05.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í B-deild Alþingistíðinda. (116)

5. mál, samband Danmerkur og Íslands

Steingrímur Jónsson:

Eg ætla að minnast örfáum orðum á það, sem tveir háttv. síðustu ræðumenn beindu til mín. Háttv. þm. V.-Ísf. sagði snemma í ræðu sinni, að 4. gr. í frumv. stjórnarinnar, væri eins og hanki fyrir danska fingur. Eg skil þetta ekki, því að greinin er skýr og greinileg í alla staði. Greinin er sett inn af ótta fyrir því, að Danir af gömlum vana kunni að vilja svæla þessi mál undir sig.

Það er ekki rétt, að við séum að rífast um það, hvernig eigi að skilja 6. gr. En til þess að mögulegt sé að skilja hana, þarf að skoða hana í sambandi við lögin sjálf.

Háttv. þm. V.-Ísf. gerði nokkrar athugasemdir um fæðingjaréttinn, en gleymdi þeirri viðurkenningu, sem liggur í því atriði, að okkur er líka leyft að gefa fæðingjarétt, sem er jafn rétthár danska réttinum. Þetta er ákaflega mikils varðandi atriði. Það sem háttv. þm. sagði viðvíkjandi gerðardóminum, var algerlega röksemdalaust, og því ekki ástæða að svara því frekar. Hann gat þess, að eg hefði notað orðið »afskræmi«; eg man ekki til þess, að eg hafi notað þetta orð, en mér fanst eg gera svo ljósa grein fyrir máli mínu, og vil ekki taka neitt aftur af því.

Meiri hlutinn hefir felt burt greinar, sem verulegar réttarbætur voru í, og enginn hefir neitað. Þetta hefði ekki þurft að gera. Háttv. þm. V.-Ísf. tók það líka til, að eg hefði brixlað meiri hlutanum um leikaraskap, en eg sagði að það væri leikaraskapur, ef háttv. meiri hluti héldi að hann fengi sínu frv. framgengt. Eg hélt því fram, og eg endurtek það, að allur þessi brestur, sem gerður hefir verið, hafi að eins verið gjörður til að koma Hannesi Hafstein frá völdum.

Háttv. þm. Ak. talaði um að eg hefði verið með aðdróttanir, en ræða hans sjálfs úði og grúði af aðdróttunum. Eg skal ekki fást við að svara einstökum atriðum. Hann sagði að það væri undarlegt að tala um orðabreytingar í frumvarpinu, þar sem um verulegar efnisbreytingar væri að ræða. Þetta var sagt út í loftið, því að háttv. 5. kgk. og eg höfum fært skýr rök að því, að flestar breyttill. meiri hlutans eru aðeins orðabreytingar. Það einasta sem þm. sagði af viti, var það, að erfitt væri að skilja frumvarpið eins og það nú líti út. Hann dróttaði því að okkur, að við kæmum fram í þessu máli eins og vissir »prokuratorar«; hann dróttar því að okkur, að við segjum rangt til og bar það saman við að eg hefði sagt ósatt um Húsavíkursókn; en honum láðist, þeim háttv. þm., að geta þess, að það var hann sem af velvild sinni fekk flokksbræður sína til þess að drepa það frumv., og við því verða engin önnur rök fundin heldur en hefnigirni hans. Eg ætla ekki að svara þeim ákúrum hans að við höfum líka komið fram sem prokuratorar fyrir Dönum. Við höfum fengið svo mikið af slíku að það munar lítið um ekki meiri mann en þm. Ak. Og það mun víst aldrei standa okkur fyrir svefni. Hann vítti okkur harðlega fyrir það, að við fullyrtum, að Danir mundu aldrei taka til greina kröfur okkar um persónusamband. En til þessa er tvennu að svara. Fyrst og fremst því, að enginn stjórnmálamaður í Danmörku mundi taka í mál neitt svipað. Þetta höfum vér fengið að vita með fullri vissu, og hitt er að væna okkur um lýgi. Og í öðru lagi er sú pólitíska stefna, sem nú ræður í heiminum, algerlega andvíg persónusambandi. Þessi stefna þykir alveg ósamrýmanleg við þjóðræði.

Eg hefi svo ekki meira að athuga við það sem sagt var, og ekki fleira að segja í þessu máli. En eg vil lýsa því yfir hér í þinginu, að þegar atkvæðagreiðsla fer fram um þetta mál hér, þá verður greitt atkvæði um það, hvort Ísland skuli verða sjálfstætt í málefnasambandi við Dani, eða hvort vér skulum halda áfram að búa við stöðulögin frá 1871. Fyrir mér er þetta alveg ljóst, og eg tala alveg þykkjulaust, svo ekki verður sagt að eg hafi sagt neitt í hita eða fljótfærni.