29.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í B-deild Alþingistíðinda. (1151)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Framsögumaður (Skúli Thoroddsen):
Eg skil ekki, hvernig nokkrum manni getur dottið í hug önnur eins fjarstæða og það að ætlast til þess, að hægt sé að marka fjármálastefnu hinnar nýju stjórnar á fjárlögum, sem lögð eru fyrir þingið af hinni fráförnu stjórn, og þar sem gert er ráð fyrir yfir 300 þús. króna tekjuhalla, auk tekjuhalla á aukafjárlögum, er nemur hátt á annað hundrað þúsund króna, og ekki sízt þegar svo háttar, að við megninu af útgjöldum þeim, sem á fjárlagafrv. eru, verður alls ekki hreyft, þar sem um föst útgjöld ræðir, eða lögákveðin, sem ekki verður haggað við. Þegar svo er í garðinn búið, þá er vitanlega ómögulegt að ráða neitt af till. meiri hluta fjárlaganefndar um það, hverja stefnu nýja stjórnin ætlar sér að taka, að því er til fjármála landsins kemur.
Eg drap á, hver tekjuhallinn var áætlaður, þótt eg eigi nefndi hinar ákveðnu upphæðir; en hvernig stæði fjárhagurinn nú, eftir afskifti hinnar gömlu stjórnar og flokks þess, er hún styðst við, hefði ekki verið slík veltiár til lands og sjávar, sem verið hafa að undanförnu? Minni hlutinn sem nú er, á ekki þakkir skilið fyrir það, þótt vel hafi fiskast, og hátt verð verið á fiskinum.
Að öðru leyti skal eg geta þess, að eg veit ekki betur, en að háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) og hans flokksbræður í fjárlaganefndinni hafi greitt atkv. með mörgum hækkunum á fjárlögunum, og situr því eigi á honum, að vera að álasa meiri hlutanum fyrir aðgerðir hans, né fyrir það, að meiri hlutinn vill synja um fjárveitingar til ýmsra fyrirtækja, þar sem 1. þm. S.-Múl. (J. J.) sem og ýmsir flokksbræður hans hafa greitt atkvæði gegn fjárveitingum til brúa, vega og síma hvað ofan í annað, sem er sama sem þeir segi við sjálfa sig: »í þessum heiðri verð eg að fá hlutdeild«.