eftir Íslending. Þá er hér mynd, sem heitir »Próletarer«, þ. e. fátæklingar; hana kalla þeir góða mynd, sem til þekkja. Enn er »Antikken«, hreinasta listaverk. Þar vantar ekkert á; hún gæti vel verið eftir Fidias; svo líkist hún forngrískum myndum, að eg er viss um, að ef háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) hefði ekki vitað, hver smíðað hefði, mundi hann hafa talið hana forngríska. Það hefir verið talið Thorvaldsen til lofs, hversu vel hann kunni að líkja eftir grískum myndum, en ekki er þessi miður stæld en myndir þess hins fræga manns. En Einar er ekki fyrir að stæla; hann fer sínar eignar brautir. Hér er gamall maður, sem situr í stól; minnist hann ástmeyjar sinnar; en það er ung stúlka, sem sýnd er fyrir framan hann. Hér gætu menn séð listaverk, ef augu manna væru ekki haldin af sýki eða blinduð með öllu. Margt hefir og Einari tekist vel um myndir af náttúruöflum. Má um það benda á mynd eins og »Skýstrokkinn« og »Móður náttúru«. Í »Móður náttúru« er náttúran sýnd, er hún kremur börn sín sum til dauðs, en heldur sumum að brjósti. Eg vil ekki segja, að virðul. 2. þm. S.-Múl. (J. ÓI.) vilji líkja ettir »Móður náttúru«, en því eru líkastar atgerðir manna oft; sumir eru lagðir við móðurbrjóstin, en úr öðrum er lífið kreist með köldum illgirniskrumlum. Það vita allir, hversu vel Einari tekst að móta í stein eða steypa alíslenzkar myndir. Um það lofa hann allir, sem af nokkurri sanngirni tala um hann. »Útilegumanninn« þekkja allir; það er ekki gallalaust verk, en það er gott verk, hugmyndin í Þjóðsögunum vel mótuð. Enn er ágæt mynd »Dögun«. Nátttröll hefir numið á braut stúlku. Sólin kemur upp. Karl heldur á stúlkunni; hún fórnar höndum til sólarinnar, en karl kreppir hnefana móti sólunni og er að verða að steini. Það er sýnt meistaralega, hversu tennur hans breytast í stuðlaberg, augabrýr hans í hellisskúta. Jónas Hallgrímsson er frægur fyrir það, að hafa ort gullfallegt kvæði um jarðfræði; útlendingar hafa stórlega undrast það. Hér er jarðfræði í steypu hjá Einari Jónssyni. Það sýnir, að Íslendingar eru svo samvaxnir sinni náttúru, að það kemur fram í þeirra lífi, þeirra starfi, sérstaklega listamannanna. Hér stendur Einar Jónsson við hliðina á Jónasi Hallgrímssyni. Eg vona, að 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) hafi nú séð, ekki eitt listaverk eftir Einar Jónsson, heldur mörg. Hér er eitt enn, hönd veltir bjargi. Eg vona, að það tákni, að bjargi verði lyft af augum Íslendingum, svo að þeir sjái listamenn sína, þurfi ekki að drepa þá fyrst eða traðka verkum þeirra, ef þeim finst á þeim einhverjum galli. Það er þeim ekki til eftirbreytni, að aðrar þjóðir gera það; þeir mættu gjarnan af þeim læra að gera það ekki. »En sá er jafnan endir á Íslendinga sögum«, að gáfumenn, skáld og aðrir eru drepnir eða kvaldir vegna harðra dóma landa þeirra. Eitt skáld hefir lýst vel þessum endaskiftum í lífinu, hversu mönnum er aftrað að þjóna löngun sinni, hversu matstríðið bælir niður hugsjónirnar. Skáldið segir:

Ungum lék mér löngun á

að lifa til að skrifa.

Sköp hafa því svo skift, eg má

skrifa til að lifa.