29.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (1143)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Bjarni Jónsson:

Eg get ekki sagt, að þakklátssemi við Ed. íþyngi mér fyrir meðferð hennar á fjárlögunum. Þó er eg henni þakklátur fyrir það, að hún hefir veitt Guðmundi lækni Tómassyni styrk. Það er hin mesta nauðsyn á, að sinna styrkbeiðni hans. — Vér höfum haft margar og margvíslegar framfarir hér á landi á síðast liðnum áratugum, en vér erum ekki fremur en aðrar þjóðir undanþegnir skuggum menningarinnar. Er það sem allir vita afleiðing þess, er menn flytja saman í bæi og samgöngur aukast, að landlægir verða ýmsir sjúkdómar, sem hættulegir eru, af því að þeir eru tíðastir á fátæku kvenfólki og geta haft hinar verstu afleiðingar, svo sem bólgu í lífmóður og öðrum áríðandi líkamshlutum, óbyrjuskap o. fl.

Guðm. Tómasson ætlar sér að veita slíku fólki ókeypis læknishjálp, ef hann fær styrkinn.

Öllum er það kunnugt, að ill aðbúð og vankunnátta getur orðið sængurkonum að margvíslegu meini, gert þær óbyrjur, örkumlaðar og sjúkar á ýmsan hátt. Þessu vill Guðm. Tómasson bjarga við með því, að koma upp vísi til fæðingarstofnunar, þar sem fátækar stúlkur og konur geti notið hjúkrunar, meðan þær liggja á sæng. Þetta er hið mesta nauðsynjaverk, og það eitt út af fyrir sig væri styrksins maklegt.

En svo er á það að líta, að auk þess mundu menn, sem ganga á læknaskólann, hafa gagn af þessari stofnun, því að hana mundu sækja miklu fleiri, heldur en aðrar sjúkrastofnanir hér í bænum. Einnig er það leiðinlegt, að læknaefni okkar skuli ekki mega sitja yfir konum, fyr en þeir hafa verið marga mánuði í Kaupmannahöfn á fæðingarstofnuninni þar, að eg ekki tali um það, hversu nauðsynleg slík stofnun væri, er hér er settur upp háskóli.

Nú er þess að gæta um manninn sjálfan, að auk þess, sem hann er gáfaður maður, þá hefir hann ráðist í allmikinn kostnað, af því hann áleit, að þörf mundi vera á, að setja á stofn slíka stofnun, og hefir þess vegna farið til ýmsra landa til þess, að afla sér fræðslu um þessa hluti, þar á meðal hefir hann dvalið í Englandi á sérfræðisstofnun í þessari grein, og mun hann hafa kostað til þessarar fræðslu freklega 1000 kr. og auk þess miklu til verkfærakaupa.

Þinginu ætti því að vera ljúft, að veita manninum þessa upphæð, auk þess, sem það er aðalatriðið í þessu máli, og þó engin ástæða væri önnur, þá væri hún ein nægileg, en hún er sú, að maðurinn fái að njóta þess, er hann hefir lært, því það liggur í augum uppi, að ef maður þessi verður að hrekjast í eitthvert útkjálka læknishérað, þá hefir hvorki hann sjálfur né landið í heild sinni not af lærdómi hans. Vona eg því til, að deildin láti þetta komast í gegn, einkum þar sem efri deild hefir sýnt þá sannsýni, að samþykkja þetta, sem eg er henni þakklátur fyrir.

Þá er orðabókarstyrkur til Jóns ritstjóra Ólafssonar. Þótt eg legði það til áður, að þessi styrkur yrði feldur, þá var það fyrir þá sök, að mér þótti ekki nógu vel til bókarinnar vandað, að láta einn mann gera hana og eigi nægilegt fé. En er eg sá, að deildin treysti þessum manni til verksins, þá greiddi eg atkvæði með hærri upphæðinni. Af sömu ástæðu legg eg nú til, að styrkurinn sé hækkaður aftur.

Þá hefir háttv. Ed. skorið niður styrk til Jóns Ófeigssonar til að semja þýzka orðabók. Þessi fjárveiting var samþykt hér í deildinni með 14 : 9 atkv., og vona eg, að þeim sömu mönnum hafi ekki snúist hugur síðan, og það því síður, sem komið hefir fram tillaga um það, að þingið veitti styrk til þess, að gefa út kenslubækur. Og enginn mun bera á móti því, að orðabækur séu kenslubækur, því þær eru það handhægasta hjálparmeðal, þeim sem mál vilja nema. En að þurfa að hafa millilið í milli síns eigin máls og þess, sem numið er, það er afar-óheppilegt og skaðlegt fyrir móðurmálið. Maðurinn er duglegur og áhugamikill, og því engin hætta á, að styrknum verði ekki vel varið, en stór nauðsyn á, að hann fáist. — Eg vona því, að þessir 14 menn, sem greiddu atkvæði með þessu um daginn, hiki ekki við, að gera það enn.

Þá hefi eg með 1. þm. Eyf. (H. H.) lagt til, að styrkurinn til Einars Hjörleifssonar skálds, og Þorsteins Erlingssonar verði hækkaður upp í það sama, sem hann var, er fjárlögin fóru héðan úr deildinni. Eg vil minna menn á það, að reglan við slíka styrkveitingu á að vera sú, að styrkurinn geti komið styrkþega að notum. Þess vegna ef styrkurinn er alt of lágur, þá verður maður einhvernveginn við að bæta, til þess að geta dregið fram lífið. — En þá getur vel svo farið, að maðurinn missi sjónar á sínu eigin starfi — eða sökum þreytu og annríkis aldrei geti að því unnið — og af þessum ástæðum eiga háttv. þm. að greiða atkv. með hærri styrknum, því þá er öllu borgið, manninum, verkinu — og styrknum. — En að hugsa sér að hann lifi af 1000 kr., nær ekki nokkurri átt, og maðurinn þarf að vinna mikið til þess að fá það í 1500 kr. Hér er ekki vani að borga meira en 30 kr. fyrir örkina í ritlaun, og verða þeir þá að unga úr sér rúmum 17 örkum til þess að vinna upp mismuninn. Þeir sem vilja koma mönnum í slíkt öngþveiti, geta ekki búist við að árangurinn af aðalstarfi þeirra verði mikill. En fái hann 1500 kr., þá getur hann með léttu móti unnið fyrir því sem ávantar til þess að geta lifað, og ef í harðbakka slær, þá getur hann dregið fram lífið með það. Þingið hefir sýnt, að það hefir viljað styrkja þessa menn, hvers vegna þá ekki að styrkja þá þannig, að landinu verði að gagni? Þeir sem fært hafa þenna styrk niður hafa raunar fyrir landssjóðs hönd sparað 800 kr., en þeir hafa um leið ónýtt fyrir landssjóði 1000 kr. og 1200 kr., og auk þess starfsemi þessara manna að miklu leyti. Ef einhver er hræddur við, að Ed. muni fella þetta aftur, ef það nær samþykki hér, þá er slíkt ekki á ástæðu bygt, því að svo miklir fjármálamenn munu þeir þó vera, að þeir ekki vilji kasta 1000 kr. í þingkostnað, til þess að geta sparað þessar 800 kr. En illa væri farið, ef hægt væri að heimfæra vísu þessa upp á þessa menn og afskifti þingsins af þeim:

»Þjóðin hann syrgði

og harmandi hrein

og hlóð niður peningum

dauð yfir bein«.

Menn sjá að eitt skáld og einn rímari leggja þetta til. Veit eg að mörgum hefir þótt skáldið leika vel á strengina, og vona eg að menn meti dóm hans svo mikils, þeir sem altaf þurfa einhverja stoð til að styðja sig við, að þeir verði ekki mótfallnir þessari tillögu okkar.