05.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 343 í B-deild Alþingistíðinda. (117)
5. mál, samband Danmerkur og Íslands
Lárus H. Bjarnason:
Það er auðséð af því, hve margir meirihlutamenn hafa talað, að minni hlutinn hefir þó verið álitinn svara verður, og eg slæ því um leið föstu, að það hefir verið sókn en ekki vörn af hendi minni hlutans í dag.
Háttv. framsm. meiri hlutans er í rauninni eini ræðumaðurinn, sem svara þarf, því að hitt, sem sagt hefir verið, er naumast svara vert. Hann sagði ýmislegt í framsögu sinni, sem eg gleymdi að svara þá, meðal annars, að gæfa Íslands væri naumlega komin undir sambandi við Dani um utanríkismál og hermál, og eg er honum alveg sammála um það, en hann gætir ekki að því, að vér fáum ekkert samband við Dani, ekki einu sinni konungssamband, nema því að eins, að utanríkismál og hervarnir sé sameiginleg. Það er heldur ekki gerandi eins lítið úr hervörnum Dana og flutningi þeirra á málum vorum við aðrar þjóðir, eins og meiri hlutinn gjörir. Því að þó að Danir geti hvorki varið sjálfa sig né oss, ef stórþjóð ræður á þá, þá er samt mikill stuðningur að því, að vera í sambandi við gamalt ríki. Og að því er flutning þeirra á utanríkismálum vorum snertir, má t. d. benda á tollsamninginn við Spánverja, frá 1893. Það er góður samningur, og þar nutum vér einungis Dana. Allir samningar, hvort sem þeir snerta einstaka menn eða heil lönd, eru bygðir á hagsmunavon beggja aðila. Vér kaupum lítið eða ekkert af Spánverjum, en Danir standa í töluvert miklum viðskiftum við þá. Vér fengum með samningnum 20 pezeta eða um 14 til 15 kr. tollafslátt af hverju skpd. af saltfiski.
Háttv. framsm. sagði ennfremur að hér væri ekki verið að þrátta um annað en smámuni eða um »keisarans skegg«, þar sem örlítið bæri milli frumvarps meiri hlutans og frumvarps minni hlutans. En úr því svo er, og eg undirstrika þessi orð háttv. framsm., hví samþykkir meiri hlutinn þá ekki frv. minni hlutans sem allir vita að er fáanlegt, og tekur aftur sitt frumvarp, sem hann játar sjálfur að sé allsendis ófáanlegt.
Eg verð að játa, að eg varð dálítið hissa á háttv. þm. Strand. Hann hafði auðsjáanlega hugsað lítið, bæði málið sjálft, og það sem hann sagði um það. Hann talaði, að það varðaði mest til allra orða, að undirstaða rétt væri fundin, og eg er honum sammála um það, en vill þá þessi háttv. þm. halda því fram, að frumv. nefndarinnar sé bygt á lausari grundvelli en stöðulögin. Hann greip á hundasundi niður á þremur máttarstoðum undir kröfum meiri hlutans, og nefndi þær lagalegan rétt, siðferðislegan rétt og þjóðarviljann. En eg get frætt þm. um það, að Jón Sigurðsson gerði ekki eins mikið úr þeim lagalega rétti, sem þm. taldi fyrstan, eins og úr hinum eðlilega rétti vorum. Og eg vil ennfremur benda honum á að þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) hefir nýlega lýst því yfir á þingi, að hann gerði ekki eins mikið úr þeim lagalega rétti vorum og úr þjóðernisrétti vorum. Og loks skal eg minna á, að háttv. þm. Strand. gerði ekki eins mikið úr lagaréttinum í nefndinni, svo sem sjá má í nefndaráliti meiri hlutans, er hann hefir skrifað undir. Um hinn siðferðislega eða öllu heldur eðlilega rétt vorn til að vera frjáls og sjálfstæð þjóð, erum vér aftur á móti allir sammála, og á honum höfum vér millilandanefndarmenn aðallega bygt. Sem þriðja máttarstólpann nefndi þm. vilja íslenzkra kjósenda og taldi hann þann hinn sama, sem meiri hlutinn nú berst fyrir, en þetta er ekki rétt. Hér gæti að eins verið að ræða um samræmi milli vilja þeirra kjósenda, sem komu á kjörfund og greiddu meiri hlutanum atkvæði, og vilja meiri hlutans á þingi. En ekki einu sinni því er að heilsa, því að meiri hluti kjósenda var aðeins sammála um það eitt, að vilja ekki nefndarfrumvarpið óbreytt, en um frumvarpsómynd þingsmeirihlutans hafa kjósendur ekkert sagt, þegar af þeirri ástæðu, að það kom fyrst fram á þingi fyrir nokkrum dögum. Og sízt af öllu hefði þm. átt að citera gjörðir Þingvallafundarins 1907; því að það er sannast að segja, að þeir menn, sem skrifuðu undir þá samþykt, hafa ekki vitað hvað þeir voru að skrifa undir. Ef feður Þingvallafundarins hefðu vitað hvað þeir gerðu, hefði samþyktin aldrei orðið lengri en 1. málsgreinin. Viðaukinn sýndi ljóslega, að þeir skildu ekki það sem þeir voru að fara með, hvorki svokallaðir Landvarnarmenn né Þjóðræðismenn, sem í rauninni er og hefir altaf verið eitt og hið sama, tilgangurinn altaf samur, að steypa stjórninni, sem var, enda altaf fylgst að málum.
Auk þeirra sannana, sem eg taldi fyrir því, að Ísland yrði fullveðja ríki samkvæmt frumvarpinu, má telja uppsagnarréttinn eftir 9. gr. Vér getum ekki sagt oss undan þeim lögum, sem oss fellur ekki við. Hinsvegar segir maður því upp, sem maður semur á sig. Eg skal svo ekki fara frekar út í það, sem háttv. þm. sagði, en vil aðeins segja honum það, að hann skal ekki halda, að vér minnihlutamenn séum að halda uppi vörn fyrir oss. Vér stöndum hér miklu fremur sem ákærendur meiri hlutans. Eg fyrir mitt leyti ákæri að minsta kosti meiri hlutann fyrir öll hin óforsvaranlegu afskifti hans af sambandsmálinu.
Eg get strax skotið því að háttv. þm. Ak., að það situr sízt á honum, að tala um ruddaskap eða um vilja kjósenda, hann sem situr hér í óþökk sinna eigin kjósenda. Og ekki fer honum það betur, nýgræðingnum þeim, að vera að monta af því, að hann slysaðist inn á þing í þetta eina skifti og skósa aðra, sem miklu lengur hafa notið trausts og umboðs sinnar þjóðar en hann, með því að þeir hafi ekki náð kosningu. Annars mun eg athuga manninn nánar seinna.
Háttv. þm. G.-K. talaði af miklum móði, en ekki vil eg taka hart á honum fyrir það, því að hann er að mörgu leyti mætur maður. En ríkisréttarfræði hans skal eg ekki fara út í. Við fullveldishjali hans og misskilningi á málefnasambandi og persónusambandi liggja sæmilega skýr svör í framsögu minni. Eg ætla aðeins að athuga þau einstöku atriði, er hann misskildi og hermdi rangt frá. Hann var hræddur um að Ísland kynni að verða látið af hendi ef frumvarp millilandanefndarinnar yrði að lögum og Danir biðu ósigur í hernaði. En það er svo fjarstætt sem mest má verða. Frumvarpið gjörir Ísland að séreign Íslendinga, og það er beint tekið fram, að ekki megi það af hendi láta. Eftir stöðulögunum aftur á móti er Ísland »óaðskiljanlegur hluti Danaveldis« og Danir mundu vafalaust telja sér heimilt að láta það af hendi eftir 18. gr. grundvallarlaganna. Hér hefir þm. því bein hausavíxl á réttu og röngu. Þá sagði háttv. þm. að minni hlutinn sem nú er hefði gert þetta mál að æsingamáli. Þetta er blátt áfram ósatt. Hér kennir þm. að ónefndra manna sið, saklausum um það, sem hann og hans flokksbræður hafa einmitt sjálfir gjört. Auk hinna alræmdu æsinga blaðanna, einkum Ísafoldar, má minna á margt athæfi sjálfra þingmanna, t. d. »Halakleppsgrein« háttv. þm. V.-Ísf. í Ísafold, sem var einhver svæsnasta greinin í »agitationinni« móti frumvarpinu. Og ef ætti að fara að lýsa kosningaundirbúningi meiri hlutans, þá kæmi sannarlega margt misjafnt á daginn. Eg veit um eitt kjördæmi, þar sem Ísafold hélt úti þrem launuðum utanhéraðsmönnum auk ótalinna innanhéraðsmanna til að steypa þingmannsefni frumvarpsmanna. Einn smalinn, sem nú er þingmaður, játaði, að hann fengi borgun frá Ísafold. Annar smalinn, líka launamaður Ísafoldar, var látinn liggja við í kjördæminu frá því um vorið og fram yfir kosningar. Hann var sérstaklega látinn bera út ýmsar kynjasögur og Gróuleytissögur, t. d. það, að ekki mætti samþykkja frumvarpið af því, að þá mundu allir íslenzkir karlmenn verða kallaðir í stríð og strádrepnir niður. Svona mætti halda lengi áfram, en eg hirði ekki að gera það, því þetta vita háttv. deildarmenn, og sérstaklega meiri hlutinn, eins vel og eg. — Háttv. þm. brigslaði Heimastjórnarmönnum um ósamkvæmni, sagði að þeir hefðu talið það ástand ágætt 1903 og síðar, sem þeir löstuðu nú, en þetta er algjörlega rangt. Vér Heimastjórnarmenn töldum innanlandsstjórnar-fyrirkomulagið gott 1903 og síðar, og teljum svo enn þá, en sambandinu milli landanna höfum vér aldrei hælt, heldur þvert á móti, en það var ekki farið að ræða það fyr en í þingmannaförinni 1906 og eftir hana.
Háttv. þm. sagði að dr. Berlin hefði samið millilandafrumvarpið, en það er alveg tilhæfulaust; það gerðum vér Íslendingar.
Háttv. þm. sagðist ennfremur efast um, að breyt.till. minni hlutans við frv. væru fáanlegar. Auðvitað er ekki hægt að færa fram hér í þingsalnum sannanir fyrir því að svo sé, en ef háttv. meiri hluti vildi kjósa heiðarlegan og þagmælskan mann til að grenslast eftir því hjá fyrv. ráðherra, þá mundi hann geta fengið sannanir fyrir því, að svo mun þó vera. Annars var það skylda nefndarinnar í Nd. að bera sig saman við nefndarmennina dönsku meðan hún vann að þessu máli, og hefði hún gert það, þá hefði hún getað fengið að vita hverjar breytingar mundu vera fáanlegar. — Háttv. þm. eða einhver annar flokksbræðra hans fann mikið að því, að nota danskan kaupfána. En fyrst og fremst getum vér lögleitt hvaða fána sem vér viljum innanlands, ef frumvarpið kemst á. Og í annan stað getum vér þá alveg losnað við hann líka í utanlandssiglingum eftir rúman mannsaldur, og svo lengi getur það ekki verið nokkur bagi fyrir okkur að hafa danska kaupfánann. Fyrst og fremst eigum vér nú fá eða engin skip í millilandasiglingum, enda er sérstakt flagg ekki mikils virði, nema menn hafi púður og kúlur til að verja það með.
Eg hefi þegar að nokkru leyti svarað háttv. þm. V.-Ísf. Hann vitnaði líka í Þingvallafundinn, en það hefði hann ekki átt að gera fremur en hinir, því meiri hlutinn hefir runnið frá þeim kröfum, sem settar voru fram í ályktun fundarins. Í henni stendur berum orðum, að fáist ekki hreint persónusamband, þá telji fundurinn ekki annað fyrir höndum en skilnað. Hér sem víðar, hefir meiri hlutinn runnið undan þeim kröfum, sem hann sjálfur hefir sett upp til málamynda. Hæstv. ráðherra, sem annars varð ekki flökurt af feitmetinu, má nú t. d. ekki heyra skilnað nefndan, kallar hann nú hugarburð og loftkastala. Háttv. þm. flaggaði líka með »fullveldinu«, sem segir í raun og veru ekki neitt. Í Ameríku og á Þýzkalandi er t. d. ekkert »fullvalda« ríki til, og eru sum þeirra þó stórveldi. Og eftir skilningi meiri hlutans á »fullveldi« er ekkert land undir sólunni fullvalda, því að ekkert land ræður eitt öllum sínum málum. Allar þjóðir binda einhver bönd, t. d. póstsambönd, tollsamningar o. s. frv. Aftur á móti var Pólland »fullvalda« í réttum skilningi þess orðs, eftir samninginn við Rússa 1793.
Rella háttv. þm. V.-Ísf. út af Jóni Sigurðssyni er varla svaraverð. Hvað sem J. S. kann að hafa sagt 1869, þá verður þó ekki frá því komist, að hann skrifaði undir það, að Ísland væri »óaðskiljanlegur hluti Danaveldis«. Og óvart varð háttv. þm. á að segja nokkuð, sem eg þakka honum fyrir. Hann sagði að það hefði ekki verið nema eðlilegt, að hæstaréttarfrumvarpið var látið daga uppi hér í deildinni, og vegna hvers? Af því að það færi í bága við stöðulögin! Þar með viðurkennir hann að stöðulögin séu gildandi lög hér. — Þá neitaði háttv. þm. því, að 6. gr. frv. trygði oss fult einræði inn á við, og benti því til sönnunar á 4. gr. Eg sagði að Ísland fengi fult vald inn á við yfir öllum sínum eigin málum, en datt auðvitað aldrei í hug að segja, að það ætti eitt að ráða þeim málum, sem það hefir sameiginleg við Dani og ætti því ekki nema að hálfu leyti, eins og t. d. póstsambandi og ritsímasambandi. Setjum svo, að háttv. þm. eigi bát með öðrum manni, að þeir eigi t. d. sinn helminginn hvor, og myndi enginn álíta það skerðing á »fullveldi« þm. yfir hans eigin málum, þó að hann réði ekki einn öllu um sameignarbátinn. Þá sagði þm., að jafnréttis- og fæðingjaréttarákvæðin væru Dönum í hag. En það er alveg þvert á móti. Vér fáum miklu meira hjá Dönum samkvæmt frumvarpinu, heldur en Danir hjá oss. Þeir fara oss að kostnaðarlausu með öll sameiginlegu málin; íslenzkir námsmenn njóta Garðstyrks framvegis eins og undanfarið, og vér verðum undanþegnir herþjónustu eins og hingað til, og fáum 1 miljón og 500 þús. kr. útborgaðar í peningum, auk þess sem vér njótum að öðru leyti fulls jafnréttis á borð við Dani í Danmörku. Danir fá á hinn bóginn að eins leyfi til að halda þeim rétti til landhelgisveiða, sem þeir hafa nú fyrir ekkert, og þó að eins á meðan þeir verja landhelgina, og svo sjálfgefið jafnrétti á við Íslendinga, flytji þeir hingað. Og ekki held eg heldur að við þurfum að óttast það, að Danir fari að flykkjast hingað; það er miklu hættara við »invasion« frá lakari löndum, t. d. Noregi.
Háttv. þm. Ak. þarf eg ekki að svara mörgum orðum. Hann sagði, að millilandanefndarmennirnir hefðu heykst fyrir Dönum og enda »prokurerað« fyrir þá. Það situr illa á meiri hluta manni að segja annað eins, eftir að heimafrakkasti aðaltrúnaðarmaður flokksins hefir fleygt sér jafn flötum fram fyrir fætur Dana og raun er á orðin, og annar trúnaðarmaður flokksins hefir sagt Dönum, að Íslendingum væri það nóg frelsi, að fá sjálfir að selja fisk sinn á Spáni og síld í Noregi. Enda veit þingmaðurinn, að millilandanefndarmennirnir komu hvívetna fram sem fullorðnir og heilbrigðir menn. Hann sagði ennfremur að það væri ósatt, að frumvarpið hefði verið brúkað móti Hannesi Hafstein. En því verður þó ekki neitað. Þm. N.-Ísf. lýsti yfir í ræðu í Nd., að þjóðin hefði heimtað að þingið samþykti vantraustsyfirlýsingu til H. Hafsteins. — Það er ekki rétt, að minni hlutinn hafi þagað um, að breytingar væru fáanlegar. H. Hafstein lýsti því yfir í Nd., þegar hann lagði frumvarpið fram, að hann byggist við, að Nd.-nefndin bæri sig saman við ríkisþingsnefndina, en það hefir ekki verið gert. Nefndin í Nd. hefir ekki gert annað en að slóra allan þingtímann. (Forseti: Þingmaðurinn áminnist um að brúka þingleg orð). Eg hefi ekki sagt annað en það sem satt er. (Forseti: Þá víti eg þetta orðbragð, að slóra!). Mér er sama. En auk þess sem Hannes Hafstein lýsti þessu yfir í Nd., þá var því líka skotið að 1. þm. Skagf., að þessar breytingar væru fáanlegar, til þess að hann skýrði flokksmönnum sínum frá því og samnefndarmönnum. Hann mun líka hafa gert það, en því fekst ekki framgengt, að breytingarnar væru ræddar í nefndinni. Sjálfur vildi H. Hafstein ekki bera breytingamar fram, af því hann þóttist viss um, að það mundi einungis verða til að spilla fyrir því, að þær yrðu teknar til greina, enda hefir nú sú raun á orðið. — Annars skal eg geta þess, að úr því að því hefir verið lýst yfir af meiri hluta mönnum, að aðalástða þeirra til að vera á móti frv. stjórnarinnar sé vilji kjósendanna, þá vænti eg þess, að háttv. þm. Akureyrar virði svo vilja rnikils meiri hluta kjósenda sinna, að hann greiði atkvæði með frumvarpinu. Þeir hafa heimtað það af honum með skriflegri áskorun, sem kunnugt er orðið.