19.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í B-deild Alþingistíðinda. (1180)

2. mál, fjáraukalög 1908 og 1909

Framsögumaður (Björn Jónsson):

Út af aðdróttuninni um, að það væri að eins einn maður, er berðist fyrir brúarstæðinu á neðra staðnum, — þá skal eg geta þess, að bæði hann, þ. e. Sigurður á Selalæk, og ýmsir fleiri, hafa sagt mér, að þeir vildu fegnir hafa brúna á efra staðnum, með því að meiri átroðningur mundi verða á sínum bæ (Selalæk), ef hún yrði neðar. — En hitt hefir verið smíðað af öðrum, verið notað til »agitationar« gegn Sigurði við þingkosningarnar. Það er alt og sumt.

Þá var talað um vandræðin, að verða að selflytja allan flutning yfir ána. En við slíkt hafa menn þó orðið að búa frá því er landið bygðist. — Vona eg, að háttv. þingmenn minnist þess, að eg lagði þó gott til málanna, þegar ræða var um brúargerð á Ölfusá og Þjórsá. Hin héruðin sáu ofsjónum yfir þessum héraðabótum og töfðu með því verkið í 10—20 ár. Nú vil eg segja, að þegar loks er búið að fullnægja þessum nauðsynjamálum, þá mega menn ekki þjóta upp úr öllum áttum og hamra fram einhvern »luxus«, þ. e. verk, sem að vísu má verða til gagns, en verður þó hjá komist. Þessa merkingu legg eg í orðið »luxus« í þessu sambandi, og ekki aðra. — Það eru miklu fleiri ár, sem torfærari eru yfirferðar en Rangá, það eru straumharðar ár og illar í botninn. Þar væri meiri nauðsyn á umbótum. Með þessum 40—50 þús. kr., sem ætlaðar eru til Rangárbrúarinnar mætti brúa margar smá ár, sem þó geta verið afar illar yfirferðar.

Háttv. 1. þm. Rvík. (J. Þ.) sló mér gullhamra fyrir það, að eg væri dýravinur. Eg þakka þingm. fyrir þessi fallegu orð í minn garð, en eg verð þó að geta þess, að eg get ekki fylgt þeim dýravinum að því máli, að dýraverndunin sé svo mikil, að hestum sé hlíft við því, að fara yfir lygnt vatn með góðum botni.